Hreiðar Már, Skúli og Magnús sakfelldir í Marple-málinu - Guðný sýknuð

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans í Lúx­em­borg og Skúli Þor­valds­son fjár­festir voru í dag sak­felldir í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í Marple-mál­inu svo­kall­aða. Hreiðar Már og Skúli hlutu sex mán­aða dóma en Magnús var dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi. Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, var sýknuð af ákæru í mál­inu. RÚV greinir frá.

Hreiðar Már og Guðný Arna voru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik. Magnús var ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum og Skúli var ákærður fyrir hylm­ingu. Málið, eins og emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara lagði það upp, snýst um til­færslu á um átta millj­örðum króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marple Holding, í eigu Skúla, án þess að lög­mætar við­skipta­legar ákvarð­anir lægju þar að baki.

Alls hefur emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara ákært þá Hreiðar Má og Magnús fjórum sinnum. Hreiðar Már hefur nú þrí­vegis verið dæmdur sekur í málum gegn honum, þótt tvö þeirra mála eigi vænt­an­lega enn eftir að fara fyrir Hæsta­rétt. Magnús hlaut dóm í Al Thani-mál­inu en var sýkn­aður í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu tengt Kaup­þingi fyrr á þessu ári. Báðir afplána þeir nú langa fang­els­is­dóma á Kvía­bryggju.

Fóru fram á að meðdómari myndi víkja

Fyrr í þess­ari viku fór Hreiðar Már fram á að Ásgeir Brynjar Torfason, með­dóm­ari í mál­inu, meðal ann­ars á þeim for­sendum að hann situr í stjórn sam­tak­anna

Gagnsæis

, sem hafa það yfir­lýsta mark­mið að berj­ast gegn spill­ingu í öllum grunn­stoðum sam­fé­lags­ins. Auk þess voru ýmis ummæli Ásgeirs Brynjars í þjóð­mála­um­ræðu und­an­far­inna ára sem og grein­ar­skrif hans sögð draga úr hlut­leysi hans sem dóm­ara.

Kjarninn

greindi frá þessu á mánu­dag.

Vísir greindi einnig frá mál­inu og því að meðal þess sem Hreiðar not­aði sem rök­stuðn­ing eru ummæli Ásgeirs í mynd­bands­bloggi hjá Teiti Atlasyni, nafn­laus grein á bloggi Egils Helga­sonar sem Hreiðar telur að Ásgeir hafi skrifað og færslur á Facebook sem hann hefur látið sér líka við.

Þeirri kröfu var hafnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár