Rannsaka ítrekaðar tilraunir til að ráða Jóhannes af dögum

Lög­reglan í Namibíu rann­sakar nú ítrek­aðar til­raunir til að ráða Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ara í Sam­herj­a­mál­inu af dögum.

Jóhannes Stefánsson
Jóhannes Stef­áns­son Mynd: Skjáskot/RÚV

Namibíska lög­reglan rann­sakar ítrek­aðar til­raunir til að ráða Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ara í Sam­herj­a­mál­inu af dögum. Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag en rætt verður við Jóhannes í Kast­ljósi í kvöld.

Jóhannes lét af störfum hjá Samherja í júlí árið 2016 en sam­kvæmt RÚV hafði hann undir höndum á þeim tíma tölvu fyr­ir­tæk­is­ins með miklu magni gagna. Strax þá hafi und­ar­legir hlutir farið að ger­ast og ýmsir aðilar sýnt tölv­unni áhuga.

Hann seg­ist í sam­tali við Kastljós hafa verið hepp­inn að gott fólk í kringum hann hafi gripið inn í og ráð­lagt honum að ráða sér líf­verði vegna þess að öryggi hans væri ógnað. Tvisvar hafi örygg­is­út­tekt leitt í ljós að hann hafi þurft fjölda líf­varða til að gæta öryggi hans. Oftar en einu sinni hafi verið eitrað fyrir honum í gegnum drykkj­ar­föng og mat og lög­reglan í Namibíu telji sig vita hver beri ábyrgð og hvernig staðið hafi verið að verki.

Þann 12. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn birtu Kveikur og Stundin fyrstu umfjall­anir sínar sem byggðu meðal ann­ars á gögnum frá Wiki­leaks og vitn­is­burði Jóhann­es­ar.

Jóhannes gekkst við því í Kveiks­þætt­inum að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namib­íu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­­völd í Namib­­íu, hefði fengið laga­­lega stöðu upp­­­ljóstr­­ara og aðstoð­aði nú við rann­­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­­a.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár