Hannes Smárason sýknaður í héraðsdómi Reykjavíkur

Hannes Smárason, fyrrum stjórn­ar­for­maður og for­stjóri FL Group, var í morgun sýkn­aður í hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Þetta kemur fram á mbl.is. Hannes var ákærður fyrir að hafa dregið sér tæpa þrjá millj­arða króna af reikn­ingi FL Group á meðan að hann var stjórn­ar­for­maður félags­ins. Fénu á Hannes svo að hafa ráð­stafað til Fons eign­ar­halds­fé­lags, þá í eigu Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­sonar, sem not­uðu það til að borga fyrir danska lággjald­ar­flug­fé­lagið Sterling á árinu 2005.

Málið var þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 14. nóv­em­ber í fyrra. Hér­aðs­dómur féllst á frá­vís­un­ar­kröfu Hannesar í mars, en Hæsti­réttur Íslands ógilti svo frá­vís­un­ina í apr­íl­mán­uði síð­ast­liðnum. Aðal­með­ferð hófst loks 28. jan­úar síð­ast­lið­inn, tæpum tíu árum eftir að hið ætl­aða brot átti sér stað.

Sér­stakur sak­sókn­ari fór fram á að Hannes yrði dæmdur í tveggja til þriggja ára fang­elsi fyrir fjár­drátt í Sterling-mál­inu. Verjandi Hannesar, Gísli Guðni Hall, byggði vörn hans á því að ekki hafi verið sýnt fram á að bind­andi fyr­ir­mæli hafi verið gefin um milli­færsl­una eða ekki. Hannes sagð­ist sjálfur vera sak­laus af ákærunni og að ekk­ert benti til þess að milli­færslan hefði yfir höfuð átt sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár