Magnús neitar því að hafa dregið sér fé úr United Silicon

Fyrr­ver­andi for­stjóri og stofn­andi United Silicon segir að það sé „bull og vit­leysa“ að hann hafi dregið að sér hálfan millj­arð króna og falsað umtals­vert magn skjala.

Magnús Garð­ars­son, fyrr­ver­andi for­stjóri og stofn­andi United Silicon, segir að það sé ekki satt að hann hafi dregið að sér um hálfan millj­arð króna úr félag­inu. Hann segir að þetta sé „nátt­úru­lega bara stærsta bull og vit­leysa sem ég hef nokk­urn tím­ann lesið“ og að það hafi ekki farið neinir pen­ingar úr félag­inu. Hann seg­ist vera að skrifa frétta­til­kynn­ingu um málið í sam­starfi við nýjan lög­mann sinn. Þetta kemur fram á vef mbl.is.

Magnús er grun­aður um að hafa svikið út úr fyr­ir­tæk­inu yfir hálfan millj­arð króna. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans bár­ust United Sil­icon reikn­ingar sem sagðir voru vera frá fyr­ir­tæk­inu Tenova, sem fram­leiddi ljós­boga­ofn verk­smiðj­unn­ar. Þeir reikn­ingar voru greiddir en við end­ur­skipu­lagn­ingu United Sil­icon, sem nú stendur yfir, hafi komið í ljós að þeir væru alls ekki frá Tenova. Þess í stað hafi fjár­mun­irnir sem greiddir voru ratað inn á reikn­ing ann­ars félags. Stjórn United Sil­icon telur að Magnús Garð­ars­son hafi haft umsjón með því félagi.

Stjórn United Sil­icon til­kynnti um það í gær það hún hefði í sam­ráði við lög­­­mann sinn og aðstoð­­ar­­mann í greiðslu­­stöðvun sent kæru til Emb­ættis hér­­aðs­sak­­sókn­­ara um mög­u­­lega refsi­verða hátt­­semi Magn­ús­ar. Í til­­kynn­ingu segir að kæran byggi á „ grun um stór­­felld auð­g­un­­ar­brot og skjala­fals allt frá árinu 2014 og er lögð fram í sam­ráði við aðra hags­muna­að­ila. Upp­­lýs­ing­­arnar sem nú koma fram eru afrakstur af vinnu við end­­ur­­skipu­lagn­ingu félags­­ins sem leidd hefur verið af nýrri stjórn sem tók við í febr­­ú­­ar. Hinn grun­aði hefur enga aðkomu haft að rekstri eða stjórnun félags­­ins síðan í mars. Stjórn félags­­ins mun vinna með yfir­­völdum að rann­­sókn máls­ins svo að upp­­lýsa megi það sem fyrst.“

United Sil­icon rekur kís­­­­il­­­­málm­­­­verk­smiðju í Helg­u­vík. Félagið óskaði eftir greiðslu­­­­stöðvun 14. ágúst síð­­­­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­­­­leikar í rekstri kís­­­­il­­­­málm­­­­verk­smiðj­unni sem hóf fram­­­­leiðslu í nóv­­­­em­ber 2016, og rekja má til síend­­­­ur­­­­tek­inna bil­ana í bún­­­­aði sem hafa valdið félag­inu miklu tjóni. Nýfall­inn gerð­­­­ar­­­­dómur í deilu félags­­­­ins við ÍAV hf. eykur enn á óvissu félags­­­­ins. Sam­­­­kvæmt honum þarf United Sil­icon að greiða ÍAV um einn millj­­­­arð króna. Greiðslu­­­stöðvun fyr­ir­tæk­is­ins var fram­­­lengd í vik­unni og gildir nú fram í des­em­ber.

Á meðal hlut­hafa og lán­veit­enda þess eru Arion banki og íslenskir líf­eyr­is­­­­sjóð­­­­ir. Alls nam fjár­­­­­fest­ing líf­eyr­is­­­sjóða í verk­efn­inu um 2,2 millj­­­örðum króna. Þar af fjár­­­­­festu þrír líf­eyr­is­­­sjóðir sem eru í stýr­ingu hjá Arion banka í verk­efn­inu fyrir .1375 millj­­­ónir króna. Frjálsi líf­eyr­is­­­sjóð­­­ur­inn lagði til langstærstan hluta þeirrar upp­­­hæð­­­ar, eða 1.178 millj­­­ónir króna. Hinir tveir sjóð­irnir eru Eft­ir­­­launa­­­sjóður félags íslenskra atvinn­u­flug­­­manna (EFÍA) og Líf­eyr­is­­­sjóð starfs­­­manna Bún­­­að­­­ar­­­banka Íslands (LSBÍ). Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­un­­­ar­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­stöðvum hans í Borg­­­ar­­­túni.

Alls skuldar United Sil­icon Arion banka um átta millj­­arða króna. Auk þess færði bank­inn niður virði 16,3 pró­senta hluta­fjár­eign sinnar í fyr­ir­tæk­inu í hálfs­árs­upp­gjöri sínu í síð­asta mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár