Ferðaþjónustan þarf að geta lagst í híði

Ef ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki fá ekki meiri aðstoð „erum við að taka ákvörðun um að fórna hér lífs­kjörum fólks inn í fram­tíð­ina,“ segir fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Gjald­þrota­eld­ur­inn brenni upp fjár­fest­ingar, þekk­ingu og reynslu.

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar.

Ferða­þjón­ustan, sem hefur staðið undir bættum lífs­kjörum á Íslandi síð­asta ára­tug, þarf núna aðstoð svo að hún geti kom­ist út úr yfir­stand­andi hremm­ingum sem atvinnu­grein, „það er að segja að við höldum lífi í þeirri atvinnu­grein sem við höfum byggt upp,“ sagði Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar í Silfrinu á RÚV í morgun.

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki hafa mörg hver nýtt sér hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu, lækkað starfs­hlut­fall starfs­fólks­ins í stað þess að segja því upp. Um 20% þeirra sem fá hluta­bætur hjá Vinnu­mála­stofnun eru að vinna í ferða­þjón­ustu og um 20% til við­bótar eru að vinna hjá fyr­ir­tækjum sem tengj­ast ferða­þjón­ustu með ein­hverjum hætti.

En meira þarf að koma til að sögn Jóhann­esar. „Fyr­ir­tækin eru þannig stödd að lausafé er af gríð­ar­lega skornum skammti. Þau munu þurfa að fá aðstoð við það að greiða uppagn­ar­frest. Það sem þau þurfa er ein­fald­lega að geta lagst í híði, lagst í dvala, og [geta svo] kveikt upp í atvinnu­grein­inni aftur þegar ferða­menn fara að koma hingað á ný.“

Hann á ekki von á því að ferða­mennska taki við sér fyrr en að ári.

[adspot]

Jóhannes segir verk­efnið, eins og hann vilji sjá það, risa­vaxið, það velti á nokkrum tugum millj­arða. „En það sem við þurfum að horfa á þegar við nálg­umst svona verk­efni er ekki nákvæm­lega hvaða kostnað við erum að leggja í núna heldur hvaða sam­fé­lags­lega kostnað við erum að reyna að koma í veg fyrir á hinum end­anum.“

Þegar heimskreppa skelli á gangi ekki að skoða „eitt­hvað mjatl“. Horfa verði til þess hvernig þjóðin vilji kom­ast út úr henni og hvernig þau lífs­kjör sem hér hafi skap­ast verði varð­veitt. „Það er mik­ils­vert ef það tekst að stytta þann tíma og fækka þeim fjölda sem þarf að vera á atvinnu­leys­is­bótum um lengri tíma. Það þýðir það að við þurfum að hafa ferða­þjón­ust­una á lífi sem atvinnu­grein, ekki bara fyr­ir­tæki á stangli. Þannig að hún geti kveikt á sér aftur, fengið fólkið aftur inn í vinnu og farið að búa til verð­mæti.“

Gjaldþrotaeldurinn brennir upp fjárfestingar

Málið snú­ist um hvort að það þurfi að byrja á „núlli“ eftir fjölda­gjald­þrot í grein­inni eða hvort við getum „byrjað frá ein­hverjum stökk­palli þar sem okkur hefur tek­ist að varð­veita þau verð­mæti sem hafa verið sköpuð, þær fjár­fest­ingar sem lagt hefur verið í. Til þess að hafa tröppu til að stíga upp af. Vegna þess að ef of stór hluti þess­arar atvinnu­greinar fer ein­fald­lega í gjald­þrota­eld­inn, það brennir upp fjár­fest­ingar. Það tap­ast reynsla og þekk­ing hjá fólki sem hefur lagt í þetta líf og sál“.

[adspot]

Hann segir að þó eignir á borð við hús og bíla fær­ist annað við gjald­þrot og tap­ist ekki í þeim skiln­ingi, þá geti tekið tíma að byggja starf­semi upp að nýju. „Að byrja frá núlli tekur mikli lengri tíma.“

Að byrja upp á nýtt geti tekið 5-7 ár en að kveikja á fyr­ir­tæki úr dvala kannski 1-3 ár. „Þetta skiptir öllu máli um þann sam­fé­lags­lega kostnað sem við sem þjóð­fé­lag erum að fara að leggja í.“

Ef þjón­usta verður ekki til staðar þegar ferða­menn fara aftur að koma þá fara þeir eitt­hvað annað, „að skoða norð­ur­ljós í Noregi eða Kanada“.

Jóhannes segir við­ræður við stjórn­völd í gangi um leiðir, „og ég ætla nú bara að vera bjart­sýnn áfram þrátt fyrir allt og hef trú á því að það muni finn­ast leiðir sem að eru nauð­syn­legar. [...] Ef ekk­ert verður að gert erum við að taka ákvörðun um að fórna hér lífs­kjörum fólks inn í fram­tíð­ina.“

Segist hann leggja mikla áherslu á að úrræði verði fundin fyrir næstu mán­aða­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár