Allir sakborningar sýknaðir í SPRON-málinu

Allir sak­born­ingar í SPRON-mál­inu svo­kall­aða voru sýkn­aðir í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun. Í mál­inu voru fjórir fyrrum stjórn­ar­menn og fyrrum for­stjóri SPRON ákærðir fyrir umboðs­svik vegna tveggja millj­arða króna láns sem SPRON veitti Exista þann 30. sept­em­ber 2008, deg­inum eftir að Glitnir var þjóð­nýttur. Allur máls­kostn­aður greið­ist úr rík­is­sjóði.

Hin sýkn­uðu eru Guð­mundur Örn Hauksson, fyrrum spari­sjóðs­stjóri og síðar for­stjóri SPRON, og stjórn­ar­menn­irnir Rannveig Rist, sem er for­stjóri Rio Tinto Alcan, Margrét Guð­munds­dóttir, stjórn­ar­for­maður N1, Ari Bergmann Ein­ars­son og Jóhannes Ásgeirs Baldurs.

Þeim var gefið að sök að hafa mis­notað aðstöðu sína hjá spari­sjóðnum og stefnt fé hans í veru­lega hættu með því að fara út fyrir heim­ildir til lán­veit­inga þegar þau sam­þykktu lánið.

Ákæru­valdið fór fram á að allir hinna ákærðu yrðu dæmdir í fang­elsi þar sem brot þeirra væru stór­felld. Það taldi einnig að styrkur og vilji Guð­mundar Hauks­sonar til brots væri sterk­ari en hjá stjórn­ar­mönn­unum. Hámarks­refs­ing fyrir umboðs­svik er sex ára fang­elsi.

Lán á ögurstundu


Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um spari­sjóði lands­ins, sem komu út í apríl 2014, var greint frá láni sem SPRON veitti Existu þann 30. sept­em­ber 2008, dag­inn eftir að ríkið til­kynnti um þjóð­nýt­ingu Glitnis og í miðju banka­hruni, upp á tvo millj­arða króna. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir: „Sam­dæg­urs […]lagði dótt­ur­fé­lag Exista hf., Vátrygg­inga­fé­lag Íslands hf., 2 millj­arða króna pen­inga­mark­aðsinn­lán inn í [SPRON] með sama upp­hafs- og loka­dag og lánið til Existu“.

Í lok októ­ber var pen­inga­mark­aðsinn­láni Vátrygg­inga­fé­lags­ins breytt í almennt inn­lán.

Lánið sem SPRON veitti Existu var aldrei greitt til baka. Á fundi end­ur­skoð­un­ar­nefndar SPRON í jan­úar 2009 kom fram að þetta hefði verið „óheppi­leg lán­veit­ing“. 1,6 millj­arðar króna voru færðir á afskrift­ar­reikn­ing í lok árs 2008 en sú upp­hæð var enn útistand­andi í júlí 2009 og hefur þannig lík­ast til öll tap­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár