Dómur Hæstaréttar í Al-Thani málinu: Allir sekir

Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafsson, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans, voru allir dæmdir sekir í Al-Thani mál­inu í Hæsta­rétti í dag. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur og Magnús fjögur og hálft ár.

Dómur féll í hér­aði í mál­inu 12. des­em­ber 2013 og voru sak­born­ing­arnir fjórir allir dæmdir til fang­els­is­vistar. Hreiðar Már í fimm og hálft ár, Sigurður í fimm ár, Magnús í þrjú og Ólafur í þrjú og hálft ár. Dómur Hreiðars Más var því stað­festur í Hæsta­rétti, dómur Sigurðar mild­aður um eitt ár, en dómar Ólafs og Magnúsar voru þyngdir. Enginn sak­born­ing­anna var við­staddur dóms­upp­kvaðn­ingu.

Al-Thani málið, sem er eitt umfangs­mesta efna­hags­brota­mál sem komið hefur á borð dóm­stóla hér á landi, á rætur að rekja til hluta­bréfa­kaupa sheikh Mohammad Bin Khalifa Al-Thani frá Katar hinn 22. sept­em­ber 2008 en félag hans keypti 5,01 pró­senta hlut í Kaup­þingi banka fyrir 25,7 millj­arða króna með láni frá bank­anum. Al-Thani er yngri bróðir emírs­ins í Katar en hann var per­sónu­legur vinur Ólafs Ólafs­sonar þegar málið komið upp.

[caption id="attachment_9796" align="alignnone" width="624"] Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, hlaut þyngsta dóm­inn í mál­inu í hér­aði, fimm og hálfs árs fang­elsi.[/caption]

Voru fjór­menn­ing­arnir dæmdir fyrir mark­aðs­mis­notkun á grund­velli laga um verð­bréfa­við­skipti og umboðs­svik sam­kvæmt hegn­ing­ar­lögum, en ákæran byggði ekki síst á því að Kaupþing hefði fjár­magnað fyrr­nefnd kaup og að blekk­ingum hefði verið beitt til þess að fela það. Hreiðar Már, Sigurður, Magnús og Ólafur hafa stað­fast­lega haldið fram sak­leysi sínu í mál­inu frá því ákæra á hendur þeim í Al-Thani mál­inu var þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Hinir dæmdu áfrýj­uðu allir nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms til Hæsta­réttar og fór munn­legur mál­flutn­ingur fram þar seinni part­inn í jan­úar. Nú liggur nið­ur­staða Hæsta­réttar fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár