Talinn hafa misnotað fjárfestingarleiðina sjálfum sér til hagsbóta

Í skýrslu KPMG, um meint efna­hags­brot fyrr­ver­andi for­stjóra United Silicon, kemur fram að grunur sé um að hann hafi mis­notað fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Alls er mað­ur­inn, Magnús Garð­ars­son, grun­aður um fjár­drátt upp á 605 millj­ónir króna.

Magnús Garðarsson er fyrrverandi forstjóri og stofnandi United Silicon.
Magnús Garð­ars­son er fyrr­ver­andi for­stjóri og stofn­andi United Silicon. Mynd: Landsvirkjun.

Talið er að Magnús Garð­ars­son, fyrr­ver­andi for­stjóri og stofn­andi United Silicon, hafi mis­notað fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands sjálfum sér til hags­bóta. Þetta kemur fram í skýrslu sem KPMG vann fyrir United Silicon og skil­aði til fyr­ir­tæk­is­ins í nóv­em­ber. Skýrslan byggir á skoðun KPMG á gögnum úr bók­haldi United Silicon og upp­lýs­ingum sem stjórn­endur og end­ur­skoð­endur veittu KPMG við skoð­un­ina.

[links]Í skýrsl­unni er meint fjár­mála­mis­ferli Magnúsar rakið ítar­lega, en United Silicon kærði hann til hér­aðs­sak­sókn­ara vegna gruns um stór­felld auðg­un­ar­brot og skjala­fals allt frá árinu 2014. Magnús hafn­aði þessum ásök­unum í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér 12. sept­em­ber 2017. Þar sagði hann þær „bull og vit­leysu“.

Í skýrslu KPMG segir að hinn meinti fjár­dráttur sé upp á 4,8 millj­ónir evra, eða 605 millj­ónir króna á núver­andi gengi. Þorri hans var vegna reikn­inga sem sagðir voru vera frá fyr­ir­tæk­inu Tenova, sem fram­leiddi ljós­boga­ofn verk­smiðj­unn­ar. Þeir reikn­ingar voru greiddir en við end­ur­skipu­lagn­ingu United Silicon, sem nú stendur yfir, hafi komið í ljós að þeir væru alls ekki frá Tenova. Þess í stað hafi fjár­mun­irnir sem greiddir voru ratað inn á reikn­ing ann­ars félags. Stjórn United Silicon telur að Magnús Garð­ars­son hafi haft umsjón með því félagi. Kjarninn mun fjalla ítar­lega um þann anga máls­ins í umfjöllun sem mun birt­ast á morgun.

Flókið félaganet eigenda

Magnús Garð­ars­son hefur lengi ætlað að byggja kís­il­málm­verk­smiðju í Helguvík. Á vor­mán­uðum árs­ins 2012 keypti félag sem heitir Stakks­braut 9 (S9) lóð á sam­nefndu heim­il­is­fangi á iðn­aðar- og hafn­ar­svæð­inu í Helguvík til þess að hanna, reisa og reka slíka verk­smiðju þar. Helsti for­svars­maður verk­efn­is­ins var Magnús Garð­ars­son.

Áformin gengu hins vegar ekki eftir vegna þess að banda­rískur sam­starfs­að­ili dró sig út úr því.

[adspot]Magnús fór aftur af stað og stofn­aði United Silicon, eða Sameinað Silicon ehf., (USi) með það fyrir augum að láta verk­smiðj­una verða að veru­leika.

Nýja félagið var í 99,9 pró­sent eigu félags sem heitir Kísill Ísland ehf. og í 0,1 pró­sent eigu USI Holding B.V. Eigandi Kísill Íslands var félagið United Silicon Holding B.V., skráð í Amster­dam í Hollandi, og eig­andi þess var síðan enn eitt félagið, Silicon Minerals Ventures B.V. (SMV). Það er dótt­ur­fé­lag hol­lenska fyr­ir­tæk­is­ins Fondel, sem sér­hæfir sig í að útvega hrá­efni fyrir alls kyns fram­leiðslu á Evr­ópu­mark­aði.

Þann 14. febr­úar 2014 var gert sam­komu­lag milli Silicon Mineral Ventures B.V. og USI Holding B.V. um að byggja kís­il­málm­verk­smiðju í Helguvík undir merkjum United Silicon. Á meðal þess sem fjallað var um í sam­komu­lag­inu voru leiðir til að fjár­magna verk­efnið. Þar sagði meðal ann­ars að aðilar máls ætl­uðu sér að nýta hina svoköll­uðu fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands, sem tryggði allt að 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu á það erlenda fjár­magn sem skipt var í íslenskar krónur í gegnum leið­ina.

Grunur um að misnotkun

Þann 1. sept­em­ber 2014 var félagið Stakks­braut 9 ehf., sem var stofnað utan um upp­runa­legu áform um kís­il­málm­verk­smiðju, sam­einað nýja félag­inu, United Silicon, sem yfir­tók um leið allar eignir og skuld­bind­ingar fyrr­nefnda félags­ins. Í skýrslu KPMG kemur fram að hlutafé fyrir sam­run­ann hafi verið 224 millj­ónir króna en eftir hann 673,4 millj­ónir króna. Þar segir einnig að langstærsti hluti eign­færslu Stakks­brautar 9 hafi verið byggður á reikn­ingum frá félagi sem heitir Pyromet Engineering B.V. (PE). Það félag var í eigu Magnúsar Garð­ars­sonar.

[box]Í sam­an­tekt KPMG segir að Stakks­braut 9 hafi alls greitt um 1.150 millj­ónir króna til Pyromet og 316 millj­ónir króna voru greiddar inn á reikn­ing félags­ins eftir að Stakks­braut 9 var sam­einað United Silicon. Greiðsl­urnar áttu sér stað á tíma­bil­inu 9. sept­em­ber 2014 til 27. ágúst 2015. Þeir reikn­ingar virð­ast aldrei hafa verið bók­aðir í bók­haldi United Silicon.

Í sam­an­tekt KPMG segir: „Án þess að hafa fyrir því stað­fest­ingu eða gögn til rök­stuðn­ings þá er hugs­an­legt að til­gang­ur­inn með þessum fjár­hags­færslum eftir að S9 er sam­einað USi hafi verið að mis­nota fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans. Mik­il­vægt er að það verði kannað nánar. Alls er um að ræða reikn­inga að fjár­hæð 393 m.kr. sem þannig fara í gegnum banka­reikn­ing S9 eftir að það er sam­einað, þ.e. 316 frá PE og 77 m.kr frá SMV. en sá reikn­ingur er vænt­an­lega fals­aður.“

Umdeild aðferð á vegum Seðlabankans

Fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leið­in, var gríð­ar­lega umdeild aðferð sem Seðla­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­hengju, krónu­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­magns­hafta og gerðu stjórn­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­ari losun þeirra hafta. Sam­kvæmt henni gátu þeir sem sam­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­stæð­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka. Mun hag­stæð­ara gengi.

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­fest­inga­leið­inni frá því í febr­úar 2012 til febr­úar 2015, þegar síð­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar, sem sam­svarar um 206 millj­örðum króna.

[adspot]794 inn­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi í gegnum útboð fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­sent þeirrar fjár­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­kvæmt skil­málum útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar. Afslátt­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­bank­ans er um 17 millj­arðar króna.

Seðla­bank­inn segir að sér sé ekki heim­ilt að greina frá nöfnum þátt­tak­enda í gjald­eyr­is­út­boðum sínum vegna þagn­ar­skyldu­á­kvæðis í lögum um Seðla­banka Íslands.

Pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu héráðs­sak­sókn­ara bár­ust engar til­kynn­ingar um að fjár­festar sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands hefðu verið að koma illa fengnu fé inn í landið. Við­skipta­bank­arnir, sem komu að nýt­ingu leið­ar­innar sem milli­liðir, segj­ast allir hafa kannað við­skipta­vini sína. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur fengið afhent lista yfir þá sem nýttu sér leið­ina of sam­keyrt þann lista við gögn úr Panama­skjöl­unum. Við þá sam­keyrslu kom í ljós að 21 ein­stak­lingur sem nýtti sér leið­ina átti einnig félag í skatta­skjólum sem til­greind voru í gögn­unum. Enn er verið að vinna úr þessum gögnum hjá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár