Fá ekki reynslulausn - fleiri Kaupþingsmál til rannsóknar

Stjórn­endur Kaup­þings sem dæmdir voru í Al Thani mál­inu, þeir Sigurður Ein­ars­son fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri, og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, geta ekki fengið reynslu­lausn úr fang­els­is­vist á meðan mál sem bein­ast gegn þeim hafa ekki verið til lykta leidd í dóms­kerf­inu. Þessir þrír stjórn­endur eru allir ákærðir í málum sem bíða þess að verða til lykta leidd. Hreiðar Már og Magnús í þremur málum, en Sigurður í tveimur. Þá stað­festi Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, í sam­tali við Kjarnann að nokkur mál til við­bótar, sem tengd­ust Kaup­þingi og athöfnum stjórn­enda bank­ans, væru enn á rann­sókn­ar­stigi og ekki ljóst enn hvort þau myndu leiða til ákæru.

[caption id="attachment_17388" align="alignnone" width="735"] For­dæma­laus lög­brot áttu sér í starf­semi Kaup­þings skömmu fyrir hrun, í tengslum við við­skipti Al Thani með 5 pró­sent hlut í bank­anum, sam­kvæmt dómi Hæsta­réttar.[/caption]

Í Al Thani mál­inu voru allir ákærðu, Hreiðar Már Sig­urðs­son, Sigurður Ein­ars­son, Magnús Guð­munds­son og Ólafur Ólafsson, dæmdir sekir í Hæsta­rétti, en málið tengd­ist kaupum Mohammed Sheikh Bin Kalifa Al Thani, frænda Emírsins frá Katar, á fimm pró­senta hlut í Kaup­þingi í lok sept­em­ber 2008. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur fjögur ár og Magnús fjögur og hálft ár. Ólafur var dæmdur fyrir mark­aðs­mis­notkun en hinir þrír fyrir umboðs­svik til við­bótar við mark­aðs­mis­notkun.

Samkvæmt lögum og reglum um reynslu­lausn er mögu­legt fyrir fanga að fá hana þegar helm­ingur refs­ingar hefur tekin út með afplánun, en það fer eftir til­teknum skil­yrðum þó, meðal ann­ars um góða hegðun í fang­elsi og að fleiri máli hjá lög­reglu eða dóm­stólum bein­ist ekki að við­kom­andi.

Aðalmeðferð framundan - alvarlegar sakir


Framundan er aðal­með­ferð í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli sem bein­ist að Kaup­þings­fólki, sam­tals níu starfs­mönnum. Hún fer fram í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 21. apríl til 22. maí. Ákærðu er gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hluta­bréfa í Kaup­þingi, frá hausti 2007 og fram að falli bank­ans haustið 2008, og aukið selj­an­leika þeirra með „kerf­is­bundnum“ og „stór­felldum“ kaupum, eins og segir í ákæru, í krafti fjár­hags­legs styrks bank­ans. Hreiðar Már, Sigurður og Magnús eru allir ákærðir í mál­inu.

Hreiðar, Magnús og Sigurður eru svo einnig ákærðir í CLN-mál­inu en þar er þeim gefið að sök að hafa mis­notað stöðu sína sem stjórn­endur bank­ans í lán­veit­ingum til nokk­urra félaga sem voru í eigu við­skipta­vina bank­ans. Lánin voru svo notuð til að kaupa skulda­trygg­ingar á Kaupþing banka, eða svokölluð Credit Linked Notes, með það að mark­miði að lækka álagið og freista þess að opna fyrir fjár­veit­ingar til bank­ans á mark­aði.

Þriðja málið sem er fyrir dóm­stólum, og bein­ist að Kaup­þings­stjórn­endum, er Marple-málið svo­nefnda, en Hreiðar Már og Magnús eru ákærðir í því ásamt Guðnýju Örnu Sveins­dóttur, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóra bank­ans, og Skúla Þor­valds­syni, fjár­festi og fyrr­ver­andi stórs hlut­hafa Kaup­þings. Ákært er fyrir fjár­drátt, þegar færðir voru átta millj­arðar króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marple, sem var í eigu Skúla Þor­valds­sonar, án þess að heim­ild væri fyrir því.

[caption id="attachment_20433" align="alignnone" width="640"] Ólafur Ólafsson, fjár­festir, seg­ist ekki ætla að stinga hausnum í sand­inn heldur hefja afplánun í fang­elsi þegar kall um það berst. Fleiri mál bein­ast að Sigurður Ein­ars­syni, sem sést hér við hlið Ólafs.[/caption]

Hámark níu ára fangelsi


Heimild er í hegn­ing­ar­lögum að auka við refs­ingu sem þegar hefur komið fram með dómi, og bæta við hana allt að helm­ingi, ef menn hafa ítrekað verið dæmdir fyrir lög­brot. Níu ára fang­elsi er að það mesta sem Kaup­þings­menn geta fengið, þegar allt er tekið, og ef sak­fellt verður í öðrum málum. Í ljósi for­dæmis úr Al Thani mál­inu, gæti sú staða komið upp að refsiramm­inn yrði full­nýttur áður en málin yrðu til lykta leidd í dóms­kerf­inu sem að þeim bein­ast. Þá kæmi til mats á því, hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, hvort það væri þess virði að fara fram með málin af fullum þunga í dóms­kerf­inu og leiða þau til lykta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár