Endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar margfaldast

End­ur­greiðslur rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar fyr­ir­tækja námu 3,57 millj­örðum í ár. Fyr­ir­tækin sem hlutu hæstu end­ur­greiðsl­urnar í fyrra voru líf­tækni­fyr­ir­tækið Alvotech og stoð­tækja­fyr­ir­tækið Össur.

Höfuðstöðvar Alvotech hér á landi
Höf­uð­stöðvar Alvotech hér á landi Mynd: Úr safni

Heild­ar­end­ur­greiðslur vegna rann­sókna og þró­unar hafa vaxið hratt á und­an­förnum árum og í fyrra námu þær rúmum þremur millj­örðum króna. Stærstur hluti þeirra end­ur­greiðslna rann til fyr­ir­tækja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hæstu end­ur­greiðsl­urnar fengu Össur og Alvotech eða alls 90 millj­ónir hvort fyr­ir­tæki fyrir sig.

Þetta kemur fram í svari ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar um stuðn­ing við nýsköpun.

Endurgreiðslunar vaxið hratt

[links]Skatta­frá­dráttur er hluti af þeim stuðn­ingi sem stjórn­völd veita nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum, með það fyrir augum að efla rann­sóknir og þró­un­ar­starf og bæta sam­keppn­is­skil­yrði slíkra fyr­ir­tækja. En allir þeir lög­að­ilar sem telja sig stunda rann­sóknir og þróun og falla undir lög um stuðn­ing við nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki geta sótt um end­ur­greiðslur.

Fyrstu end­ur­greiðsl­urnar voru árið 2011 vegna kostn­aðar sem féll til árið 2010. Umsóknum um end­ur­greiðslur hefur fjölgað jafnt og þétt síðan þá og hefur heild­ar­fjár­hæð end­ur­greiðslna hækkað sam­hliða því. Auk þess hafa stjórn­völd hækkað þá hámarks­upp­hæð draga má frá skatti með laga­breyt­ingum á síð­ustu árum. [adspot]

Í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar var stefndi að því að afnema þak á end­ur­greiðslur rík­is­ins vegna rann­sókna- og þró­un­ar­kostn­aðar. Í stað þess afnema þakið lagði fjár­mála­ráð­herra fram frum­varp, sem sam­þykkt var í des­em­ber 2018, um að hámarkið á þeim kostn­aði sem fellur til vegna rann­sókn­a og þró­un­ar­ og leyfi­legt verður að draga frá skatti yrði hækkað úr 300 millj­ónum króna í 600 millj­ónir króna. Auk þess var hámarkið hækkað úr 450 millj­ónum í 900 millj­ónir króna ef um sam­starfs­verk­efni er að ræða eða verk­efni sem útheimta aðkeypta rann­sókn­ar- og þró­un­ar­vinnu.

Árið 2011 námu end­ur­greiðslur til fyr­ir­tækja vegna rann­sókna- og þró­un­ar­kostn­aðar 634,6 millj­ónum og átta árum síðar námu þær tæp­lega 3,6 millj­örðum króna, að því er fram kemur í svari ráð­herra. Heild­ar­fjár­hæð end­ur­greiðslna fyr­ir­tækj­anna á síð­ustu 9 árum eru rúmir 16 millj­arðar.

Alvotech hefur fengið 180 milljónir endurgreiddar á síðustu tveimur árum

Alls bár­ust 444 umsóknir um end­ur­greiðslur í fyrra en flestar þeirra komu frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Samkvæmt svari ráð­herra hafa þó yfir 80 pró­sent þeirra sem sækja um end­ur­greiðslur í öllum lands­hlut­unum erindi sem erf­iði.

Rík­is­skatt­stjóri ber þó ein­ungis skylda að birta upp­lýs­ingar um þau nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki sem fá end­ur­greiðslur yfir 60 millj­ónir á ári.

Á vef rík­is­skatt­stjóra má sjá að árið 2018 fengu 11 fyr­ir­tæki end­ur­greiðslur upp á 60 millj­ónir eða meira. Í heild­ina námu end­ur­greiðslur þess­ara 11 fyr­ir­tækja rúm­lega 743 millj­ónum króna.

Fyr­ir­tæki sem fengu svo háar end­ur­greiðslur bæði í fyrra og 2017 voru þónokkur. Þar á meðal voru stór­fyr­ir­tæki á borð við Alvotech, CCP, Advania og Össur. Auk þess fengu LS Retail og Nox Medical 60 millj­óna end­ur­greiðslur bæði árin.

Mikilvægt að hlúa vel að umhverfi stórra fyrirtækja

Í nýrri nýsköp­un­ar­stefnu stjórn­valda sem kynnt var í októ­ber kemur fram að áfram verði litið til end­ur­greiðslu skatta vegna rann­sókna og þró­un­ar­kostn­aðar sem hvata fyrir íslensk nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki.

Jafn­framt kemur fram í stefn­unni að stýri­hóp­ur­inn sem mót­aði stefn­una telji að mik­il­vægt sé að hlúa vel að rekstrar- og starfs­um­hverfi þeirra fyr­ir­tækja sem mynda und­ir­stöðu nýsköpun­ar­um­hverfis á Íslandi í krafti stærðar sinnar, fjármagns, þekk­ingar og reynslu. 

„Nýsköpun­ar­stefnan sem hér er kynnt á að gera Ísland betur í stakk búið að mæta áskor­unum framtíðar­innar með því að byggja upp traustan grundvöll fyrir hug­vits­drifna nýsköpun á öllum sviðum. Nýsköpun er ekki lúxus heldur nauð­syn. Nýsköpun er ekki aðeins grundvöllur efna­hags­legrar vel­engni heldur lyk­ill­inn að úrlausn stærstu við­fangs­efna kom­andi áratuga,“ skrifar Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, nýsköp­un­ar­ráð­herra, í inn­gangi stefn­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár