Allar líkur á að Hæstiréttur vísi Aurum-málinu aftur heim í hérað

Yfir­gnæf­andi líkur eru á því að Hæsti­réttur Íslands muni vísa Aurum-mál­inu svo­kall­aða í heild sinni aftur til með­ferðar í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Boðuð dóms­upp­saga í mál­inu í Hæsta­rétti í dag, þykir benda sterk­lega til þess.

Sak­born­ingar í Aurum-mál­inu, þeir Lárus Welding, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitnis, Magnús Arnar Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrrum aðal­eig­andi Glitnis, og Bjarni Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóri bank­ans, voru allir sýkn­aðir af ákæru sér­staks sak­sókn­ara um umboðs­svik í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 5. júní síð­ast­lið­inn.

Rík­is­sak­sókn­ari áfrýj­aði nið­ur­stöð­unni til Hæsta­réttar og krafð­ist ómerk­ingar þar sem einn með­dóm­ari máls­ins hafi verið van­hæfur til að fjalla um málið. Umræddur með­dóm­ari er Sverrir Ólafsson, fjár­mála­verk­fræð­ingur, en hann er bróðir Ólafs Ólafs­sonar, kenndur við Samskip, sem hlaut þungan fang­els­is­dóm vegna aðildar sinnar að Al-Thani flétt­unni svoköll­uðu.

Aðal­með­ferð fyrir Hæsta­rétti laut ein­vörð­ungu að ómerk­ing­ar­kröfu rík­is­sak­sókn­ara. Áður en mál­flutn­ingur hófst var verj­endum og sak­sókn­ara til­kynnt um að það yrði aðeins boðað til dóms­upp­kvaðn­ingar ef fall­ist yrði á kröfu ákæru­valds­ins um ómerk­ingu og heim­vísun. Ella myndi málið halda áfram fyrir Hæsta­rétti og boðað yrði til mál­flutn­ings um málið í heild sinni. Helgi Magnús Gunn­ars­son, vara­rík­is­sak­sókn­ari, stað­festir í sam­tali við Kjarnann að ein­ungis hafi verið boðað til dóms­upp­sögu í mál­inu í dag. Ef dóm­ur­inn hefði ekki fall­ist á ómerk­ing­ar­kröfu ákæru­valds­ins, hefði emb­ætt­inu verið til­kynnt um það og sömu­leiðis um frek­ari umfjöllun um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár