Vilhjálmur dregur framboð sitt til stjórnar Eimskips til baka – Óskar sjálfkjörinn

Búið er að leysa úr þrá­tefli sem skap­að­ist á síð­asta aðal­fundi Eimskip, þar sem ekki tókst að kjósa lög­lega stjórn. Fram­bjóð­andi sem naut stuðn­ings líf­eyr­is­sjóða hefur dregið fram­boð sitt til baka og fram­bjóð­andi á vegum Samherja er sjálf­kjör­inn.

Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, fyrr­ver­andi for­stjóri HB Granda, hefur dregið fram­boð sitt til stjórn­ar­setu í Eim­skipa­fé­lags Íslands (Eimskip) til baka. Hann mun þess í stað bjóða sig fram til vara­stjórnar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands sem birt var í morgun.

Vegna ákvörð­unar hans verður sjálf­kjörið í stjórn Eimskip á fram­halds­að­al­fundi sem fram fer 26. apríl næst­kom­andi, en fimm aðrir sótt­ust eftir setu í fimm manna stjórn félags­ins.

Kjarninn greindi frá því 29. mars síð­ast­lið­inn að ekki hefði tek­ist að kjósa lög­mæta stjórn í Eimskip á aðal­fundi félags­ins sem fram fór dag­inn áður. Vegna þess úrskurð­aði fund­ar­stjóri að fresta ætti aðal­fund­inum í allt að mánuð.

Við­mæl­endur Kjarn­ans úr hópi hlut­hafa sögðu að ástæðan hafi verið þrá­tefli vegna nið­ur­stöðu kosn­inga milli þeirra sex ein­stak­linga sem sótt­ust eftir fimm aðal­stjórn­ar­sæt­um.

Tvær kon­ur, Guð­rún Blöndal og Hrund Rúd­ólfs­dótt­ir, buðu sig fram og voru því í reynd sjálf­kjörnar vegna laga um kynja­kvóta í stjórnum félaga sem eru með fleiri en 50 starfs­menn sem segja að hlut­fall hvors kyns í stjórn sé ekki undir 40 pró­sent.

Fjórir karlar sótt­ust síðan eftir þeim þremur stjórn­ar­sætum sem eftir vor­u. Ann­ars vegar var um að ræða Lárus L. Blöndal lög­mann og Vil­hjálm Vil­hjálms­son, fyrr­ver­andi for­stjóra HB Granda, sem nutu stuðn­ings íslenskra líf­eyr­is­sjóða sem eiga sam­tals rúm­lega helm­ing allra hluta­bréfa í Eim­skip.

Hins vegar voru boðnir fram Bald­vin Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar hjá Sam­herja og sonur Þor­steins Más Bald­vins­son­ar, for­stjóra og eins eig­anda Sam­herja, og Óskar Magn­ús­son, sem gegnt hefur margs­konar trún­að­ar­störfum fyrir eig­endur Sam­herja í gegnum tíð­ina og situr í stjórn fjöl­marga félaga sem tengj­ast sam­stæð­unni. Sam­herji, sem er stærsta útgerð­ar­fé­lag lands­ins og er í ýmiss konar öðrum fjár­fest­ingum í óskyldum grein­um, á 27,1 pró­sent hlut í Eim­skip og er stærsti ein­staki eig­andi félags­ins.

Þrátefli milli lífeyrissjóða og Samherja

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans fór stjórn­ar­kjörið þannig að allir stærstu hlut­hafar félags­ins settu atkvæði sín á karl­anna fjóra sem voru í fram­boði, enda ljóst að kon­urnar tvær voru sjálf­kjörnar hvernig sem fer. Nið­ur­staðan var sú að Lárus fékk flest atkvæði og Vil­hjálmur næst flest. Bald­vin, sem hefur verið stjórn­ar­for­maður Eim­skips frá því í sept­em­ber í fyrra, lenti í þriðja sæti og Óskar í því fjórða. Hann neit­aði hins vegar að víkja og því var ekki hægt að kjósa lög­lega stjórn sem upp­fyllti skil­yrði laga um kynja­kvóta. Því þarf að halda fram­halds­að­al­fund innan mán­aðar til að reyna aft­ur.

Við­mæl­endur Kjarn­ans sem áttu full­trúa á fund­inum sögðu að það hafi verið upp­lifun margra að Sam­herji væri að gera til­raun til þess að ná meiri­hluta í stjórn­inni á grund­velli 27,1 pró­sent eign­ar­hluta félags­ins. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hefðu hins vegar spyrnt á móti því og haft bet­ur á aðal­fund­inum. Nú hefur annar þeirra stjórn­ar­fram­bjóð­enda sem hlaut flest atkvæðin, og naut stuðn­ings líf­eyr­is­sjóð­anna, hins vegar dregið fram­boð sitt til baka.

Samherji með sterka stöðu í eigendahópnum

Sam­herji keypti um fjórð­ungs­hlut í Eim­skip í fyrra­sumar og í sept­em­ber 2018 var hald­inn hlut­hafa­fundur til að kjósa nýja stjórn. Á þeim fundi tók Bald­vin Þor­steins­son við stjórn­ar­taumunum og Guð­rún Blöndal var kjörin ný í stjórn. Þótt Guð­rún byði sig fram sem óháður stjórn­ar­maður þá naut hún stuðn­ings Sam­herja í starfið í haust.

Nú er Óskar Magn­ús­son sjálf­kjör­inn til stjórn­ar­starfa ásamt Bald­vini, og því telja ýmsir við­mæl­endur Kjarnans sem tengj­ast stórum hlut­höfum í Eimskip að Samherji sé að bæta við sig stjórn­ar­manni. Eftir það sé Samherji með meiri­hluta stjórn­ar­manna, vara­mann í stjórn og for­stjóra félags­ins, en í jan­úar síð­ast­liðnum var Vil­helm Már Þor­­steins­­son, frændi stjórn­­­ar­­for­­manns­ins og eig­enda Sam­herja, ráð­inn í starf for­­stjóra Eim­­skips.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár