CCP flytur í nýbyggðar höfuðstöðvar í Vatnsmýri

Tölvu­leikja­fram­leið­and­inn mun flytja alla starf­semi sína á Íslandi í nýjar sér­hann­aðar höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins í Vatns­mýr­inni í næsta mán­uði.

Gróska – Hugmyndahús
Gróska – Hug­mynda­hús Mynd: groska.is

Í næsta mán­uði mun tölvu­leikja­fram­leið­and­inn CCP flytja alla starf­semi sína á Íslandi í nýjar sér­hann­aðar höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins í Vatns­mýr­inni. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Þá segir jafn­framt að húsið, sem nefn­ist Gróska, sé hannað með þarfir skap­andi iðn­aðar í huga og flutn­ingar fyr­ir­tæk­is­ins þangað gefi kost á sterk­ari teng­ingu CCP við háskóla­sam­fé­lagið, sem og við önnur leikja- og sprota­fyr­ir­tæki sem muni starfa í hús­inu.

CCP stefnir enn fremur á að árið 2020 verði hið stærsta í 23 ára rekstr­ar­sögu fyr­ir­tæk­is­ins en 100 þús­und nýir spil­arar byrj­uðu að spila EVE Online í jan­úar á þessu ári. Það sam­svarar rúmri tvö­földun á milli ára og er þetta sjötti besti mán­uð­ur­inn í 17 ára sögu EVE Online, sam­kvæmt fyr­ir­tæk­inu.

Tvær milljónir eigenda Android-síma forskráð sig til að sækja nýja farsímaútgáfu

Þá kemur fram í til­kynn­ing­unni að mik­ill áhugi sé á leikjum sem CCP hefur þróað í sam­vinnu við kín­verska leikj­aris­ann NetEase. Nú þegar hafi tvær millj­ónir eig­enda Android-síma for­skráð sig til að sækja EVE Echoes, nýja far­síma­út­gáfu af leiknum EVE Online, en hann hafi verið í beta-próf­unum á nokkrum stöðum í heim­inum að und­an­förnu og muni koma út um heim allan á þessu ári.

Jafn­framt býst fyr­ir­tækið við svip­uðum fjölda for­skrán­inga þegar iPhone-útgáfa leiks­ins verður kynnt á næst­unni. Þá muni ný PC-útgáfa af EVE Online fyrir kín­verskan markað koma út með vor­inu og sam­an­lagt gæti því heild­ar­fjöldi virkra spil­ara í EVE-tölvu­leikja­heim­inum orðið marg­falt meiri en sést hefur áður fyrir lok árs­ins 2020. Samkvæmt CCP hafa tals­verðar tafir orðið á útgáfu EVE Online og EVE Echoes í Kína sem hafa sett mark sitt á nýliðið rekstr­arár CCP en vinna við að greiða úr þeim er langt á veg komin.

Kórónaveiran hefur áhrif

Samkvæmt CCP hafa starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins í Sjanghæ und­an­farið unnið að heiman vegna kór­óna­veirunnar. Enginn sem starfar fyrir fyr­ir­tækið í Kína hafi veikst en starfs­fólkið hafi þó ekki farið var­hluta af þeim miklum rösk­unum sem orðið hafa á dag­legu lífi á mörgum stöðum í land­inu vegna far­ald­urs­ins. Ekki sé búist við að kór­óna­veiran tefji inn­komu CCP á Kína­markað svo nokkru nemi en vel sé fylgst með þró­un­inni.

„Fjölspilunarnetleikir eins og gott viský“

Hilmar Veigar Pét­urs­son, for­stjóri CCP, segir að þau hafi farið í stóra ferð um heim­inn á síð­asta ári og heim­sótt staði þar sem stórir hópar EVE Online spil­ara búa.

„Við náðum nokkrum stórum áföngum í fram­þróun og stefnu­mörkun CCP og árið 2020 virð­ist ætla að verða stórt í sögu fyr­ir­tæk­is­ins. Við erum að upp­lifa gríð­ar­legan not­enda­vöxt á sama tíma og við eigum enn stærstu trompin eftir á hendi. Þegar EVE Echoes og EVE Online verða gefnir út í Kína á þessu ári, þá mun það bæði færa okkur nýja tekju­strauma og fót­spor EVE-heims­ins verður lík­lega orðið marg­falt stærra en það var áður en við fórum í þessa sókn til Asíu og hófum að gefa leik­inn út á far­síma. Asía er að verða stærsti tölvu­leikja­mark­aður heims og þegar litið er til þess árang­urs sem EVE hefur náð í Kóreu á síð­ustu mán­uðum er ljóst að salan til Pearl Abyss var hár­rétt ákvörðun.“

Hann telur að Pearl Abyss sé með skýra lang­tíma­sýn á hvers konar leiki CCP geti sent frá sér og hafi öðl­ast djúpa inn­sýn í ferla og mark­mið fyr­ir­tæk­is­ins.

„Einhver sagði að fjöl­spil­un­ar­net­leikir séu eins og gott viský, þeir verði bara betri með aldr­inum. Núna er leik­ur­inn okkar að verða nógu gam­all til að stór hluti leikja­spil­ara í heim­inum vilji drekka hann og með nýju útgáf­unum og sam­starfi við leikja­fyr­ir­tæki sem skilja hvað CCP gerir og hverju CCP vill ná fram sem leikja­fram­leið­andi verður aðgengið að honum betra en nokkru sinni fyrr. Það hefur verið áhuga­vert að temja sér kóreskt hug­ar­far, sem er afar ólíkt vest­rænu hug­ar­fari, ekki síst þegar kemur að því að hugsa til langs tíms en með sam­starf­inu við Pearl Abyss tel ég að CCP hafi lagt grunn­inn að því að verða áfram í fremstu röð í leikja­þróun til langrar fram­tíðar,“ segir for­stjór­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár