Búist við að Þorsteinn Már snúi aftur sem forstjóri Samherja í næsta mánuði

Tíma­bundnu leyfi Þor­steins Más Bald­vins­sonar frá for­stjóra­stóli Samherja virð­ist vera að fara að ljúka. Sitjandi for­stjóri reiknar með að hann snúi aftur í næsta mán­uði. Engin nið­ur­staða liggur fyrir í rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins hér­lendis.

Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi og líkast til verðandi forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, fyrr­ver­andi og lík­ast til verð­andi for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/RÚV

Björgólfur Jóhanns­son segir að hann muni hætta sem for­stjóri Samherja fyrir lok mars­mán­aðar. Búast megi við því að Þor­steinn Már Bald­vins­son snúi aftur í for­stjóra­stól­inn. Frá þessu greindi Björgólfur í hádeg­is­fréttum RÚV.

[links]Þar sagði Björgólfur að ljóst væri að hann hefði verið ráð­inn tíma­bundið og að plan Samherja væri að rann­sókn, þar sem fyr­ir­tækið réð norsku lög­manns­stof­una Wikborg Rein til að fram­kvæma á við­skipta­háttum sínum, yrði komin á loka­stig á þeim tíma. Aðspurður hvort að Þor­steinn Már myndi taka aftur við sem for­stjóri sagði Björgólfur að reikna mætti með því en að það væri stjórn félags­ins sem tæki þá ákvörðun. Þor­steinn Már er einn helsti eig­andi Samherja ásamt fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni Helgu S. Guð­munds­dóttur og frænda sínum Krist­jáni Vil­helms­syni. Stjórn Samherja situr í umboði eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins.

Björgólfur tók við for­stjóra­starf­inu eftir að Kveik­ur, Stund­in, Wiki­leaks og Al Jazeera birtu umfjöllun sína um við­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu og víðar þar sem fjallað var um meintar mútu­greiðsl­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu. Hann tók þá við af Þor­steini Má en í umfjöll­un­inni steig fram upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja í Namibíu, sem sagði að öll ætluð mútu­brot Samherja í land­inu hefði verið fram­kvæmd með vit­und og vilja for­stjór­ans.

[adspot]Auk rann­sóknar Wikborg Rein á málum Samherja eru yfir­­völd í Namib­­íu, Angóla, Íslandi og í Nor­egi einnig að rann­saka mál tengd Sam­herj­a og fjöl­margir hafa verið ákærðir fyrir spill­ingu og önnur efna­hags­brot nú þegar í Namibíu vegna Sam­herj­a­máls­ins, meðal ann­ars tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar í rík­is­stjórn lands­ins. Alls sitja tíu manns í fang­elsi þar í landi vegna máls­ins. Engin nið­ur­staða liggur fyrir í rann­sókn á mál­inu hér­lendis enn sem komið er og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hefur hún verið í fullum gangi und­an­farna mán­uði.

Vill aftur í stjórn Sjóvá

Kjarninn greindi frá því í morgun að Björgólfur sem hefur verið tíma­bund­inn for­stjóri Sam­herja frá því um miðjan nóv­em­ber í fyrra, sæk­tist eftir því að sitja áfram í stjórn trygg­inga­fé­lags­ins Sjó­vá. Björgólfur var stjórn­ar­for­maður félags­ins áður en hann tók við for­stjóra­starf­inu hjá Sam­herja, en til­kynnti á stjórn­ar­fundi 19. nóv­em­ber 2019 að hann myndi víkja tíma­bundið úr stjórn­inni „vegna anna.“

Í skýrslu til­nefn­inga­nefndar Sjóvá, sem birt var í gær, kemur fram að Björgólfur áætli að láta af störfum hjá Sam­herja fyrir lok fyrsta árs­fjórð­ungs 2020, sem lýkur í lok mars næst­kom­andi.

Björgólfur var fyrst kjör­inn í stjórn Sjóvá í mars í fyrra og tók sam­stundis við sem stjórn­ar­for­mað­ur. Stærsti eig­andi Sjóvá er SVN eigna­fé­lag, sem er í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar, með 13,97 pró­sent eign­ar­hlut. Sam­herji á 44,6 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni auk þess sem Kald­bak­­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­­sent hlut í Síld­­ar­vinnsl­unni. Sam­an­lagður eign­ar­hlutur Sam­herja og tengdra aðila í Síld­ar­vinnsl­unni er því 49,9 pró­sent og Þor­­steinn Már Bald­vins­son, einn aðal­eig­anda Sam­herja og fyrr­ver­andi for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, var stjórn­­­ar­­for­­maður Síld­­ar­vinnsl­unn­ar um ára­bil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár