Umsóknir um alþjóðlega vernd hlutfallslega flestar á Íslandi miðað við hin Norðurlöndin

Alls bár­ust 867 umsóknir um alþjóð­lega vernd til Útlend­inga­stofn­unar á síð­asta ári. Umsækj­endur voru af 71 þjóð­erni.

Mótmæli hælisleitenda þann 13. mars á síðasta ári.
Mótmæli hæl­is­leit­enda þann 13. mars á síð­asta ári. Mynd: Bára Huld Beck

Umsóknir um alþjóð­lega vernd voru 867 á síð­asta ári, sam­kvæmt Útlend­inga­stofnun, og fjölg­aði um 67 milli ára en flestir umsækj­endur komu frá Venes­ú­ela og Írak. Hlut­falls­lega voru umsóknir um vernd flestar á Íslandi af Norð­ur­lönd­unum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni.

Fram kemur að afgreiddum umsóknum hafi fjölgað um 42 pró­sent miðað við árið á undan, óaf­greiddum umsóknum fækkað um 37 pró­sent frá árs­byrjun auk þess sem máls­með­ferð­ar­tími hafi styst veru­lega eftir því sem leið á árið.

531 einstaklingur fékk alþjóðlega vernd, viðbótarvernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum

Þá segir að fjöldi ein­stak­linga sem Útlend­inga­stofnun veitti vernd hafi aldrei verið meiri á einu ári sem skýrist af því hve stór hluti umsækj­enda hafði þörf fyrir vernd og hve mörg mál hafi tek­ist að afgreiða. Til við­bótar við þá 376 ein­stak­linga, sem fengu jákvæða nið­ur­stöðu hjá Útlend­inga­stofnun, hafi sam­tals 155 ein­stak­lingar fengið veitta alþjóð­lega vernd eða mann­úð­ar­leyfi hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála, sem aðstand­endur flótta­manna hér á landi eftir umsókn til Útlend­inga­stofn­unar eða sem kvótaflótta­menn í boði íslenskra stjórn­valda.

Í heild fengu því 531 ein­stak­lingur alþjóð­lega vernd, við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum hér á landi árið 2019.

[adspot]

Fæstar umsóknir í Danmörku og Noregi

Í sam­an­burði við Norð­ur­löndin voru umsóknir um alþjóð­lega vernd hlut­falls­lega flestar á Íslandi, eða 24 á hverja 10.000 íbúa. Næst­flestar voru þær í Svíþjóð, eða 22 á hverja 10.000 íbúa. Mun færri umsóknir voru lagðar fram í Finn­landi og fæstar í Danmörku og Noregi, sem hlut­fall af íbúa­fjölda, sam­kvæmt Útlend­inga­stofnun.

Tæpur fimmt­ungur umsókna um vernd hér á landi kom frá rík­is­borg­urum ríkja á lista yfir örugg upp­runa­ríki og er það nokkur fækkun borið saman við árið á undan en þó einkum árin tvö þar á undan, þegar rúmur helm­ingur umsækj­enda kom frá öruggum upp­runa­ríkjum, segir í til­kynn­ing­unni. Umsóknum frá öðrum en öruggum upp­runa­ríkjum fjölg­aði hins vegar á sama tíma og voru 720 á árinu.

Stærstu hópar umsækj­enda komu frá Venes­ú­ela, eða 180, og Írak, eða 137, en fjöl­menn­astir þar á eftir voru Níger­íu­menn, Afganar og Albanir. Um helm­ingur allra umsækj­enda voru karlar, fjórð­ungur konur og fjórð­ungur börn.

270 einstaklingar bíða eftir niðurstöðu 

Samkvæmt Útlend­inga­stofnun afgreiddi hún 1.123 umsóknir um alþjóð­lega vernd árið 2019, sam­an­borið við 790 afgreidd mál árið 2018. Þessi mikla aukn­ing í afköstum, sem er 42 pró­sent, skýrist fyrst og fremst af fjölgun starfs­manna í mála­vinnslu og auk­inni áherslu á þjálfun og innra skipu­lag á vernd­ar­sviði. „Þessar for­sendur réðu því að þegar breyt­ing varð á sam­setn­ingu umsækj­enda eftir mitt ár, með fjölgun umsókna frá rík­is­borg­urum Venes­ú­ela, gat stofn­unin brugð­ist hratt við og afgreitt umsókn­irnar í for­gangs­með­ferð jafn­óðum,“ segir í til­kynn­ingu stofn­un­ar­innar.

Þá kemur fram að í upp­hafi árs­ins 2020 hafi 270 ein­stak­lingar beðið eftir nið­ur­stöðu umsókna sinna um alþjóð­lega vernd hjá Útlend­inga­stofnun, flestir frá Írak og Venes­ú­ela. Það séu færri mál en voru óaf­greidd í upp­hafi árs 2019 þegar 430 ein­stak­lingar biðu eftir nið­ur­stöðu í mál sitt hjá stofn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár