Björgólfur efast um að mútur hafi verið greiddar og telur Samherja ekki hafa brotið lög

For­stjóri Samherja telur Jóhannes Stef­áns­son hafa verið einan að verki í vafasömum við­skipta­háttum fyr­ir­tæk­is­ins í Afríku. Greiðslur til Dúbaí eftir að Jóhannes hætt,i sem taldar eru vera mútur, hafi verið lög­legar greiðslur fyrir kvóta og ráð­gjöf.

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja, þegar hann tók við starfinu.
Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja, þegar hann tók við starf­inu. Mynd: Samherji

„Ég efast um að nokkrar mútu­greiðslur hafi átt sér stað eða að fyr­ir­tækið sé eða hafi verið flækt í nokkuð ólög­mætt.“ Þetta segir Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Samherja, í við­tali við norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv. Þar segir hann enn fremur að hann telji að Jóhannes Stef­áns­son, sem starf­aði hjá Samherja í Namibíu fram á mitt ár 2016 og upp­ljóstr­aði um við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins þar, hafi verið einn að verki þegar kom að greiðslum sem stæð­ust ekki skoðun.

[links]Þegar Björgólfur var spurður um greiðslur til félags skráð í Dubaí í eigu James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns namibísku rík­is­út­gerð­ar­innar Fischor, sem héldu áfram fram á árið 2019 sagði hann að ekk­ert benti til þess að þær greiðslur væru ólög­legar. Greiðsl­urnar hafi verið fyrir kvóta auk greiðslna fyrir ráð­gjaf­ar­störf. Blaða­maður Dagens Nær­ingsliv benti Björgólfi á að eig­andi reikn­ings­ins væri nú í fang­elsi í Namibíu, þar sem hann hefur verið ákærður ásamt fimm öðrum fyrir að þiggja á níunda hund­rað millj­ónir króna í mútu­greiðslur frá Samherja. „Já, hann er bor­inn þungum sökum en hefur ekki hlotið dóm,“ svar­aði Björgólfur.

Hann sagði Samherja ætla að draga fram það sem hefði átt sér stað í Namibíu, með rann­sóknum sem fyr­ir­tækið er að greiða norskri lög­manns­stofu fyrir að fram­kvæma á sér, og leyfa svo þar til bærum yfir­völdum að meta afrakst­ur­inn. Björgólfur reiknar með því að hann muni ljúka hlut­verki sínu sem tíma­bund­inn for­stjóri Samherja á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2020. Það þýðir vænt­an­lega að til standi að Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem steig tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri eftir að við­skipta­hættir Samherja í Namibíu voru opin­beraðir í síð­asta mán­uði, eigi að snúa aftur í stól­inn á þeim tíma.

Launagreiðslur sjómanna

Sam­herj­a­málið hefur vakið mikla athygli í Noregi, sér­stak­lega vegna þess að norski bank­inn DNB, sem er að hluta til í eigu norska rík­is­ins, er flæktur í það. Sá hluti, sem snýst um mögu­legt pen­inga­þvætti vegna greiðslna af reikn­ingi í DNB sem aflands­fé­lagið Cape Cod Fs á Marshall-eyju átti, er til rann­sóknar hjá norsku efna­hags­brota­lög­regl­unni. Cape Cod er ekki með skráðan eig­anda en í opin­berun Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera kom fram að starfs­maður Samherja hefði haft pró­kúru fyrir félagið.

[adspot]DNB er helsti við­skipta­banki Samherja og fjár­munir sem fara í gegnum Kýp­ur­fé­lög Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, meðal ann­ars ávinn­ingur af veiðum í Namibíu, enda flestir inni á reikn­ingum bank­ans.

Björgólfur segir í við­tal­inu að greiðslur af reikn­ingum Cape Cod hafi verið launa­greiðslur sjó­manna. Í yfir­lýs­ingum Samherja á síð­ustu vikum hefur fyr­ir­tækið neitað því að hafa átt Cape Cod, en því var heldur ekki haldið fram í umfjöllun ofan­greindra miðla um við­skipti Samherja heldur bent á starfs­maður Sam­herja verið meðal pró­kúru á reikn­ingi Cape Cod hjá DNB og hefði stofnað reikn­ing­inn.

Reikn­ing­unum var hins vegar lokað í fyrra vegna þess að banda­rískur banki neit­aði milli­færslu frá félag­inu vegna þess að hún stóðst ekki við­mið um pen­inga­þvætt­is­varnir.

Ætlaðar mútugreiðslur 1,4 milljarðar

Málsvörn Samherja í mál­inu hingað til hefur fyrst og fremst byggst á þeirri línu sem Björgólfur fetar í við­tal­inu. Að Jóhannes Stef­áns­son hafi einn fram­kvæmd ólög­mæta við­skipta­gjörn­inga í Namibíu, að fyr­ir­tækið hafi ekki orðið upp­víst að pen­inga­þvætti og að það hafi ekki stundað skipu­lega skatta­snið­göngu með því að láta afrakstur veiða sinna safn­ast saman í lág­skatta­ríkjum og kom­ast þannig hjá því að greiða skatta í þeim ríkjum þar sem arð­ur­inn varð til.

Jóhannes hefur geng­ist við því að hafa greitt mútur fyrir hönd Sam­herja til að tryggja fyr­ir­tæk­inu aðgengi að kvóta í Namib­íu. Hann segir hins vegar allar greiðslur hafa farið fram með vit­und og vilja Þor­steins Más Bald­vins­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Sam­herja og eins aðal­eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins, og Aðal­steins Helga­son­ar, sem var yfir starf­sem­inni í Namib­íu. 

[adspot]Í umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera kom fram að mútu­greiðslur til ráða­manna í Namibíu hafi staðið yfir fram á árið 2019, en Jóhannes Stef­áns­son lét af störfum hjá Samherja í júlí 2016. Þar sagði að þær hefðu numið 1,4 millj­arði króna hið minnsta. 

Þegar er búið að hand­taka og ákæra Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­mála­ráð­herra Namib­­­íu, og fjóra aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­ónir namibískra doll­­­ara, jafn­­­virði 860 millj­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­sóttan kvóta í land­in­u.

Auk Shang­hala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður namibísku rík­­­is­út­­­­­gerð­­­ar­innar Fishcor nýver­ið, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­sonur Esau, Ricardo Gustavo, sam­­­starfs­­­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi fjöl­­­skyld­u­­­bönd­um, ákærð­­ir.

Jóhannes ræddi við­brögð Samherja við mál­inu í Kast­ljósi á mið­viku­dag og sagði að fyr­ir­tæk­inu væri „vel­komið að reyna að villa um fyrir fólki“. Hann væri bara ábyrgur fyrir 20-30 pró­semt af þeim mútu­greiðslum sem greiddar hefðu verið til ráða­manna í Namibíu fyrir aðgang að kvóta áður en að hann hætti störfum hjá fyr­ir­tæk­inu.

Sam­herj­a­málið er til rann­sóknar á Íslandi, í Noregi, í Namibíu og Angóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár