Samherji kominn með yfir 30 prósent í Eimskip og mun gera yfirtökutilboð

Samherji hefur bætt við sig hlutum í Eimskip og mun á næstu fjórum vikum gera öðrum hlut­höfum yfir­tökutil­boð vegna þessa. Sitjandi for­stjóri, sem boðað hefur starfs­lok í lok mán­aðar, seg­ist vona að líf­eyr­is­sjóðir og aðrir hlut­hafar eigi áfram í félag­inu.

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja.
Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja. Mynd: Samherji

Samherji Holding ehf., annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, bætti í gær við sig 3,05 pró­sent hlut í Eimskip. Við það fór eign­ar­hlutur félags­ins í flutn­inga­fyr­ir­tæk­inu upp í 30,11 pró­sent og þar með mynd­að­ist yfir­töku­skylda.

[links]Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar segir að innan fjög­urra vikna muni Samherji gera öðrum hlut­höfum yfir­tökutil­boð.

Þar er haft eftir Björgólfi Jóhanns­syni, starf­andi for­stjóra Samherja, að til­gang­ur­inn með þessum auknu hluta­fjár­kaupum sé fyrst og fremst að sýna þá trú sem Samherji hefur á rekstri Eimskips. „Eimskip er allt að einu í meiri­hluta­eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða sem saman eiga rúm­lega helm­ing hluta­fjár. Er það skiln­ingur minn að stjórn Eimskips og stjórn­endur hafi verið ein­huga um þær miklu breyt­ingar sem gerðar hafa verið á rekstr­inum. Samherji telur Eimskip vel til þess fallið að vera áfram skráð í kaup­höll og vonar að sem flestir hlut­hafar, stórir og smáir, sjái hag sínum best borgið með því að styðja áfram við þá upp­bygg­ingu og fylgi félag­inu um ókomin ár.“

Samstæða með mikla fjárfestingagetu

Hlut­hafa­fundir Sam­herja sam­þykkti 11. maí 2018 að Sam­herj­a­sam­stæð­unni yrði skipt upp í tvennt. Skipt­ingin var látin miða við 30. sept­em­ber 2017. Eftir það er inn­­­lendu starf­­sem­in og starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­­sem­i og hluti af fjár­fest­ing­ar­starf­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Holding ehf. Á meðal þeirra eigna sem færðar voru þangað yfir voru eign­­ar­hlutir Sam­herja í dótt­­ur­­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­­­fest­inga­­fé­lagi á Ísland­i.

[adspot]Sam­eig­in­legt eigið fé félag­anna tveggja sem mynda Sam­herj­a­sam­stæð­una, og eitt stærsta fyr­ir­tæki á Íslandi, var 111 millj­arðar króna í lok árs 2018. Fjár­fest­inga­geta þeirra er því mikil.

Félögin tvö stunda ekki ein­ungis við­skipti með sjáv­ar­af­urð­ir. Sam­herji hf. á til að mynda stóran hlut í smá­­söluris­­anum Hög­um, en það er sjötti stærsti hlut­hafi þess með 4,22 pró­­sent eign­­ar­hlut. Sam­herji Holding ehf. er síðan stærsti ein­staki eig­andi hluta­bréfa í Eim­­skip, með nú 30,11 pró­­sent eign­­ar­hlut. Bald­vin Þor­­­steins­­­son, sonur Þor­­­steins Más og fram­­kvæmda­­stjóri við­­skipta­­þró­unar hjá Sam­herja, er stjórn­­­ar­­for­­maður Eim­­skips og í jan­úar í fyrra var Vil­helm Már Þor­­steins­­son, frændi þeirra, ráð­inn sem for­­stjóri skipa­­fé­lags­ins.

Rannsóknir vegna meintra mútugreiðslna í Namibíu

Sam­herji hefur verið í miklu brim­róti und­an­farna mán­uði eftir umfjöllun Kveiks, Stund­­ar­inn­­ar, Al Jazeera og Wikileaks um mút­u­greiðsl­­ur, meint pen­inga­þvætti og skatt­snið­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­þús­undum gagna og upp­­­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­­son­­ar, fyrr­ver­andi starfs­­manns Sam­herja í Namib­­íu.

Þegar er búið að hand­­taka og ákæra Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­­­ar­út­­­­­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­­­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­­­mála­ráð­herra Namib­­­­­íu, og fjóra aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­­­ónir namibískra doll­­­­­ara, jafn­­­­­virði 860 millj­­­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­­­sóttan kvóta í land­in­u. Auk Shang­hala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­for­­­­­maður namibísku rík­­­­­is­út­­­­­­­­­gerð­­­­­ar­inn­ar Fishcor ný­ver­ið, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­­­son­ur Esau, Ricardo Gustavo, sam­­­­­starfs­­­­­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi ­fjöl­­­­­skyld­u­­­­­bönd­um, ákærð­­­­ir.

Mál Sam­herja er til rann­­sóknar í Namib­­íu, á Íslandi og í Nor­egi. Þá hafa eignir verið frystar í Angóla vegna máls­ins og þar á sér einnig stað saka­­mála­rann­­sókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár