Vilja að embætti skattrannsóknarstjóra verði veitt ákæruvald

Lögð hefur verið fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga þar sem lagðar eru til breyt­ingar á emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins í þá veru að emb­ætt­inu verði veitt ákæru­vald og heim­ild til sak­sóknar í þeim málum sem það rann­sak­ar.

Oddný Harðardóttir
Oddný Harð­ar­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Sjö þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um breyt­ingu á emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins. Fyrsti flutn­ings­maður er Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Í til­lög­unni er lagt til að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra skipi starfs­hóp sem vinni drög að laga­frum­varpi sem kveði á um breyt­ingu á emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins í þá veru að emb­ætt­inu verði veitt ákæru­vald og heim­ild til sak­sóknar í þeim málum sem það rann­sakar.

Í starfs­hópnum eigi að minnsta kosti sæti sér­fræð­ingar frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og frá dóms­mála­ráðu­neyti sem og full­trúar til­nefndir af skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins, hér­aðs­sak­sókn­ara og rík­is­sak­sókn­ara. Ráðherra leggi fram laga­frum­varp sem bygg­ist á vinnu starfs­hóps­ins á næsta lög­gjaf­ar­þingi.

Ekkert nýtt að benda á tvíverknað

Í grein­ar­gerð­inni með til­lög­unni segir að í meira en ald­ar­fjórð­ung hafi reglu­lega verið vakin athygli á nauð­syn þess að upp­ræta aug­ljósan tví­verknað í rann­sókn á skattsvikum og efna­hags­brotum og útgáfu ákæra á því sviði, jafnt í þing­málum sem og mörgum skýrslum og grein­ingum. Fyr­ir­komu­lagið sem er við lýði hér á landi sé sein­virkt og kostn­að­ar­samt og hvorki hinu opin­bera né meintum sak­born­ingum í hag. Með löngum máls­með­ferð­ar­tíma vaxi auk þess hættan á að rétt­ar­spjöll verði sem leiði til mild­ari dóma en ella eða jafn­vel sýknu eins og dæmi séu um.

Þá kemur fram að eins og lög­gjöf er nú háttað sé þeim brotum sem þykja alvar­leg sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókna skatt­rann­sókn­ar­stjóra vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara til „opin­berrar rann­sóknar og venju­legrar saka­mála­með­ferðar“.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá skatt­rann­sókn­ar­stjóra sé það svo að þrátt fyrir að málum frá emb­ætt­inu sé sam­kvæmt orð­anna hljóðan vísað til rann­sóknar hér­aðs­sak­sókn­ara sé almennt ekki um að ræða rann­sókn mál­anna frá grunni hjá því emb­ætti heldur séu rann­sókn­irnar alla jafna reistar á þeirri rann­sókn sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur fram­kvæmt og lýst er í skýrslu hans um við­kom­andi mál.

Þannig sé byggt á gagna­öflun skatt­rann­sókn­ar­stjóra auk þess sem nið­ur­stöður skatt­rann­sókn­ar­stjóra séu yfir­leitt lagðar til grund­vallar að öllu leyti. Við rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara sé sak­born­ingur síðan kvaddur til skýrslu­töku vegna máls­ins. Geti þannig átt sér stað viss tví­tekn­ing en ekki sé þó um að ræða algjöra end­ur­tekn­ingu rann­sóknar.

Í flestum til­vikum höfði hér­aðs­sak­sókn­ari mál að öllu leyti sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókna skatt­rann­sókn­ar­stjóra og nær ein­vörð­ungu ef um ein­fald­ari mál er að ræða. Í ein­hverju til­vikum sé ekki ákært fyrir alla þætti sam­kvæmt nið­ur­stöðum skatt­rann­sókn­ar­stjóra, en í fáeinum til­vikum séu mál felld niður með öllu vegna þess að ekki þyki til­efni til sak­sóknar. Skatt­rann­sókn­ar­stjóra sé ekki kunn­ugt um sam­svar­andi end­ur­tekn­ingu rann­sókna í fyr­ir­komu­lagi ann­arra þjóða.

140 mál óafgreidd í september

Að mati flutn­ings­manna væri það vel til þess fallið að auka skil­virkni að veita skatt­rann­sókn­ar­stjóra ákæru­vald í þeim málum sem emb­ættið rann­sakar. Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að í sept­em­ber 2019 hafi 140 óaf­greidd mál frá skatt­rann­sókn­ar­stjóra verið hjá hér­aðs­sak­sókn­ara.

Enn fremur kemur fram í grein­ar­gerð­inni með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni að skatt­rann­sókn­ar­stjóri skuli nú þegar gæta í sínum rann­sókn­ar­að­gerðum að lögum um með­ferð saka­mála eftir því sem við getur átt. Þekking skatt­rann­sókn­ar­stjóra til að rann­saka saka­mál af þessu tagi sé þegar til staðar.

„Sakamál vegna skatta­laga­brota krefj­ast sér­þekk­ingar og sér­hæf­ingar, bæði hvað varðar rann­sóknir og sak­sókn. Það stuðlar að skil­virkni að einn og sami aðil­inn ann­ist hvort tveggja. Slík til­högun er þekkt í öðrum löndum, þar á meðal í Þýska­landi. Í þriðju útgáfu skýrslu Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD) sem ber heitið Effective Inter-Agency Co-Operation í Fighting Tax Crimes and Other Financial Crimes frá 8. nóv­em­ber 2017 má sjá að til­högun rann­sóknar og sak­sóknar í skatta­málum er hagað með mjög mis­mun­andi hætti eftir ríkjum. Má almennt segja að þar séu aðilar að reyna að sam­tvinna ann­ars vegar sér­þekk­ingu á skatta­rétti og hins vegar skil­virkni ákæru­með­ferðar,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Mun koma í veg fyrir óþarfa fyrirhöfn og kostnað fyrir hið opinbera

Einnig nefna flutn­ings­menn að pen­inga­þvætti teng­ist oft skattsvikum og komi fram í skýrslu FATF og áhættu­mati rík­is­lög­reglu­stjóra frá því fyrr á árinu að skatta­laga­brot séu ein helstu frum­brot pen­inga­þvættis. Rannsókn pen­inga­þvætt­is­brota sé sam­kvæmt lögum á hendi hér­aðs­sak­sókn­ara. Vegna þess hve mjög pen­inga­þvætt­is­brot tvinn­ist saman við frum­brot liggi hins vegar vel við að rann­saka pen­inga­þvætti vegna skattsvika sam­hliða þeim skatta­laga­brotum sem um ræðir. Hafi þeirri skipan einmitt verið komið á í Svíþjóð nú í ár.

Flutn­ings­menn telja að verði tví­verkn­aður við rann­sóknir saka­mála aflagður muni það koma í veg fyrir óþarfa fyr­ir­höfn og kostnað fyrir hið opin­bera og óþarfa íþyng­ingu fyrir sak­born­inga. Líta megi til reynslu af rann­sókn stórra flók­inna mála sem nýlega hafi verið og séu á borðum emb­ætt­anna. Því sé lagt til að Alþingi álykti að fela fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að skipa starfs­hóp sem vinni drög að laga­frum­varpi sem kveði á um breyt­ingu á emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins í þá veru að emb­ætt­inu verði veitt ákæru­vald og heim­ild til sak­sóknar í þeim málum sem það rann­sakar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár