Sigurjón Þ. Árnason dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi í Ímon-málinu

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum banka­stjóri Lands­bank­ans, var í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fang­elsi í Hæsta­rétti vegna Ímon-máls­ins svo­kall­aða. Elín Sig­fús­dóttir, fyrrum fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, var dæmd í 18 mán­aða fang­elsi. Steinþór Gunn­ars­son, fyrrum for­stöðu­maður verð­bréfa­miðl­unar bank­ans, var dæmdur í níu mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi.

Hæstirétti­réttur snéri þar með við dómi hér­aðs­dóms yfir Sig­ur­jóni og Elínu, sem voru bæði sýknuð þar. Steinþór hlaut níu mán­aða dóm í hér­aði en hluti hans var þá skil­orðs­bund­inn. Sá dómur var kveð­inn upp 5. júní 2014. Í dómi Hæsta­réttar segir m.a.: "Brotin [...] beindust í senn að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­að­inum hér á landi og verður tjónið, sem af þeim hlaust, ekki metið til fjár".

Imon-málið snýst um sölu Lands­bank­ans á eig­in bréf­um til tveggja eign­ar­halds­fé­laga í lok sept­em­ber og byrj­un októ­ber árið 2008. Fé­lög­in tvö voru Imon ehf. og Aza­lea Resources Ltd. Lands­bank­inn fjár­magn­aði kaupin að fullu og taldi sak­sókn­ari við­skiptin vera mark­aðs­mis­notkun og umboðs­svik. Í dómi Hæsta­réttar kemur fram að Sigurjón sé fund­inn sekur um að hafa framið umboðs­svik og mark­aðs­mis­notkun. Elín var fundin sek um umboðs­svik og hlut­deild í mark­aðsnis­notkun og Steinþór var sak­felldur fyrir mark­aðs­mis­notkun.

Fleiri mál gegn Landsbankafólki


Ímon-málið er ekki eina málið gegn Sig­ur­jóni og Elínu sem nú er til með­ferðar í dóms­kerf­inu.

Í októ­ber 2014 voru þau sýknuð í hér­aðs­dómi vegna ákæru fyrir umboðs­svik upp á 13,6 millj­arða króna. Þeim sýknu­dómi hefur verið áfrýjað til Hæsta­réttar.

Í nóv­em­ber í fyrra var Sigurjón dæmdur í tólf mán­aða fang­elsi fyrir mark­aðs­mis­notkun í hér­aðs­dómi, þar af voru níu mán­uðir skil­orðs­bundnir. Ívar Guð­jóns­son, fyrrum for­stöðu­maður eigin fjár­fest­inga Lands­bank­ans, og Júlíus S. Heið­ars­son, sem var sér­fræð­ingur í sömu deild, voru dæmdir í níu mán­aða fang­elsi, þar af eru sex mán­uðir skil­orðs­bundnir, í sama máli.Sindri Sveins­son, sem starf­aði við eigin fjár­fest­ingar hjá Lands­bank­anum, var þar sýkn­aður af kröfum ákæru­valds­ins.

Menn­irnir fjórir voru ákærðir fyr­ir mark­aðs­mis­notk­un á tíma­bil­inu 1. nóv­em­ber 2007 til 3. októ­ber 2008. Samkvæmt ákæru áttu þeir að hafa hand­stýrt verð­mynd­un hluta­bréfa í Lands­bank­an­um og með því blekkt „fjár­festa, kröfu­hafa, stjórn­völd og sam­fé­lagið í heild.“

Þetta mál bíður með­ferðar fyrir Hæsta­rétti.Umfang þess er mun meira en Ímon-máls­ins, sem dæmt var í í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár