Icelandair hrynur í verði og stærsti eigandinn selur

Staða Icelandair, sem nú flýgur um fimm pró­sent af boð­aðri flug­á­ætlun, heldur áfram að versna á hverjum degi. Framundan er hluta­fjár­aukn­ing þar sem félagið ætlar að sækja fé til núver­andi hlut­hafa. Virði bréfa félags­ins nálg­ast nú sögu­legt lág­mark.

Gengi bréfa í Icelandair Group hrundi í verði í fyrstu við­skiptum í morgun, eða um 17,24 pró­sent. Það fór þá niður í 2,4 krónur á hlut sem þýddi að mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins var þá komið í um 13 millj­arðar króna. Það hefur jafnað sig aðeins og er nú 2,55 krónur á hlut, en nálg­ast hratt lægsta gengi sitt frá upp­hafi, sem var 1,9 krónur á hlut í októ­ber 2009.

Hæst reis hluta­bréf í Icelandair Group í apríl 2016 og fór þá í 191,5 millj­­arð króna.

Nokkrar ástæður gætu verið fyrir þess­ari snöggu dýfu í morgun.

Á mið­viku­dag sendi félagið frá sér til­kynn­ingu þar sem kom fram að það myndi segja upp fleira fólki og breyta skipu­lagi félags­ins í þessum mán­uði. Mikil óvissa ríki um flug og ferða­þjón­ustu næstu miss­er­in, hvenær ferða­tak­mörk­unum verði aflétt og hvenær eft­ir­spurn muni taka við sér á ný. „Til að bregð­ast við áfram­hald­andi óvissu, búa stjórn­endur Icelandair Group félagið undir órætt tíma­bil þar sem starf­semi þess verður í lág­marki en sem stendur eru ein­ungis örfá flug í viku í áætlun félags­ins,“ sagði í til­kynn­ing­unni.

[adspot]Bogi Níls Bogason, for­stjóri Icelandair Group, mætti í við­töl í gær þar sem hann ítrek­aði þessi skila­boð. Í sam­tali við RÚV sagði hann: „Við erum í dag að fljúga um fimm pró­sent af okkar flug­á­ætlun og við vitum ekki hversu lengi þetta ástand varir, hvort þetta verði þrír, sex eða níu mán­uðir. Þannig að við erum bara að búa okkur undir þetta óvissu­tíma­bil og þennan mikla tekju­brest sem við þurfum að bregð­ast við með því að lækka kostn­að­inn til að kom­ast í gegnum þetta og vera í sterkri stöðu þegar eft­ir­spurnin fer að vakna aftur.“ Óhjá­kvæmi­legt væri að mikið yrði um upp­sagnir í þessum mán­uði.

Stærsti hluthafinn selur

Hin ástæðan fyrir verð­fall­inu gæti verið sú að í morgun greindi Frétta­blaðið frá því að stærsti ein­staki hlut­hafi Icelandair Group, ­­banda­ríski fjár­­­fest­ing­­ar­­sjóð­­ur­inn PAR Capital Mana­gement, hefði selt lítið brot af eign sinni í félag­inu, eða 0,2 pró­sent hlut. PAR Capital keypti sig inn í Icelandair í apríl í fyrra í hluta­fjár­­aukn­ingu sem þá var fram­­kvæmd. Sjóð­­ur­inn greiddi þá á 5,6 millj­­arða króna fyrir 11,5 pró­­sent hlut en á nú 13,5 pró­­sent. Þetta er í fyrsta sinn sem PAR Capital selur í Icelandair frá því að sjóð­ur­inn keypti í félag­inu.

Fyrr í þessum mán­uði var greint frá því að stjórn­­endur Icelandair væru nú að leita leiða til að ­­styrkja fjár­­­hag félags­­­ins með því að styrkja hann til lengri tíma. Félagið réð Kviku banka, Íslands­­­­­banka og Lands­­­bank­ann sem ráð­gjafa til að hefja skoðun á mög­u­­­legum leiðum til að ná því mark­miði. Þá var greint frá því að stjórn­­­endur Icelandair myndu vinna náið með íslenskum stjórn­­­völdum í því ferli.

Icelandair Group til­kynnti svo í síð­ustu viku að félagið ætli að ráð­­ast í hluta­fjár­­út­­­boð á næst­unni og sækja með því aukið rekstr­­arfé til hlut­hafa sinna.

Í ljósi þess að búið er að til­kynna um það að Icelandair ætli sér að sækja meira fé til hlut­hafa þá vekur það athygli að stærsti hlut­haf­inn sé að selja hluti í félag­inu. Virði Icelandair hefur fallið um tæp­lega 70 pró­sent það sem af er þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár