Kjarninn birtir ákæru í Stím-málinu í heild sinni

Sér­stakur sak­sókn­ari birti þremur mönnum: Lárusi Welding, Jóhann­esi Bald­urs­syni og Þorvaldi Lúðvík Sig­ur­jóns­syni, ákæru í síð­ustu viku í hinu svo­kall­aða Stím-máli. Hinir tveir fyrr­nefndu eru ákærðir fyrir umboðs­svik en Þor­valdur Lúðvík fyrir hlut­deild í slíkum. Kjarninn hefur ákæruna undir höndum. Hana má lesa í heild sinni hér.

Tugmilljarðar til að kaupa óseljanleg bréf


Málið snýst ann­ars vegar um tug­millj­arða króna lán­veit­ingar til félags­ins Stím ehf., í nóv­em­ber 2007 og jan­úar 2008. Stím var búið til af starfs­mönnum Glitnis í þeim til­gangi að kaupa hluta­bréf í bank­anum sjálfum og stærsta eig­anda hans, FL Group, sem bank­inn sat uppi með á veltu­bók sinni. Enginn mark­aður var fyrir bréfin á því verði sem Stím greiddi fyrir þau.

Lýstar kröfur í bú Stím þegar það fór á haus­inn voru rúm­lega 24 millj­arðar króna. 0,06 pró­sent fékkst upp í kröf­urnar. Ljóst er að fjár­tjón lán­veit­enda, Glitnis, var því gríð­ar­legt. Lárus Welding er ákærður fyrir umboðs­svik í tveimur liðum vegna lán­veit­ing­anna sem áttu sér stað í nóv­em­ber 2007 og í jan­úar 2008, en hann var for­stjóri Glitnis á þeim tíma.

Sjóðsfélagar látnir taka högg Sögu


Hins vegar snýst málið um kaup fag­fjár­festa­sjóðs­ins GLB FX á víkj­andi skulda­bréfi af Saga Capital í ágúst 2008. Saga hafði lánað Stím millj­arð króna en þegar ljóst varð að Stím var komið með nei­kvætt eigið fé setti, sam­kvæmt ákæru, Þor­valdur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, þáver­andi for­stjóri og eig­andi í Sögu Capital, mik­inn þrýst­ing á Glitni að kaupa af sér skulda­bréfið. Það var loks gert í ágúst 2008, skömmu fyrir banka­hrun, og öll upp­hæðin auk vaxta end­ur­greidd til Sögu Capital. Hún nam um 1,2 millj­arði króna.

Kaup­and­inn var umræddur sjóður, GLB FX. Með því var tap vegna Stím fært af Sögu Capital yfir á þá sem áttu hlut­deild í sjóðnum. Þar á meðal voru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Jóhannes Bald­urs­son var fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta Glitnis á þessum tíma og tók, sam­kvæmt ákæru, ákvarð­anir um að kaupa hið verð­litla skulda­bréf á fullu verði. Hann er ákærður fyrir umboðs­svik. Þor­valdur Lúðvík er síðan ákærður fyrir hlut­deild í umboðs­svikum.

„VICTORY!“


Í ákærunni stendur að umboðs­svik Jóhann­esar hafi falist í að mis­nota aðstöðu sína gagn­vart umsjón­ar­mönnum sjóðs­ins, en hann var yfir­maður þeirra, með því að gefa öðrum þeirra fyr­ir­mæli um að ráð­stafa rúm­lega 1,2 millj­arði króna til kaupa á víkj­andi skulda­bréfi „sem honum var full­kunn­ugt um að var án raun­veru­legra trygg­inga og von­lítið eða von­laust að feng­ist greitt. Ráð­stöf­unin var gerð til hags­bóta fyrir Sögu Capital og var í beinni and­stöðu við hags­muni eig­enda sjóðs­ins“.

Í ákærunni stendur einnig að „Frá des­em­ber 2007 og fram í júlí 2008 var ákærði Þor­valdur Lúðvík í miklum sam­skiptum við ákærða Jóhannes og aðra starfs­menn Glitnis vegna sífellt versn­andi stöðu Stíms og þar með yfir­vof­andi fjár­tjóns­hættu Sögu Capital vegna víkj­andi kröfu sinnar. Áhyggjur ákærða Þor­valdar Lúðviks koma meðal ann­ars fram í sam­skiptum við end­ur­skoð­endur Sögu Capital og til­raunum hans til að fá frá Glitni ein­hvers konar skað­leys­is­yf­ir­lýs­ingu svo kröf­una þyrfti ekki að afskrifa eða var­úð­ar­færa í bókum Sögu Capital. Gögn máls­ins sýna að Þorvaldi Lúðvík var full­kunn­ugt um bág­borna stöðu skuld­ar­ans Stíms sam­kvæmt hinu víkj­andi skulda­bréfi og að hann hafi knúið á um að Glitnir myndi finna lausn á mál­inu með þeim hætti að Saga Capital fengi efndir fjár­kröfu sinnar. Samkvæmt gögnum máls­ins virð­ast ákærðu hafa verið búnir að sam­mæl­ast um að Saga Capital fengi kröfu sína á hendur skuld­ar­anum Stími greidda að fullu, nokkru fyrir við­skiptin í ágúst 2008“. Í ákærunni er einnig greint frá því að „Ákærði Jóhannes hafði sam­band við ákærða Þorvald Lúðvík á hádegi 14. ágúst 2008 með tölvu­pósti. Í meg­in­máli hans stóð ein­ungis: „GLB FX (Glitnir sjóðir hf., GLB FX) kt.5212069420“.

"Fimm mín­útum síðar framsendi ákærði Þor­valdur Lúðvík póst­inn til sam­starfs­manna sinna hjá Sögu Capital og sagði í meg­in­máli pósts­ins orð­rétt: „VICTORY!“ Seinna sama dag gaf ákærði Þor­valdur Lúðvík þessum sömu sam­starfs­mönnum fyr­ir­mæli um að útbúa fram­virkan samn­ing um sölu á víkj­andi skulda­bréf­inu til GLB FX[...]ákærði Þor­valdur Lúðvík var í senn for­stjóri Sögu Capital og eig­andi að 12% hluta­fjár í fjár­fest­inga­bank­anum [...]Hafði ákærði Þor­valdur Lúðvík því per­sónu­lega og fjár­hags­lega hags­muni af því að við­skiptin með hið víkj­andi skulda­bréf yrðu að veru­leika“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár