Jóhannes: Þeim er velkomið að reyna að villa um fyrir fólki

Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja og upp­ljóstr­ari í málum fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu, var í við­tali við Kastljós í kvöld.

„Þeim er vel­komið að reyna að villa um fyr­ir fólki.“

Þetta sagði Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja og upp­ljóstr­ari í málum félags­ins í Namibíu, aðspurður út í við­brögð Samherja við umfjöllun um málið, sem birt­ist fyrst 12. nóv­em­ber, með umfjöllun Kveiks á RÚV, sem unnin var upp úr gögnum frá Wikileaks. Stundin og Al Jazeera birtu einnig umfjall­anir upp úr gögn­unum, og aðrir fjöl­miðlar, víða um heim, hafa svo fylgt í kjöl­farið.

Jóhannes var gestur í Kast­ljósi RÚV og tjáði sig þar meðal ann­ars um hvernig honum fynd­ist umræða um málið hafa verið á Íslandi, Nambíu og víðar. Hann sagð­ist hafa fullt traust á rann­sókn­inni í Namibíu, og þar hefðu yfir­völd unnið vel að henni frá því hann hefði komið til yfir­valda á haust­mán­uðum í fyrra, upp­lýst um mál og fengið stöðu upp­ljóstr­ara í kjöl­farið. Hann sagði miklar hindr­anir hafa verið í rann­sókn­inni, en samt hefði hún gengið vel, enda gögnin fyrir hendi og hægt að sann­reyna þau.

Jóhannes sagði að það lægi fyrir, að um 800 millj­óna króna greiðslur hefðu farið til hinna svo­nefndu hákarla í Nambíu, sem nú eru í haldi yfir­valda þar í landi, en hann bæri ekki ábyrgð á þeim nema að litlu leyti, þar sem hann hefði hætt störfum árið 2016. „Ég er bara ábyrg­ur fyr­ir 20-30% af þeim,“ sagði Jóhannes.

Þá sagði hann að rann­sóknir væru í gangi núna, og það væri alltaf hægt að nálg­ast hann, ef það þyrfti frek­ari gögn. Hann ótt­að­ist ekk­ert, og teldi að málið væri nauð­syn­legt til að breyta hlutum til batn­aðar í Namibíu og Angóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár