Tíu staðreyndir um fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands

  1. Fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leiðin, var gríð­ar­lega umdeild aðferð sem Seðla­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­hengju, krónu­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­magns­hafta og gerðu stjórn­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­ari losun þeirra hafta. Samkvæmt henni gátu þeir sem sam­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­stæð­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka. Mun hag­stæð­ara gengi.

  2. Þeir sem tóku á sig „tapið“ í þessum við­skiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu kom­ast út úr íslenska hag­kerf­inu með þær. Þeir sem „græddu“ voru aðilar sem áttu erlendan gjald­eyri en voru til­búnir að koma til Íslands og fjár­festa fyrir hann. Seðla­bank­inn var síðan í hlut­verki milli­göngu­að­ila sem gerði við­skiptin mögu­leg. Líkt og verslun sem leiddi heild­sala og neyt­endur saman.

  3. Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­fest­inga­leið­inni frá því í febr­úar 2012 til febr­úar 2015, þegar síð­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar, sem sam­svarar um 206 millj­örðum króna.

  4. Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­bank­ans, líkt og venju­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­fest­inga­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­arðar króna. Skilyrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fast­eignum, verð­bréfum, fyr­ir­tækjum eða öðrum fjár­fest­inga­kostum. Því má segja að þeir sem hafi nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina hafi fengið um 20 pró­sent afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.

  5. 794 inn­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi í gegnum útboð fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­banka Íslands. Peningar þeirra námu 35 pró­sent þeirrar fjár­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­kvæmt skil­málum útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar. Afslátt­ur­inn, eða virð­is­aukn­ingin, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­bank­ans er um 17 millj­arðar króna. Seðla­bank­inn segir að sér sé ekki heim­ilt að greina frá nöfnum þátt­tak­enda í gjald­eyr­is­út­boðum sínum vegna þagn­ar­skyldu­á­kvæðis í lögum um Seðla­banka Íslands.

  6. Gagnrýni á fjár­fest­ing­ar­leið­ina kom úr mörgum áttum, áður en ákveðið var að hætta útboðum hennar fyrir rúmu ári síðan. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gagn­rýndi hana meðal ann­ars fyrir að vera ósann­gjarna. Í sam­tali við Kjarnann í febr­úar 2014 sagði hann leið­ina fela í sér aðstöðumun milli inn­lendra og erlendra aðila.

  7. Fjöl­miðlar hafa verið dug­legir við að segja fréttir af þeim aðilum sem blasað hefur við að hafi nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina við að flytja pen­inga erlendis frá til lands­ins. Félög í eigu þeirra aðila hafa þá oftar en ekki ráð­ist í skulda­bréfa­út­gáfu sem sömu aðilar hafa keypt fyrir krón­urnar sem þeir fá fyrir gjald­eyr­inn sinn, og þar með hefur ákvæði um bind­ingu í verð­bréfum verið full­nægt. Á meðal þeirra sem hafa nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona, Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, Jóns Ólafs­sonar, Jóns Von Tetzchner, knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar, Ólafs Ólafs­sonar, Hjör­leifs Jak­obs­sonar, Ármanns Þor­valds­sonar, Kjartans Gunn­ars­sonar, Skúla Mogensen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wernerssona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unnar.

  8. Fjár­fest­ing­ar­leiðin var ein­ungis fyrir efnað fólk. Lengi vel þurfti við­kom­andi að eiga að minnsta kosti 50 þús­und evrur sem hann vildi skipta í krónur til að taka þátt en sú upp­hæð var lækkuð í 25 þús­und evrur allra síð­ustu mán­uð­ina sem hún var við lýði. Lengst af þurfti því að minnsta kosti að eiga and­virði um sjö millj­óna króna í reiðufé til að taka þátt.Ákveðin skil­yrði voru fyrir því að mega fara í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Á meðal þeirra er að fjár­festir­inn væri raun­veru­legur eig­andi þeirra fjár­muna sem hann ætlar sér að flytja inn til lands­ins. Auk þess er óheim­ilt að flytja fjár­muni fyrir hönd ann­ars eða ann­arra aðila. Annað skil­yrði var að fjár­festir lægi„ekki undir rök­studdum grun hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans um meint brot, ákærður af hand­hafa ákæru­valds eða kærður til lög­reglu af Seðla­bank­anum, og máli vegna þess sé enn ólokið hjá ákæru­valdi eða lög­reglu“.

  9. Skil­mál­unum var þó breytt í des­em­ber 2012 þegar því var bætt inn að þeir aðilar sem liggi undir rök­studdum grun hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans um meint brot mættu ekki heldur taka þátt í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar. Engar tak­mark­anir voru hins vegar á þátt­töku í fjár­fest­ing­ar­leið­inni fyrir aðila sem voru til rann­sóknar eða jafn­vel í ákæru­ferli hjá öðrum emb­ættum en gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans. Þannig gat ein­stak­lingur setið í dóms­sal að morgni þar sem honum var gefið að hafa framið stór­kost­lega efna­hags­glæpi. Síðdegis gat hann tekið þátt í gjald­eyr­is­út­boði Seðla­bank­ans og tryggt sér tug­pró­senta­af­slátt af íslenskum krónum. Um kvöldið gat hann keypt sér íslenskt fyr­ir­tæki fyrir þessar sömu krónur.

  10. Í skýrslu um aflandseignir og skattaund­an­skot Íslend­inga, sem birt var á föstu­dag, er fjallað um fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands og því meðal ann­ars velt upp, hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­magn­inu frá aflandseyj­unum hafi skilað sér Íslands, með geng­is­af­slætti, í gegnum fjár­fest­inga­leið­ina. Orð­rétt seg­ir: „Miðlun upp­lýs­inga um fjár­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­taka í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans er ekki til stað­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­bank­ans þegar um grun­sam­legar fjár­magnstil­færslur er að ræða. Æski­legt má telja að sam­starf væri um miðlun upp­lýs­inga á milli þess­ara stofn­ana.“ Samkvæmt þessu gat því fé sem orðið hafði til vegna skattaund­an­skota kom­ist aftur „heim“ til Íslands í gegnum fjár­fest­inga­leið­ina og eig­endur þess notað hið illa fengna fé til að kaupa eignir hér­lendis með afslætti.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár