Sextíu ný smit og yfir átta þúsund í sóttkví

Staðfest smit af nýju kór­ónu­veirunni eru nú orðin 648 hér á landi. Í gær voru þau 588 og hefur þeim því fjölgað um sex­tíu á einum sól­ar­hring. Í dag eru 8.205 manns í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 6.816.

Staðfest smit af nýju kór­ónu­veirunni eru nú orðin 648 hér á landi. Í gær voru þau 588 og hefur þeim því fjölgað um sex­tíu á einum sól­ar­hring. Í dag eru 8.205 manns í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 6.816.

Tæplega 1.600 manns hafa lokið sótt­kví. Flest smitin eru svokölluð inn­an­lands­smit, eða 270 tals­ins. Staðfest er að 206 smit­anna má rekja beint til dvalar í útlöndum. Uppruni 172 smita er óþekktur.

Nú liggja þrettán á sjúkra­húsi vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins. Á síð­unni Covid.is kemur fram að 51 hafi náð sér af sjúk­dómnum.

Í dag hafa 10.658 sýni verið tekin frá upp­hafi far­ald­urs­ins, þar af 357 síð­asta sól­ar­hring­inn.

[adspot]

Færri sýni hafa verið tekin síð­ustu daga vegna yfir­vof­andi skorts á sýna­tökupinnum sem nauð­syn­legir eru til rann­sókn­anna. Þórólfur Guðnason sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær að unnið væri að því hörðum höndum að fá fleiri sýna­tökupinna til lands­ins. Í gær kom svo einnig fram í fréttum að fyr­ir­tækið Össur ætti pinna og að verið væri að kanna hvort að þeir séu not­hæfir til rann­sókn­anna.

[links]Þórólfur hefur sagt að ýmis­legt geti skýrt af hverju fjöldi nýrra smita sveiflist milli daga. Ein skýr­ingin gæti verið sú að færri sýni eru nú tekin og önnur sú að fyrir nokkrum dögum komu upp nokkur hópsmit. Hann hefur einnig sagt að far­ald­ur­inn sé enn í vexti og að því sé spáð að hann nái ekki hámarki fyrr en um miðjan apríl.

Samkvæmt spálík­ani sem upp­fært var í gær er búist er við því að fyrir lok apríl hafi lík­lega um 2.500 manns á Íslandi verið greindir með COVID-19, en talan gæti náð tæp­lega 6000 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Af þeim sem greinst hafa með Covid-19 á Íslandi eru tvö látin. Í gær lést rúm­lega sjö­tug kona á Land­spít­al­anum. Hún hafði und­ir­liggj­andi sjúk­dóm. Konan er fyrsti Íslend­ing­ur­inn sem deyr úr COVID-19 sjúk­dómnum sem nýja kór­ónu­veiran veldur. Fyrir rúmri viku lést ástr­alskur ferða­maður á heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands á Húsavík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár