Búist við því að nokkur þúsund manns missi vinnuna hjá Icelandair

Formaður FÍA segir að við­búið sé að um 90 pró­sent starfs­manna Icelandair verði sagt upp í vik­unni. Í fyrra störf­uðu 4.715 að með­al­tali hjá félag­inu. Formaður efna­hags- og við­skipta­nefndar segir vill að ríkið taki þátt í að fjár­magna upp­sagn­ar­fresti.

Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, segir að það sé skyn­sam­legt að íslenska ríkið taki þátt í að fjár­magna upp­sagn­ar­frest starfs­manna Icelandair Group. Þetta kemur fram í sam­tali við hann í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir hann þó að það komi ekki til greina að ríkið ger­ist hlut­hafi í Icelandair Group, en að það megi hugsa sér að rík­is­sjóður veiti víkj­andi lán til félags­ins, sam­hliða því að hlut­hafar þess og lána­drottnar komi „að borð­inu sömu­leiðis.“

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, lýstu því báðir yfir í gær í þætt­inum Víg­lín­unni á Stöð 2 að stjórn­völd ættu að hafa frum­kvæði að því að lýsa því yfir að þau muni koma Icelandair til aðstoðar.

Jón Þór Þor­valds­son, for­maður Félags íslenska atvinnu­flug­manna (FÍA), sagði við RÚV í gær að við­búið sé að um 90 pró­sent af starfs­mönnum Icelandair Group missi vinn­una. Fjöldi stöðu­gildi hjá Icelandair Group var að með­al­tali 4.715 á árinu 2019.

[adspot]Búið er að greina stétt­ar­fé­lögum starfs­manna Icelandair Group frá umfangi upp­sagna en þeir eru bundnir trún­aði um þær. Félagið er enda skráð á markað og allar upp­lýs­ingar um rekstur þess geta haft mikil áhrif á gengi bréfa.

Það hefur verið í frjálsu falli og fór niður í 2,5 krónur á hlut sem þýddi að mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins var þá komið í um 13,6 millj­arðar króna. Verðið á hlut í Icelandair hefur ekki verið lægra síðan á árinu 2009. Hæst reis hluta­bréf í Icelandair Group í apríl 2016 og fór þá í 191,5 millj­­­arð króna.

Von á fjöldauppsögnum í þessari viku

Icelandair Group er sem stendur að fljúga um fimm pró­sent af ætl­aðri flug­á­ætlun sinni og hratt gengur á eigið fé félags­ins þar sem það greiðir enn hluta af launum þeirra starfs­manna sem eru á hluta­bóta­leið­inni. Fyrir liggur að ef Icelandair Group segir upp nokkur þús­und starfs­mönnum og lítið eða ekk­ert rofar til í tekju­öflun félags­ins næstu mán­uði, að það verði í erf­ið­leikum með að greiða upp upp­sagn­ar­frest allra og eiga enn nægt laust fé til að fara ekki undir það við­mið sem félags­ins starfar eftir, en stefna þess hefur verið sú að þessi staða fari ekki undir 200 millj­­­ónir Banda­­­ríkja­dala á hverjum tíma.

[links]Icelandair Group sagði upp 240 manns fyrir skemmstu og 92 pró­­sent eft­ir­stand­andi starfs­­manna þess voru fluttir í hluta­­bóta­úr­ræði stjórn­­­valda, þar sem allt að 75 pró­­sent af greiddum launum koma úr rík­­is­­sjóði.

Á mið­viku­dag sendi félagið frá sér til­kynn­ingu þar sem kom fram að það myndi segja upp fleira fólki og breyta skipu­lagi félags­­ins í þessum mán­uði. Því er ljóst að greint verður frá umfangi upp­sagn­anna í þess­ari viku.

Fyrr í þessum mán­uði var greint frá því að stjórn­­endur Icelandair væru nú að leita leiða til að ­­styrkja fjár­­­hag félags­­­ins til lengri tíma. Félagið réð Kviku banka, Íslands­­­­­banka og Lands­­­bank­ann sem ráð­gjafa til að hefja skoðun á mög­u­­­legum leiðum til að ná því mark­miði. Þá var greint frá því að stjórn­­­endur Icelandair myndu vinna náið með íslenskum stjórn­­­völdum í því ferli.

Icelandair Group til­kynnti svo í þar síð­ustu viku að félagið ætli að ráð­­ast í hluta­fjár­­út­­­boð á næst­unni og sækja með því aukið rekstr­­arfé til hlut­hafa sinna. Stjórn­völd hafa enn ekki boðað neina beina aðkomu sína að þessum björg­un­ar­að­gerðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár