Falsaðir reikningar, breyttir samningar og gervilén í fjárdráttarmáli Magnúsar

Fyrr­ver­andi for­stjóri United Silicon er tal­inn hafa látið leggja greiðslur inn á reikn­inga í Danmörku og Ítalíu og síðan notað þær í eigin þágu. Alls er grunur um 605 millj­óna króna fjár­drátt.

Kísilmálmverksmiðja United Silicon í Helguvík.
Kís­il­málm­verk­smiðja United Silicon í Helguvík. Mynd: United Silicon

Magnús Garð­ars­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri og stofn­andi United Silicon (USi), er grun­aður um að hafa falsað reikn­inga og und­ir­skriftir, átt við lána­samn­ing og búið til gervi­lén í við­leitni sinni til að draga að sér fé úr fyr­ir­tæk­inu. Alls er grunur um að Magnús hafi dregið að sér 605 millj­ónir króna.

[links]Þetta kemur fram í skýrslu sem KPMG vann fyrir United Silicon og skil­aði til fyr­ir­tæk­is­ins í nóv­em­ber. Skýrslan byggir á skoðun KPMG á gögnum úr bók­haldi United Silicon og upp­lýs­ingum sem stjórn­endur og end­ur­skoð­endur veittu KPMG við skoð­un­ina.

Í skýrsl­unni er meint fjár­mála­mis­ferli Magn­úsar rakið ítar­lega, en United Silicon kærði hann til hér­aðs­sak­sókn­ara vegna gruns um stór­felld auðg­un­ar­brot og skjala­fals allt frá árinu 2014. Magnús hafn­aði þessum ásök­unum í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér 12. sept­em­ber 2017. Þar sagði hann þær „bull og vit­leysu“.

Brögðum beitt til að fela upplýsingar

Þorri þess fjár­dráttar sem talin er hafa átt sér stað hjá United Silicon var með þeim hætti að fyr­ir­tæk­inu bár­ust reikn­ingar sem sagðir voru vera frá ítalska fyr­ir­tæk­inu Tenova, sem fram­leiddi ljós­boga­ofn kís­il­málm­verk­smiðj­unnar í Helguvík.

Í skýrslu KPMG segir að samn­ing­ur­inn um kaup á bún­aði og efni vegna ofns­ins hafi verið und­ir­rit­aður 21. maí 2014. Hann hljóð­aði upp á 28,5 millj­ónir evra, eða um 3,6 millj­arða króna á núver­andi gengi. Á sama tíma var gerður lána­samn­ingur þar sem Tenova lán­aði United Silicon fyrir kaup­verð­inu. Í honum var kveðið á um frestun á útgáfu reikn­inga sem nemur 20 pró­sent af reikn­ingum Tenova sam­kvæmt greiðslu­á­ætlun.

[adspot]Stjórn United Silicon veitti Magnúsi heim­ild til að gera nauð­syn­legar ráð­staf­anir vegna samn­ings við Tenova. Í skýrslu KPMG segir að í sam­skiptum við stjórn­endur Tenova hafi komið fram að þar sem fyrr­nefndur kaup­samn­ingur við Tenova hafi vísað í þann lána­samn­ing, sem var und­ir­rit­aður sama dag og samn­ing­ur­inn var gerður, hafi stjórn­endur Tenova litið svo á að í þeirri stjórn­ar­sam­þykkt fælist heim­ild til Magnúsar að skrifa undir lána­samn­ing­inn.

Með stjórn­ar­sam­þykkt­inni fylgdi skannað ein­tak af lána­samn­ing­inum. Í við­auka 8 við samn­ing­inn mátti einnig sjá til­vísun í lána­samn­ing­inn. Í skýrslu KPMG segir: „Ekki er að sjá neina til­vísun í lána­samn­ing­inn í við­auka 8 í því ein­taki af frum­riti samn­ings­ins sem varð­veitt er hjá USi en skjalið er að öðru leyti keim­líkt því ein­taki sem Tenova hefur undir höndum. Viðauki 8 er samt sem áður ólíkur öðrum skjölum samn­ings­ins og svo virð­ist sem um ljós­rit sé að ræða. Við nán­ari skoðun á frum­gagn­inu hjá USi má draga þá ályktun að átt hafi verið við skjalið í þeim til­gangi að falsa það. Þannig var brögðum beitt til að fela upp­lýs­ingar fyrir stjórn­endum, starfs­mönnum og end­ur­skoð­anda um lána­samn­ing­inn. Í þeim sam­skiptum sem KPMG hefur átt við hlut­eig­andi aðila lítur út fyrir að Magnús hafi einn innan USi vitað af umræddum lána­samn­ingi.“

„Algjörlega falsaðir“ reikningar

Reglu­lega bár­ust reikn­ingar til United Silicon frá Tenova. Sá fyrsti er dag­settur 1. júlí 2014 og er ekki lækk­aður um 20 pró­sent líkt og átti að gera sam­kvæmt lána­samn­ingnum. Við nán­ari skoðun hafi komið í ljós að Magnús hafi óskað eftir því að 20 pró­sent upp­hæð­ar­innar, 570.760 evrur, yrði end­ur­greidd og lögð inn á danskan banka­reikn­ing í nafni United Silicon. „Fjár­hæðin var síðan tekin út af banka­reikn­ingi og verður ekki séð að hún hafi verið nýtt í þágu USi. For­svars­menn USI höfðu enga vit­neskju um þennan banka­reikn­ing og var hann ekki skráður í bók­hald félags­ins,“ segir í skýrslu KPMG.

[box]Þeir reikn­ingar sem KPMG telur til­hæfu­lausa eiga að hafa borist frá öðru félagi, Pyromet Tecnologia Elettrodica S.R.L. (PTE). Alls voru greiddir sjö reikn­ingar til þess félags að fjár­hæð 4.231 þús­und evrur. Þegar aðal­lög­fræð­ingur Tenova, Giorgio Melega, fékk sent afrit af þessum reikn­ingum við skoðun á bók­haldi United Silicon sagði hann þá vera „algjör­lega fals­aða“ og stað­festa grun­semdir um skipu­lagða fölsun. Orðrétt sagði í tölvu­pósti sem hann sendi 1. sept­em­ber 2017: „Sorry to confirm that these invoice app­ear completely fake and confirm our ini­tial perception of a for­gery scheme.“

Greiðslur vegna reikn­ing­anna fóru inn á banka­reikn­ing á Ítalíu sem er talin tengj­ast Magnúsi Garð­ars­syni eða félögum honum tengdum. Samtals nemur hinn meinti fjár­dráttur 4,8 millj­ónum evra, eða 605 millj­ónum króna á núvirði.

Eitt þúsund færslur leiðréttar í bókhaldi

Í sam­an­tekt­ar­hluta skýrslu KPMG segir að við end­ur­skoðun árs­reikn­ings 2016 hafi end­ur­skoð­andi United Silicon kallað eftir stað­fest­ingum frá lána­drottnum. Þar segir enn fremur að til að villa um fyrir end­ur­skoð­anda „ þá greip Magnús til þess ráðs að stofna lén og lætur líta út fyrir að hann sé Mark Giese, Senior Project Manager hjá þeim lán­ar­drottni sem lánið var frá og falsar yfir­lit. Þar stað­festir hann að skulda­staða USi sé lægri en raunin var sem nemur þeirri fjár­hæð sem hann hafði þá tekið ófrjálsri hendi.“

Magnús hafi síðan falsað und­ir­skrift Mark Griese á stað­fest­ing­ar­bréfi vegna árs­ins 2016 til end­ur­skoð­anda.

Um tíma var íhugað að færa bók­hald United Silicon vegna árs­ins 2016 upp á nýtt vegna fjölda rang­færslna. Í skýrslu KPMG segir að það segi mikið um hver staða bók­halds­ins var. Sú ákvörðun hafi hins vegar verið tekin að fara í leið­rétt­ingar frekar en að færa bók­haldið allt aftur upp. Áætlað er að leið­rétt­ingar hefðu numið um eitt þús­und færslum. „Það verður að telj­ast mikið þar sem félagið var ekki komið í fulla starf­semi. Erfitt var að draga fram áreið­an­legar upp­lýs­ingar um hreyf­ingar í bók­hald­inu, t.d. á lán­ar­drottnum fyrir árin, vegna allra leið­rétt­ing­anna sem búið var að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár