Sigurjón Árnason sekur í markaðsmisnotkunarmáli

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum banka­stjóri Lands­bank­ans var í morgun dæmdur í tólf mán­aða fang­elsi fyrir mark­aðs­mis­notkun. Þar af eru níu mán­uðir skil­orðs­bundnir. Ívar Guð­jóns­son, fyrrum for­stöðu­maður eigin fjár­fest­inga Lands­bank­ans, og Júlíus S. Heið­ars­son, sem var sér­fræð­ingur í sömu deild, voru dæmdir í níu mán­aða fang­elsi, þar af eru sex mán­uðir skil­orðs­bundnir.

Sindri Sveins­son, sem starf­aði við eigin fjár­fest­ingar hjá Lands­bank­anum, var sýkn­aður af kröfum ákæru­valds­ins.

Menn­irnir fjórir voru ákærðir fyr­ir mark­aðs­mis­notk­un á tíma­bil­inu 1. nóv­em­ber 2007 til 3. októ­ber 2008. Samkvæmt ákæru áttu þeir að hafa hand­stýrt verð­mynd­un hluta­bréfa í Lands­bank­an­um og með því blekkt „fjár­festa, kröfu­hafa, stjórn­völd og sam­fé­lagið í heild.“

Ákærðu neit­uðu allir alfarið sök í mál­inu. Sigurjón Þ . Árnason hefur sagt opin­ber­lega að það séu mikil „von­brigði“ hvernig málið sé sett fram. Fyrst og fremst vegna þess í að því hafi öllu verið snúið á haus.

Sigurjón var sýkn­aður í Ímon-mál­inu svo­kall­aða 5. júní 2014, en umfang þess máls var þó ekki nándar nærri eins og mikið og það sem nú er í gangi.

Alls voru um 50 manns á vitna­lista ákæru­valds­ins í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár