Stjórnmálaleg fyrirgreiðsla, meintur fjárdráttur, milljarðar tapaðir og gjaldþrot

Millj­arðar hafa tap­ast vegna United Silicon, sem var sett í þrot á mánu­dag. Stjórn­mála­menn, bæði í rík­is­stjórn og á sveit­ar­stjórn­ar­stigi, lögðu sig mjög fram um að greiða fyrir því að verk­smiðja félags­ins yrði að veru­leika.

Forsvarsmenn United Silicon og þáverandi ráðherrar í ríkisstjórn taka skóflustungu að verksmiðju félagsins í ágúst 2014.
For­svars­menn United Silicon og þáver­andi ráð­herrar í rík­is­stjórn taka skóflustungu að verk­smiðju félags­ins í ágúst 2014. Mynd: stjornarrad.is


„Upp­bygg­ing kís­il­vers­ins í Helguvík er dæmi um gríð­ar­lega seiglu þeirra sem að stóðu. Með því að neita að gef­ast upp, finna lausnir á erf­iðum tímum, hefur loks mark­mið­inu verið náð. Orku­samn­ingar eru frá­gengnir, fjár­mögnun er til­búin og bygg­ing­ar­fram­kvæmdir sem skapa hund­ruðum manna atvinnu eru að hefj­ast. Í kjöl­farið hefst síðan fram­leiðsla þar sem á þriðja hund­rað manns munu hafa vel launuð störf.“

[links]Svona hófst grein sem Árni Sig­fús­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ, skrif­aði í stað­ar­blaðið Vík­ur­fréttir 31. ágúst 2014. Tilefnið var að nokkrum dögum áður hafði verið tekin skóflustunga að kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helguvík. Þremur árum síðar var rekstur verk­smiðj­unnar stöðv­aður og á mánu­dag var United Silicon gefið upp til gjald­þrota­skipta.

Stóðu með Magnúsi á erfiðum tímum

Árni hélt áfram og sagði það hafa verið „ákvörðun okkar sem stýrðum bæj­ar­fé­lag­inu að standa með upp­hafs­mönnum verk­efn­is­ins, Magnúsi Garð­ars­syni og félögum, í gegnum ýmsa erf­ið­leika. Þar fór maður sem leit­aði lausna þegar erlend fyr­ir­tæki helt­ust ítrekað úr lest­inni, fann nýja sam­starfs­að­ila og hélt áfram. Það var úrslita­at­riði að við stjórn­endur bæj­ar­ins gæfum honum það svig­rúm sem hann þurfti þegar allt virt­ist vera að slitna, til að ná endum saman, standa með honum á erf­iðum tímum. Seigla og þol­in­mæði beggja aðila hefur nú skilað árangri.“

[adspot]Á meðal þeirra sem tóku skóflustung­una að verk­smiðju United Silicon voru áður­nefndur Magnús Garð­ars­son, þá for­stjóri United Silicon, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, og Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, þá iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra. Við það til­efni sagði Ragn­heiður Elín að þetta væri stór dagur fyrir Suð­ur­nesja­menn og Íslend­inga alla. „Þetta er fyrsta stóra verk­efnið af þessu tagi eftir hrun. Við erum von­andi að sjá þetta sem tákn­mynd þess að hjólin eru farin að snú­ast aftur í rétta átt.“

Í við­tali við Vík­ur­fréttir sagði hún: „Það er búið að und­ir­búa þetta svæði vel af hálfu bæj­ar­yf­ir­valda í Reykja­nesbæ, og það er á engan hallað þegar ég vil nefna Árna Sig­fús­son sér­stak­lega í því efni.“

Fjárfestingasamningur um skattaafslætti

Nokkrum mán­uðum áður, í apríl 2014, hafði Ragn­heiður Elín gert fjár­fest­ing­ar­samn­ing við United Silicon sem í fólst m.a. að félagið þurfti ein­ungis að greiða 15 pró­sent tekju­skatt og fékk 50 pró­sent afslátt af almennu trygg­inga­gjaldi í tíu ár frá því að gjald­skylda myndi mynd­ast en að hámarki í 13 ár frá því samn­ing­ur­inn tæki gildi. Að auki veitti Reykja­nes­bær verk­efn­inu ákveðnar íviln­anir til jafn langs tíma. Á árunum 2015 og 2016 fékk United Silicon um 30 millj­ónir króna í rík­is­að­stoð á grund­velli samn­ings­ins.

[box]Þremur árum eftir að skóflustungan var tekin var United Silicon komið í greiðslu­stöðvun. Tæpt ár var þá frá því að kveikt var á verk­smiðj­unni. Þann 1. sept­em­ber 2017 var starf­semi hennar stöðvuð. Og á mánu­dag, þremur árum og tæpum fimm mán­uðum eftir skóflustung­una, og rétt rúmu ári eftir að verk­smiðja United Silicon var gagn­sett, var félagið gefið upp til gjald­þrota­skipta.

Nú standa þau yfir­gefin hlið við hlið í Helguvík, álverið sem aldrei varð og gjald­þrota verk­smiðjan sem meng­andi svo mikið að hún fékk ekki að starfa. Og hvor­ugt verk­efnið er að skapa störf né tekjur fyrir sam­fé­lagið.

Skuldaklafa hlaðið á Reykjanesbæ

Það eru ansi margir sem sitja eftir með sárt ennið vegna United Silicon verk­efn­is­ins. Þar ber fyrst að nefna Reykja­nesbæ. en United Silicon skuldar sveit­ar­fé­lag­inu um 200 millj­ónir króna í ógreidd gjöld. Auk þess gekkst það í ábyrgð fyrir millj­arða króna upp­bygg­ingu hafnar í Helguvík sem átti að þjón­usta stór­iðju.

Sú áætlun fór ekki alveg eins og upp var lagt. Ekkert varð af álveri Norð­ur­áls á svæð­inu, United Silicon náði ekki að starfa í eitt ár. Þriðja verk­efnið, kís­il­málm­verk­smiðja Thorsil, mun í fyrsta lagi hefja fram­leiðslu árið 2020. Höfnin, sem Reykja­nes­bær gekkst í ábyrgð upp á marga millj­arða króna fyrir, hefur því aldrei skilað þeim tekjum sem hún­ átti að gera og hvorki Reykja­nes­höfn né Reykja­nes­bær hafa ráðið við afborg­anir af lánum vegna hennar.

Þess í stað end­aði Reykja­nes­bær sem eitt skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins og rekstur árum saman var af­leit­ur. Á tíma­bil­inu 2003 til 2014, á meðan að Árni Sig­fús­son var bæj­ar­stjóri, var A-hluti Reykja­nes­bæjar rek­inn í tapi öll árin utan eins, það var árið 2010.

Vegna þess­arar stöðu þurfti sveit­ar­fé­lagið að leggja auknar skatt­byrðar á íbúa sína til að laga hina afleitu fjár­hags­stöðu. Og stór hluti þeirra skulda sem þurfti að semja um voru vegna lána sem tekin voru vegna upp­bygg­ingu hafn­ar­innar í Helguvík.

Fyrir utan þær fjár­hags­legu byrðar sem lagðar hafa verið á íbúa Reykja­nes­bæjar þá voru lífs­gæði þeirra veru­lega skert á þeim skamma tíma sem verk­smiðja United Silicon var starf­rækt. Íbúarnir kvört­uðu nær linnu­lítið undan mengu, enda verk­smiðjan stað­sett mjög nálægt byggð, auk þess sem það kvikn­aði í verk­smiðj­unni.

Banki að hluta í eigu ríkis og lífeyrissjóðir tapa milljörðum

Hlut­hafar og kröf­u­hafar United Silicon hafa líka tapað miklu. Þeir hafa þurft að afskrifa stórar upp­­hæðir vegna verk­smiðj­unnar. Arion banki hefur til að mynda þegar afskrifað 4,8 millj­­­arða króna vegna verk­efn­is­ins. Bank­inn tók að mestu yfir hlutafé en úti­stand­andi skuld­bind­ingar nema ennþá 5,4 millj­­­örð­um, sam­­­kvæmt síð­­­asta birta upp­­­­­gjöri bank­ans. Arion banki ábyrgð­ist auk þess rekst­­­ur­inn á greiðslu­­­stöðv­­­un­­­ar­­­tím­­­anum en hann hefur borgað um 200 millj­­­ónir króna á mán­uði vegna hans, frá því greiðslu­­­stöðv­­­un­­­ar­­­tím­inn hófst í ágúst og þar til að United Silicon var sett í þrot á mánu­dag. Íslenska ríkið á þrettán pró­sent hlut í Arion banka.

[adspot]Frjálsi líf­eyr­is­­­sjóð­­­ur­inn, sem fjár­­­­­festi 1.178 millj­­­ónum króna í United Silicon, hefur færð niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­­ur­inn á í fyr­ir­tæk­inu um 90 pró­­­sent. Um var­úð­­­ar­n­ið­­­ur­­­færslu var að ræða, og nemur hún rúmum millj­­­arði króna. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­­launa­­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­­manna (EFÍA). Þar nam nið­­­ur­­­færslan einnig 90 pró­­­sent­­­um. Líf­eyr­is­­­sjóð starfs­­­manna Bún­­­að­­­ar­­­banka Íslands (LSBÍ) fjár­­­festir einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­un­­­ar­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­stöðvum hans í Borg­­­ar­­­túni.

Þá setti líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn Festa 875 millj­­ónir króna í United Silicon. Hann hefur einnig fram­­kvæmt var­úð­­ar­n­ið­­ur­­færslu vegna verk­efn­is­ins.

Frétta­skýr­ingin birt­ist fyrst í Mannlífi sem kom út 26. jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Unitedsilicon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár