Samherji segist ekki hafa vitað um ákveðnar mútugreiðslur

For­svars­menn Samherja hafa afhent Frétta­blað­inu valda tölvu­pósta sem fyr­ir­tækið telur að sýni að það hafi ekki vitað um ákveðnar mútu­greiðslur í Namibíu. Um er að ræða tvö pró­sent af þeim mútum sem ákært hefur verið fyrir þar í landi.

Greiðslurnar sem um ræðir fóru meðal annars til Sacky Shanghala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Namib­íu.
Greiðsl­urnar sem um ræðir fóru meðal ann­ars til Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Namib­íu. Mynd: Kveikur:/Skjáskot

Í Frétta­blað­inu í dag eru birtar upp­lýs­ingar úr tölvu­póstum sem Samherji afhenti blað­inu og fyr­ir­tækið telur sýna að það hafi ekki vitað af mútu­greiðslum upp á um 16,5 millj­ónir króna sem runnu til Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Namib­íu, og James Hatuikulipi, stjórn­anda rík­is­rekna sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor. Greiðsl­urnar voru til að tryggja Samherja aðgengi að kvóta.

[links]Um er að ræða greiðslur til félags­ins ERF 1980 og sam­kvæmt Frétta­blað­inu er það afstaða Samherja að ef þeir sem stýra fyr­ir­tæk­inu hefðu vitað um mútu­greiðsl­urnar sem greiddar voru hefði fylgt yfir­lit um þær með í tölvu­pósti sem Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja, sendi til Örnu McClure, yfir­lög­fræð­ing Samherja, á árinu 2014.

Jóhannes hefur geng­ist við því að hafa greitt mútur fyrir hönd Samherja til að tryggja fyr­ir­tæk­inu aðgengi að kvóta í Namibíu. Hann segir hins vegar allar greiðslur hafa farið fram með vit­und og vilja Þor­steins Más Bald­vins­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Samherja og eins aðal­eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins, og Aðal­steins Helga­sonar, sem var yfir starf­sem­inni í Namibíu.

Þá birtir Frétta­blaðið brot úr tölvu­pósti frá Agli Helga Árnasyni, sem tók við starf­semi Samherja Í Namibíu árið 2016 þegar Jóhannes Stef­áns­son hætti, til Ingólfs Pét­urs­sonar, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Samherja í Namibíu. Stjórn­endur Samherja telja þann tölvu­póst sýna að Jóhannes hafi gert samn­inga um mútu­greiðslur án þeirra vit­neskju.

[adspot]Frétta­blaðið ræðir við Ingólf sem seg­ist hafa vitað að til­gangur ERF 1980 hafi verið að taka við mútu­greiðslum en að hann hafi ekki sagt neinum hjá Samherja frá til­vist félags­ins.

Mjög lítið brot af meintum mútugreiðslum

Umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar, Al Jazeera og Wikileaks um mútu­greiðslur, meint pen­inga­þvætti og skattsnið­göngu Samherja byggir að mestu á tug­þús­undum gagna og upp­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­sonar, fyrr­ver­andi starfs­manns Samherja í Namibíu. Í við­brögðum stjórn­enda Samherja við umfjöll­un­inni hefur verið lögð áhersla á það að Jóhannes hafi greitt ráða­mönnum í Namibíu mútur án vit­neskju stjórn­enda Samherja. Í yfir­lýs­ingu sem Samherji sendi frá sér sama kvöld og umfjöll­unin birt­ist, 12. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, sagði að svo virt­ist sem Jóhannes hefði „hugs­an­lega flækt Sam­herja í við­skipti sem kunni að vera ólög­mæt.“ Jóhannes hafnar þessu alfarið, líkt og áður sagði. Í umfjöll­un­inni kom einnig fram að mútu­greiðslur til ráða­manna í Namibíu hafi staðið yfir fram á árið 2019, en Jóhannes Stef­áns­son lét af störfum hjá Samherja í júlí 2016. Þar sagði að þær hefðu numið 1,4 millj­arði króna hið minnsta. Sú upp­hæð sem fjallað er um í Frétta­blað­inu í dag er rúm­lega eitt pró­sent þeirrar upp­hæðar. Jóhannes hefur

Þegar er búið að hand­taka og ákæra Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­mála­ráð­herra Namib­­­íu, og fjóra aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­ónir namibískra doll­­­ara, jafn­­­virði 860 millj­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­sóttan kvóta í land­in­u. Sú upp­hæð sem fjallað er um í Frétta­blað­inu í dag er tæp tvö pró­sent þeirrar upp­hæðar.

Auk Shang­hala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður namibísku rík­­­is­út­­­­­gerð­­­ar­innar Fishcor nýver­ið, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­sonur Esau, Ricardo Gustavo, sam­­­starfs­­­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi fjöl­­­skyld­u­­­bönd­um, ákærð­­ir.

Jóhannes ræddi við­brögð Samherja við mál­inu í Kast­ljósi á mið­viku­dag og sagði að fyr­ir­tæk­inu væri „vel­komið að reyna að villa um fyrir fólki“. Hann væri bara ábyrgur fyrir 20-30 pró­semt af þeim mútu­greiðslum sem greiddar hefðu verið til ráða­manna í Namibíu fyrir aðgang að kvóta áður en að hann hætti störfum hjá fyr­ir­tæk­inu.

[adspot]Mál Samherja er til rann­sóknar í Namibíu, á Íslandi og í Noregi. Þá hafa eignir verið frystar í Angóla vegna máls­ins og þar á sér einnig stað saka­mála­rann­sókn.

Myndband birt á nafnlausum reikning

Í gær birt­ist mynd­band af sím­tali Jóhann­esar við fyrr­ver­andi eig­in­konu sína frá árinu 2017, þar sem hann hótar henni og öðrum öllu illu, á Youtube á nafn­lausum aðgangi.

Fyrr­ver­andi eig­in­kona hans tók mynd­bandið upp á sínum tíma og í sam­tali við Stundina í gær seg­ist hún hafa deilt mynd­band­inu með Jóni Óttari Ólafs­syni, starfs­manni Samherja, árið 2017, og nokkrum öðrum. Jóhannes hafi beðið hana afsök­unar á sím­tal­inu og reynt að bæta henni það upp. Þau séu ekki ósátt í dag.

Jóhannes sjálfur sagði við Stundina að hann hefði verið ölv­aður og örvinglaður þegar hann hringdi í eig­in­konu sína. Hann sæi eftir því, geng­ist við því sem hann gerði og beðið alla hlut­að­eig­andi aðila afsök­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár