Beiðni Stakksbergs frestað á bæjarstjórnarfundi

Bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar frestaði afgreiðslu á beiðni Stakks­bergs um drög að mats­lýs­ingu nýs umhverf­is­mats. Stakks­berg seg­ist fagna því að bæj­ar­stjórn vandi skoðun sína á erind­inu.

Helguvík
Helguvík Mynd: ÍAV

Afgreiðslu var frestað á erindi Stakks­berg ehf. á bæj­ar­stjórn­ar­fundi Reykja­nes­bæjar í gær. Erindið var fyrst tekið fyrir á fundi umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­nes­bæjar í síð­ustu viku en erind­inu var hafnað. Erindið sner­ist um beiðni Stakks­bergs ehf. um að skipu­lags- og mats­lýs­ing félags­ins vegna umbóta á verk­smiðju félags­ins í Helguvík yrði tekin til með­ferðar. Einnig var óskað eftir heim­ild til að vinna að deiliskipu­lags­breyt­ingum í sam­ræmi við ofan­greinda skipu­lags- og mats­lýs­ing­u.

Umhverf­is- og skipu­lags­ráð er hins vegar aðeins ráð­gef­andi og því þurfti bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar að stað­festa nið­ur­stöðu þeirra en sam­kvæmt til­kynn­ingu Stakks­bergs var afgreiðslu erind­is­ins frestað í því skyni að sveit­ar­fé­lagið gæti aflað frek­ari upp­lýs­inga frá Skipu­lags­stofnun, auk þess að vinna nán­ari grein­ingu á mál­inu.

[links]

Í til­kynn­ingu Stakks­berg kemur fram að félagið fagni því að bæj­ar­stjórnin ætli að vanda skoðun sína á erindi félags­ins. Jafn­framt kemur fram að félagið ætli að vinna áfram að mati á umhverf­is­á­hrifum í sam­ræmi við úrbóta­á­ætlun. Félagið ítrekar að það telji rétt að þessir tveir ferlar, fer­ill bæj­ar­stjórnar og fer­ill félags­ins, verði unnir sam­hliða til þess að tryggja aðkomu almenn­ings og hags­muna­að­ila á fyrstu stigum skipu­lags­fer­ils­ins. 

Þórður Ólafur Þórð­ar­son, stjórn­ar­for­maður Stakks­bergs, seg­ist í sam­tali við Kjarnann ekki vita hverjar ástæður þess voru að beiðn­inni var hafnað í umhverfis- og skipu­lags­ráði en hann telur að bæj­ar­stjórn hafi frestað nið­ur­stöð­unni til að geta varpað skýr­ara ljósi á ferlið, bæði mats­á­ætl­un­ina og rétt­ar­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins.

[adspot]

Nauðsynlegar úrbætur á verksmiðju

Stakks­berg ehf. er nýr eig­andi kís­il­vers­ins í Helgu­vík. Félagið er í eigu Arion banka sem tekið hefur yfir kís­il­verk­smiðj­una í Helgu­vík af þrota­búi United Sil­icon ehf. Umhverf­is­stofnun komst að þeirri nið­ur­stöðu í jan­úar síð­ast­liðnum að verk­smiðjan í Helguvík upp­fyllti ekki skil­yrði fyrir starfs­leyfi. Í til­kynn­ingu frá félag­inu kom fram að mark­mið Stakks­berg væri að gera allar þær úrbætur sem nauð­syn­legar væru til að upp­fylla kröfur Umhverf­is­stofn­unar.

Kís­il­verið í Helguvík er fyrsta kís­­il­­málm­­verk­­smiðjan sem hefur verið gang­­sett á Íslandi. En fyrsti ljós­boga­ofn­inn í verk­smiðj­unni fór af stað 13. nóv­­em­ber 2016. Fljót­­lega fór að bera á mik­illi óánægju hjá íbúum í Reykja­­nesbæ með mengun frá verk­smiðj­unn­i. Margir fundu fyrir tölu­verðum lík­­am­­legum ein­­kennum vegna þessa og voru meðal ann­ars haldnir fundir þar sem fólk deildi sögum sínum og kvart­aði undan meng­un­inn­i.

Í apríl 2017 til­­kynnti Umhverf­is­­stofnun for­svar­s­­mönn­um United Sil­icon að ekki yrði hjá því kom­ist að loka verk­smiðj­unni vegna meng­unar sem frá henni streymdi. Í kjöl­farið voru veittir frestir en starf­­semin var end­an­­lega stöðvuð 1. sept­­em­ber 2017 og fram­­leiðsla hefur legið niðri síð­­­an. Eins og fram kemur hér að ofan er Stakks­berg nýr eig­andi vers­ins.

Hver er staðan á umhverfismatinu?

Í sumar aug­lýsti Stakks­berg drög að til­lögu að skipu­lag- og mats­lýs­ingu vegna nýs umhverf­is­mats kís­il­verk­smiðj­unn­ar. Í mats­lýs­ingu til­greinir félagið þá þætti sem meta skal í umhverf­is­mat­inu. Mats­lýs­ingu er sem sagt byrj­unin á umhverf­is­mats­ferl­inu.

Stakks­berg birti drög að mats­lýs­ing­unni í júní síð­ast­liðnum og fékk þá yfir 112 athuga­semdir frá almenn­ingi og ýmsum stofn­unum. Samkvæmt Stakks­berg var síðan unnið úr þeim athuga­semdum og bætt mats­á­ætlun var send til Skipu­lags­stofn­unar en Skipu­lags­stofnun sinnir stefnu­mótun, stjórn­sýslu og leið­bein­ingum um skipu­lag og fram­kvæmdir með sjálf­bæra nýt­ingu auð­linda að leið­ar­ljósi. Nið­ur­staða Skipu­lags­stofn­unar liggur ekki fyrir en aðspurður telur Þórður Ólafur að nið­ur­staðan muni liggja fyrir bráð­lega.

Ef mats­lýs­ingin er síðan sam­þykkt á bæj­ar­stjórn­ar­fundi þá fer hið eig­in­lega umhverf­is­mat af stað. Í umhverf­is­mat­inu er farið efn­is­lega ofan í þá þætti sem til­greindir voru í mats­á­ætl­un­inni. Sú skýrsla er síðan birt opin­ber­lega en Þórður Ólafur segir í sam­tali við Kjarnann að búast megi við þeirri skýrslu í byrjun árs, ef allt gengur eftir. Hann segir jafn­framt að á því stigi geti almenn­ingur komið með athuga­semdir við umhverf­is­matið og í fram­hald­inu verði matið aðlagað að athuga­semdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Unitedsilicon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár