Þak á endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar hækkað en ekki afnumið

Þak á end­ur­greiðslu rík­is­ins vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar verður ekki afnumið líkt og rík­is­stjórnin stefndi að sam­kvæmt stjórn­ar­sátt­mála. Þess í stað verður hámarks­upp­hæðin tvö­földuð.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur lagt fram nýtt frum­varp sem felur meðal ann­ars í sér að hámark á þeim kostn­aði sem fellur til vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar, og leyfi­legt verður að draga frá skatti, hækki úr 300 millj­ónum króna í 600 millj­ónir króna. Ef um sam­starfs­verk­efni er að ræða eða verk­efni sem útheimta aðkeypta rann­sóknar- og þró­un­ar­vinnu hækkar hækkar hámarkið úr 450 millj­ónum króna í 900 millj­ónir króna, verði frum­varpið að lögum.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur, sem mynduð var fyrir tæpu ári síðan, var fjallað sér­stak­lega um nýsköpun og rann­sóknir og mála­flokk­ur­inn til­greindur þar sem ein af meg­in­á­herslum hennar. Orðið nýsköpun kemur raunar fyrir 18 sinnum í stjórn­ar­sátt­mál­anum. Þá var kveðið á um að rík­is­stjórnin ætli, til að bæta alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni lands­ins, að end­ur­meta fyr­ir­komu­lag á end­ur­greiðslu kostn­aðar vegna rann­sókna og þró­unar í því skyni að afnema þak sem verið hefur á slíkum end­ur­greiðsl­um.

Fyr­ir­liggj­andi frum­varp mun þó ekki gera það heldur hækka þakið. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins er þetta útskýrt þannig að væri „fjár­hæð­ar­þak við­mið­un­ar­fjár­hæða skatt­frá­dráttar vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja afnumið hefði það í för með sér að skattaí­viln­unin félli ekki lengur undir hópund­an­þágu­reglu­gerð­ina. Af því leiddi að til­kynna þyrfti ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, um skattaí­vilnun til hvers og eins fyr­ir­tækis áður en hún kæmi til fram­kvæmda. Ívilnun mætti síðan ekki veita fyrr en að gefnu sam­þykki ESA en tekið gæti allt að 6-8 mán­uði að fá við­brögð stofn­un­ar­innar. Af þessum sökum þykir ekki tækt að afnema fjár­hæð­ar­þakið.“

Verði frum­varpið óbreytt að lögum verður hámarkið þó til að mynda 25 pró­sent hærra hér­lendis en í Noregi sem er með svipað kerfi og Ísland.

Ætlað að efla nýsköpun

End­ur­greiðsla á rann­sókn­ar- og þró­un­ar­kostn­aði er ætlað að efla nýsköpun í land­inu. Sam­kvæmt lögum er ein­göngu heim­ilt að telja fram beinan kostnað við verk­efni og ann­arra aðfanga sem notuð hafa verið við vinnslu þess þegar sótt er um end­ur­greiðslu. Með öðrum orðum þá verða fyr­ir­tæki að aðskilja allan annan rekstur sinn frá því verk­efni sem um ræðir þegar lagðar eru fram kostn­að­ar­tölur við vinnslu þess.

Til þess að fá end­ur­greiðslu á kostn­aði vegna rann­sóknar og þró­un­ar­verk­efna þarf að gera sér­stak­lega grein fyrir verk­efn­inu í raf­rænni skrán­ingu umsóknar á heima­síðu Rannís. Með þarf að fylgja stutt við­skipta­á­ætlun og ef um sam­starfs­verk­efni er að ræða þá þarf sam­starfs­samn­ingur líka að ber­ast til Rannís. Þá á að fylgja með lýs­ing á verk­efn­inu ásamt verk- og kostn­að­ar­á­ætl­un.

Um 2,9 milljarðar í fyrra

Heild­ar­af­sláttur vegna rann­sókna- og þró­un­ar­kostn­aðar var sam­tals um 2,94 millj­arðar króna í fyrra, sem er aðeins meira en árið 2016, þegar hann nam 2,8 millj­örðum króna. Afslátt­ur­inn virkar þannig að hann gengur upp í álagðan tekju­skatt ef fyr­ir­tækið sem á rétt á honum er rekið í hagn­aði og greiðir slík­ar. Alls jókst skulda­jöfnun á móti tekju­skatti úr 438 millj­ónum króna í 624 millj­ónir króna. Þorri afslátt­ar­ins er þó enn í formi beinnar end­ur­greiðslu. Rúm­lega 2,3 millj­arður króna fór til fyr­ir­tækja sem þáðu slíka vegna rann­sókna og þró­un­ar.

Athygli vekur að þeim fyr­ir­tækjum sem fengu afslátt­inn í fyrra fjölg­aði ein­ungis um eitt milli ára. Þau voru 143 árið 2016 en 144 ári síðar.

End­ur­greiðsl­urnar hafa vaxið mikið á und­an­förnum árum. Milli áranna 2016 og 2017 juk­ust þær til að mynda um 800 millj­ónir króna. Ástæðan fyrir þeirri miklu aukn­ingu var sú að hámarks­upp­hæð sem nýta mátti í rann­sóknir og þróun og draga má frá skatti var hækkuð úr 100 millj­ónum króna í 300 millj­ónir króna með laga­breyt­ingu sem sam­þykkt var í byrjun júní 2016. Ef um er að ræða sam­starfs­verk­efni eða sem útheimta aðkeypta rann­sókn­ar- eða þró­un­ar­vinnu hækkar hámarkið í 450 millj­ónir króna. End­ur­greiðslan gat þó að hámarki numið 20 pró­sent af sam­þykktum kostn­aði.

Nú stendur til, líkt og áður sagði, að tvö­falda upp­hæð­ina sem hægt er að fá í end­ur­greiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár