Forstjóri Samherja vill aftur í stjórn Sjóvá

Tíma­bund­inn for­stjóri Samherja steig úr stól stjórn­ar­for­manns Sjóvá í nóv­em­ber í fyrra vegna anna. Hann sæk­ist nú eftir því að setj­ast aftur í stjórn­ina á kom­andi aðal­fundi. Samherji á tæpan helm­ing í stærsta eig­anda Sjóvá.

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja.
Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja. Mynd: Kjarninn.

Björgólfur Jóhanns­son, sem hefur verið tíma­bund­inn for­stjóri Samherja frá því um miðjan nóv­em­ber í fyrra, sæk­ist eftir því að sitja áfram í stjórn trygg­inga­fé­lags­ins Sjóvá. Björgólfur var stjórn­ar­for­maður félags­ins áður en hann tók við for­stjóra­starf­inu hjá Samherja, en til­kynnti á stjórn­ar­fundi 19. nóv­em­ber 2019 að hann myndi víkja tíma­bundið úr stjórn­inni „vegna anna“.

Björgólfur var fyrst kjör­inn í stjórn Sjóvá í mars í fyrra og tók sam­stundis við sem stjórn­ar­for­maður. Stærsti eig­andi Sjóvá er SVN eigna­fé­lag, sem er í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar, með 13,97 pró­sent eign­ar­hlut. Samherji á 44,6 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni auk þess sem Kald­bak­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. Sam­an­lagður eign­ar­hlutur Samherja og tengdra aðila í Síld­ar­vinnsl­unni er því 49,9 pró­sent og Þor­steinn Már Bald­vins­son, einn aðal­eig­anda Samherja og fyrr­ver­andi for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, var stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unn­ar um ára­bil.

[adspot]Hann steig úr þeim stóli í kjöl­far þess að Kveikur, Stundin, Wikileaks og Al Jazeera birtu umfjöllun sína um við­skipta­hætti Samherja í Namibíu og víðar þar sem fjallað var um meintar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu. Tíu manns sitja nú í fang­elsi í Namibíu og bíða rétt­ar­halda vegna mála sem tengj­ast við­töku mútu­greiðslna vegna máls­ins.

14 sóttust eftir stjórnarsetu

Aðal­fundur Sjóvá fer fram 12. mars næst­kom­andi. Í skýrslu til­nefn­ing­ar­nefndar félags­ins kemur fram að 14 fram­boð hafi borist til setu í aðal­stjórn, en að fimm aðilar hafi dregið fram­boð sín til baka þegar fyrir lá að til­nefn­ing­ar­nefnd myndu ekki mæla með þeim. Því sækj­ast níu manns eftir fimm sætum í stjórn­inni. Þeirra á meðal eru, líkt og áður sagði, Björgólfur.

Til­nefn­ing­ar­nefndin mælir með því að hann verði kjör­inn í stjórn­ina ásamt þeim Guðmundi Erni Gunn­ars­syni, fyrr­ver­andi for­stjóri VÍS, Hildi Árna­dóttur, núver­andi stjórn­ar­for­manni Sjóvár, Inga Jóhanni Guð­munds­syni, stjórn­ar­manns og einn eig­anda Síld­ar­vinnsl­unnar og Ingunni Agnes Kro lög­manni.

Mun sitja lengur en búist var við

Í við­tali við norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv sem birt var um miðjan des­em­ber í fyrra sagði Björgólfur að hann bygg­ist við því að hann myndi ljúka hlut­verki sínu sem tíma­bund­inn for­­stjóri Sam­herja á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2020.

Í við­tali við vef­mið­il­inn Intra­fish, sem sér­­hæfir sig í umfjöllun um sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­mál, ­sem birt var í jan­úar var hafði sá tími sem Björgólfur vænti þess að vera í starfi þó lengst. Þar sagð­ist hann ekki reikna með því að sitja í for­stjóra­stólnum lengur en fram á mitt ár 2020. Þar úti­lok­aði Björgólfur enn fremur ekki að Þor­steinn Már myndi snúa aftur í stól­inn. „Hann hefur verið starf­andi í sjá­v­­­ar­út­­­vegi á Íslandi í mörg ár og er lík­­­lega sá náungi sem veit mest um sjá­v­­­ar­út­­­veg á Íslandi og í Evr­­ópu,“ sagði Björgólfur um Þor­­stein Má.

Í skýrslu til­nefn­inga­nefndar Sjóvá segir hins vegar að Björgólfur áætli að láta af störfum hjá Samherja fyrir lok fyrsta árs­fjórð­ungs 2020, sem lýkur í lok mars næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár