Icelandair boðar frekari uppsagnir

For­stjóri Icelandair segir að félagið þurfi að aðlaga starf­semi sína að þeim veru­leika sem blasir við.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Skjáskot

Icelandair Group mun segja upp fleira fólki og breyta skipu­lagi félags­ins í þessum mán­uði. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar kemur fram að mikil óvissa ríki um flug og ferða­þjón­ustu næstu miss­erin, hvenær ferða­tak­mörk­unum verði aflétt og hvenær eft­ir­spurn muni taka við sér á ný. „Til að bregð­ast við áfram­hald­andi óvissu, búa stjórn­endur Icelandair Group félagið undir órætt tíma­bil þar sem starf­semi þess verður í lág­marki en sem stendur eru ein­ungis örfá flug í viku í áætlun félags­ins.“

Þar er haft eftir Boga Nils Bogasyni, for­stjóra Icelandair, að það þurfi að aðlaga starf­semi Icelandair Group að þeim veru­leika sem blasir við. „Það er gríð­ar­leg óvissa framundan og því miður eru upp­sagnir starfs­fólks óum­flýj­an­legar til að kom­ast í gegnum þetta krefj­andi tíma­bil. Við leggjum áherslu á að tryggja grunn­starf­semi félags­ins til að geta kom­ist hratt af stað aftur og von­umst auð­vitað til að geta boðið stærstum hluta þeirra starfs­manna sem um ræðir vinnu aftur um leið og aðstæður batna. Einn af helstu styrk­leikum félags­ins er sveigj­an­leiki til að bregð­ast hratt við breyt­ingum á mark­aði og við ætlum okkur að vera til­búin til að sækja fram af miklum krafti þegar tæki­færin gef­ast á ný.“

Ætla í hlutafjárútboð til að bjarga sér

Icelandair Group til­kynnti í síð­ustu viku að félagið ætli að ráð­ast í hluta­fjár­út­boð á næst­unni og sækja með því aukið rekstr­arfé til hluta­hafa sinna.

Stærsti ein­staki hlut­hafi Icelandair Group er ­banda­ríski fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn PAR Capi­tal Mana­gement, sem keypti sig inn í félagið í apríl í fyrra í hluta­fjár­aukn­ingu sem þá var fram­kvæmd. Sjóð­ur­inn greiddi þá á 5,6 millj­arða króna fyrir 11,5 pró­sent hlut en á nú 13,7 pró­sent. Næst stærsti eig­and­inn er Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna með 11,8 pró­sent hlut og þar á eftir koma líf­eyr­is­sjóð­irnir Gildi (7,24 pró­sent) og Birta (7,1 pró­sent). Alls eiga íslenskir líf­eyr­is­sjóðir að minnsta kosti 43,6 pró­sent í Icelandair Group með beinum hætti, en mögu­lega eiga þeir einnig meira með óbeinum hætti í gegnum nokkra fjár­fest­inga­sjóði sem eiga einnig stóran hlut í félag­inu. Þessir líf­eyr­is­sjóðir munu þurfa að leggja fram aukið hlutafé eða verða þynntir út í boð­uðu hluta­fjár­út­boði.

Hluta­bréf í frjálsu falli og gengur hratt á laust fé

Hluta­bréf í Icelandair hafa verið í frjálsu falli það sem af er ári og sem stendur er þorri flug­flota félags­ins ekki í notk­un. Alls hafa bréfin tapað 59 pró­sent af verð­gildi sínu á árinu. Mark­aðsvirði félags­ins er nú um 15,8 millj­arðar króna. Í byrjun mars fór það undir 30 millj­arða í fyrsta sinn síðan í mars 2012. Það hefur því næstum helm­ing­ast á nokkrum vikum. Hæst reis það í apríl 2016 og fór þá í 191,5 millj­arð króna. ­Síðan þá hefur mark­aðsvirði íslenska flug­fé­lags­ins lækkað um 176 millj­arða króna.

Fyr­ir­tækið sagði upp 240 manns fyrir skemmstu og 92 pró­sent eft­ir­stand­andi starfs­manna þess voru fluttir í hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda, þar sem allt að 75 pró­sent af greiddum launum koma úr rík­is­sjóði.

Fyrr í þessum mán­uði var greint frá því að stjórn­endur Icelandair væru nú að leita leiða til að ­styrkja fjár­­hag félags­­ins með því að styrkja hann til lengri tíma. Félagið réð Kviku banka, Íslands­­­banka og Lands­­bank­ann sem ráð­gjafa til að hefja skoðun á mög­u­­legum leiðum til að ná því mark­miði. Þá var greint frá því að stjórn­­endur Icelandair myndu vinna náið með íslenskum stjórn­­völdum í því ferli. Boðuð hluta­fjár­aukn­ing er meðal ann­ars afleið­ing af þeirri vinn­u.

Í til­kynn­ingu sem send var út vegna þessa í byrjun apríl sagði að lausa­fjár­staða Icelanda­ir, að með­­­töldum óádregnum lána­lín­um, væri þó enn vel yfir því við­miði sem félagið starfar eftir en stefna þess hefur verið sú að þessi staða fari ekki undir 29 millj­­arða króna á núver­andi gengi, eða 200 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala, á hverjum tíma. „Eins og til­­kynnt hefur verið um, hefur félagið gripið til ýmissa aðgerða til þess að verja lausa­­fjár­­­stöðu sína á und­an­­förnum vik­­um. Hins veg­­ar, ef miðað er við lág­­marks­­tekju­flæði hjá félag­inu í apríl og maí, er ljóst að lausa­­fjár­­­staða félags­­ins muni skerð­­ast og fara undir ofan­­greint við­mið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár