Það helsta hingað til: United Silicon verður gjaldþrota og grunur um glæpi

Kjarninn tók saman helstu frétta­mál íslensks sam­fé­lags á fyrsta fjórð­ungi árs­ins 2018. Þar á meðal er gjald­þrot United Silicon og kærur þeirra sem settu fjár­muni í félagið til yfir­valda vegna gruns um stór­felld lög­brot helstu stjórn­enda.

Hvað?

United Silicon, félag utan um rekstur kís­il­málm­verk­smiðju, var sett í gjald­þrot 22. jan­úar síð­ast­lið­inn. Félagið hafði þá verið í greiðslu­stöðvun frá því í ágúst 2017.

Um miðjan febr­úar náð­ist sam­komu­lag milli skipta­stjóra þrota­bús United Silicon og Arion banka um að bank­inn fái að ganga að sínum veðum og taka yfir allar helstu eignir félags­ins.

Hlut­hafar og kröf­u­hafar félags­­­ins hafa þurft að afskrifa stórar upp­­­hæðir vegna United Silicon það sem af er þessu ári. Arion banki hefur til að mynda þegar afskrifað 4,8 millj­­­­arða króna vegna verk­efn­is­ins. Bank­inn tók yfir hlutafé í United Silicon og bók­færir virði eign­anna á 5,4 millj­arða króna. Auk þess eru úti­stand­andi lánslof­orð og ábyrgðir upp á um 900 millj­ónir króna.

Arion banki ábyrgð­ist rekstur United Silicon frá því að félagið var sett í greiðslu­stöðvun og fram að gjald­þroti og borg­aði um 200 millj­­­­ónir króna á mán­uði vegna rekstur þess á því tíma­bili.

En fleiri hafa tapað stórum fjár­hæð­um. Frjálsi líf­eyr­is­­­­sjóð­­­­ur­inn, sem fjár­­­­­­­festi 1.178 millj­­­­ónum króna í United Silicon, hefur fært niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­­­ur­inn á í félag­inu um 90 pró­­­­sent. Um var­úð­­­­ar­n­ið­­­­ur­­­­færslu er að ræða, og nemur hún rúmum millj­­­­arði króna. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­­­launa­­­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­­­manna (EFÍA). Þar nemur nið­­­­ur­­­­færslan einnig 90 pró­­­­sent­­­­um. Líf­eyr­is­­­­sjóð starfs­­­­manna Bún­­­­að­­­­ar­­­­banka Íslands (LSBÍ) fjár­­­­­festir einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­­un­­­­ar­­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­­stöðvum hans í Borg­­­­ar­­­­túni.

Þá setti líf­eyr­is­­­sjóð­­­ur­inn Festa 875 millj­­­ónir króna í United Silicon. Hann hefur einnig fram­­­kvæmt var­úð­­­ar­n­ið­­­ur­­­færslu vegna verk­efn­is­ins.

Af hverju?

Starf­semi kís­il­verk­smiðju United Silicon stöðvuð 1. sept­em­ber í fyrra. eftir að Umhverf­is­­stofnun tók ákvörðun þess efn­­is. Óheim­ilt var að end­­ur­ræsa ofn verk­smiðj­unnar nema með skrif­­legri heim­ild frá stofn­un­inni að loknum full­nægj­andi end­­ur­­bótum og ítar­­legu mati á þeim. Það mat mun, líkt og áður sagði, taka allt að 20 mán­uði.

Í bréfi sem Umhverf­is­­stofnun sendi til for­svar­s­­manna United Silicon föstu­dag­inn 19. jan­úar kom fram að ráð­­ast þurfi í úrbætur sem kosta um þrjá millj­­arða króna áður en að verk­­smiðjan fær að fara í gang að nýju. Í kjöl­farið var tekin ákvörðun um að setja félagið í þrot.

Hver var niðurstaðan?

Nýtt félag verður stofnað um starf­semi kís­il­verk­smiðj­unnar í Helgu­vík. Mark­mið Arion banka er að vinna að úrbótum á verk­smiðj­unni og selja hana eins fljótt og auðið er. Það mun hins vegar taka 18-20 mán­uði að koma verk­smiðju United Silicon í Helgu­vík aftur af stað.

Ljóst er að verk­smiðjan verður ekki ræst að nýju fyrr en að vinnu við gerð nýs umhverf­is­mats verði lokið og sú vinna er talin geta tekið þann tíma.

Sjö til átta alþjóð­legir aðilar hafa áhuga á verk­smiðj­unni en eng­inn þeirra hefur hug á því að taka hana í sundur og flytja ann­að. Um aðila úr alþjóð­lega kís­il­málms­geir­anum er að ræða. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans hafa þeir sent teymi hingað til lands til að ræða við t.d. Lands­virkjun og Umhverf­is­stofnun um stöðu verk­smiðj­unn­ar.

En ýmsir aðrir angar máls­ins eru óhnýttir. Í lið­inni viku lögðu stjórnir þeirra líf­eyr­is­sjóða sem fjár­fest höfðu í United Silicon fram kæru til hér­aðs­sak­sókn­ara þar sem óskað er eftir það að emb­ættið taki til rann­sóknar nokkur alvar­leg til­vik sem grunur leikur á að feli í sér refsi­verð brot af hálfu Magn­úsar Ólafs Garð­ars­son­ar, fyrrum fram­kvæmda­stjóra og stjórn­ar­manns United Silicon hf., og eftir atvikum ann­arra stjórn­enda, stjórn­ar­manna og starfs­manna félags­ins. Áður hafði stjórn United Silicon og Arion banki, stærsti kröfu­hafi félags­ins, sent kærur vegna gruns um refsi­verða hátt­semi Magn­úsar til yfir­valda. Þetta var því þriðja kæran sem berst vegna gruns um brot hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Unitedsilicon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár