Sex manns sýknaðir í Milestone-máli sérstaks saksóknara

Sex manns voru í morgun sýkn­aðir af öllum ákærðuliðum, sem snér­ust meðal ann­ars um umboðs­svik, í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í Milestone-mál­inu svo­kall­aða. Á meðal þeirra sem sýkn­aðir voru eru bræð­urnir Karl og Stein­grímur Wernerssynir, fyrrum aðal­eig­endur Milestone. Frá þessu er greint á vef Vísis.

Mála­rekstur sér­staks sak­sókn­ara snérist um að greiðslur upp á 4,8 millj­arða króna sem runnu út úr Milestone til Ingunnar Wernersdóttur, systur Karls og Stein­gríms, á árunum 2006 og 2007, hefðu verið umboðs­svik. Karl, Stein­grímur og Guð­mundur Ólason, fyrrum for­stjóri Milestone, voru ákærðir fyrir að hafa tekið sam­eig­in­lega ákvörðun um að greiða Ingunni þessa upp­hæð út úr Milestone til að losa hana undan eign sinni í félag­inu.

Auk þeirra voru þrír end­ur­skoð­endur hjá KPMG ákærðir í mál­inu vegna ætl­aðra bók­halds­brota. Hér­aðs­dómur ákvað að málsvarn­ar­laun allra ákærðu, alls 51,4 milljón krónur, skyldu greið­ast úr rík­is­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár