Stjórnir fimm lífeyrissjóða hafa lagt fram kæru til héraðssaksóknara þar sem óskað er eftir það að embættið taki til rannsóknar nokkur alvarleg tilvik sem grunur leikur á að feli í sér refsiverð brot af hálfu Magnúsar Ólafs Garðarssonar, fyrrum framkvæmdastjóra og stjórnarmanns United Silicon hf., og eftir atvikum annarra stjórnenda, stjórnarmanna og starfsmanna félagsins. Áður hafði stjórn United Silicon og Arion banki, stærsti kröfuhafi félagsins, sent kærur vegna gruns um refsiverða háttsemi Magnúsar til yfirvalda. Þetta er því þriðja kæran sem berst vegna gruns um brot hans.
[links]Sjóðirnir sem um ræðir eru Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Festa, Eftirlaunasjóður íslenskra atvinnuflugmanna, Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands og Brú-lífeyrissjóður.
Í tilkynningu frá sjóðunum segir: „Kærendur telja að blekkingum hafi verið beitt og átt hafi verið við áætlanir og upplýsingar í þeim tilgangi að fegra stöðu félagsins og leyna þeim kerfisbundnu auðgunarbrotum sem virðast hafa verið stunduð í skjóli félagsins. Ítarlegar athuganir á bókhaldi félagsins bendi til þessa. Grunur sé um skjalafals, fjársvik í tengslum við kaup á búnaði, innheimtu tilhæfulausra reikninga og misnotkun á fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands. Þá telja kærendur að í ljósi þess sem nú er komið fram að rannsaka þurfi hvort fjármunir félagsins United Silicon hf. hafi mögulega verið nýttir, með ólögmætum hætti, til að fjármagna aðkomu Magnúsar Garðarssonar, eða aðila honum tengdum, að verkefninu.“
Hægt er að lesa kæruna í heild sinni hér.
[adspot]Kæran er lögð fram að fenginni niðurstöðu lögfræðiálits Stefáns Árna Auðólfssonar, lögmanns hjá LMB Mandat, um stöðu sjóðanna vegna fjárfestinga sem tapast við gjaldþrot United Silicon. sjóðirnir óskuðu eftir lögfræðiálitinu til þess að fá úr því skorið til hvaða aðgerða sjóðirnir gætu gripið til að verja hagsmuni sjóðfélaga. „Með kærunni er leitað atbeina embættis héraðssaksóknara vegna hagsmuna þessara aðila í tengslum við lögreglurannsókn á meintu misferli í rekstri félagsins United Silicon hf. Kæran fylgir í kjölfar kæru félagsins sjálfs og Arion banka á hendur framkvæmdastjóranum. Sjóðirnir telja að möguleg brot hans snúi að hluta til með öðrum hætti að hagsmunum þeirra en félagsins sjálfs og bankans. Kærendur telja einnig að þeir hafi sjálfstæða hagsmuni af því að kæra hin grunuðu brot.“
Í kærunni er bent á að forsvarsmenn kísilverksmiðjunnar hafi sóst eftir verulegu fjármagni frá kærendum auk þess sem miklir almannahagsmunir hafi verið tengdir uppbyggingunni í Helguvík. „Svo virðist sem fyrrum stjórnarmenn, sem flestir voru tengdir fyrrverandi framkvæmdastjóra, sem og nánustu samstarfsmenn, hafi lítið sinnt athafna- og aðgæsluskyldum sínum svo sem hvað varðar aðskilnað starfa og uppáskrift reikninga.“
Í kærunni segir að miðað við framkomnar upplýsingar þá virðist sem stjórn United Silicon hafi „falið Magnúsi Ólafi Garðarssyni nær ótakmarkað umboð til að ráðstafa fjármunum og til að skuldbinda félagið. Því verður að fara fram á rannsókn á þeim þætti málsins.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir