Landsvirkjun: Öll skilyrði voru uppfyllt af bakhjörlum United Silicon

Kjarninn sendi spurn­ingar til Lands­virkj­unar til að fá betri upp­lýs­ingar um það, hvernig á því stóð að engar við­vör­un­ar­bjöllur fóru í gangi áður en United Silicon hóf starf­semi. Félagið fór í þrot og grunur leikur á umfangs­miklum lög­brotum.

Samkvæmt gögnum sem Lands­virkjun fékk inn á borð sitt, vegna upp­bygg­ingar United Silicon í Helguvík, áttu bak­hjarlar og eig­endur verk­efn­is­ins að vera trausts­ins verðir.

Á þeim grunni var ákveðið að semja við þá um orku­kaup.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í svörum Lands­virkj­unar við fyr­ir­spurnum Kjarnans, en eins og kunn­ugt er fór United Silicon verk­efnið ekki eins og lagt var upp með, og er það nú í gjald­þrota­með­ferð. Arion banki og Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn töp­uðu millj­örðum á þrot­inu, en ekki eru öll kurl komin til grafar enn og dóms­mál hafa ekki verið til lykta leidd.

Þau bein­ast meðal ann­ars að Magnúsi Garð­ars­syni, sem var for­stjóri og for­svars­maður United Silicon.

Lýstar kröfur í búið námu 23,5 millj­örðum króna, að því er Geir Gestsson hrl. greindi mbl.is frá í ágúst síð­ast­liðnum. Stærsti kröfu­haf­inn var Arion banki með 9,5 millj­arða kröfu.

Spurt og svarað

Fyr­ir­spurnir Kjarnans til Lands­virkj­unar mið­uðu að því að fá betur fram á hvaða for­sendum Lands­virkjun samdi um orku­við­skipti við United Silicon og hvort eitt­hvað hafi bent til þess, í skoðun á þessum fram­tíð­ar­við­skiptum, að þau gætu ekki reynst trausts­ins verður þegar upp var staðið.

Almenn­ingur á mikið undir vegna við­skipta af þessu tagi, enda Lands­virkjun að fullu í eigu rík­is­ins og raf­orku­við­skipti til ára­tuga því mik­il­væg í því ljósi. Fyr­ir­tækið er lang­sam­lega stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins með heild­ar­eignir upp á 549 millj­arða króna, miðað við lok árs í fyrra, og eigin fé upp á rúm­lega 250 millj­arða.

Lands­virkjun var ekki til­búin að upp­lýsa um virði orku­sölu­samn­ings, og ber fyrir sig trún­aði í svörum til Kjarnans. Þá segir í svör­unum að öll skil­yrði hafi verið upp­fyllt.

Hversu mikið tjón er af þessu fyrir Lands­virkjun, sé tekið til­lit til orku­samn­ings vegna þess

„Við­skipta­vinir Lands­virkj­unar leggja almennt fram ábyrgðir vegna við­skipta sem ætlað er að koma í veg fyrir fjár­hags­legt tjón vegna mögu­legra van­efnda. Slíkar ábyrgðir voru fyrir hendi. Und­an­farið hefur verið mikil eft­ir­spurn eftir því að kaupa raf­magn af Lands­virkjun. Því hefur Lands­virkjun getað selt ork­una sem ann­ars hefði farið til kís­il­vers­ins.“

Hver er heild­ar­fjár­fest­ing Lands­virkj­unar vegna United Silicon? Var hún ein­hver? Og hvert er upp­reiknað virði orku­sölu­samn­ings til fyr­ir­tæk­is­ins?

„Lands­virkjun þurfti ekki að fara út í sér­staka fjár­fest­ingu vegna raf­magns­samn­ings við USi. Um var að ræða raf­magn sem þegar var til í kerf­inu. Varðandi beiðni um upp­lýs­ingar um verð eða verð­mæti samn­inga að þá eru slíkar upp­lýs­ingar bundnar trún­aði.“

Og hvernig fór mat Lands­virkj­unar á áreið­an­leika þessa kúnna fram? Hringdi engum bjöllum við skoðun á honum? Hvernig á því stóð að Magnús Garð­ars­son komst í gegnum nál­ar­augað með United Silicon, sem mögu­legur orku­kaup­andi til ára­tuga?

„Af hálfu Lands­virkj­unar er í hverju til­felli lagt mat á við­skipta­vin og þann markað sem hann starfar á áður en samn­ingar eru gerðir. Þar að auki eru gerðar kröfur um að við­skipta­vinur upp­fylli fjölda skil­yrða, þ.m.t. geti lagt fram yfir­lýs­ingar frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum um að fjár­mögnun sé tryggð, hafi útvegað öll til­skilin opin­ber leyfi, farið í gegnum umhverf­is­mat og svo mætti lengi telja. Jafn­framt eru gerðar kröfur um að við­skipta­vinur leggi fram trú­verð­uga við­skipta­á­ætlun. Að lokum er gerð krafa um að við­skipta­vinir leggi fram traustar ábyrgðir. Allt er þetta gert í þeim til­gangi að tryggja áreið­an­leika við­skipta­vina og fram­gang þeirra verk­efna sem þeir standa að. Samkvæmt þeim gögnum sem USi og for­svars­menn þeirra lögðu fram voru öll skil­yrði upp­fyllt.

Erlendir sér­fræð­ingar sem Lands­virkjun hefur lengi unnið með eru þeirrar skoð­unar að rekstur kís­il­vera á Íslandi sé mjög sam­keppn­is­hæfur í alþjóð­legu sam­hengi og raun sé hag­kvæmara að reka kís­il­ver á Íslandi en á mörgum öðrum stöðum. Sú grein­ing var í sam­ræmi við við­skipta­á­ætlun USi,“ segir í svari Lands­virkj­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár