Búist við að í lok apríl hafi 2.500 manns smitast hér á landi

Spá yfir fjölda til­fella og álag á heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi hefur breyst veru­lega frá því 19. mars þar sem far­ald­ur­inn er í veld­is­vexti og frá þeim tíma hefur fjöldi til­fella allt að því tvö­fald­ast.

Spá yfir fjölda til­fella og álag á heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi hefur breyst veru­lega frá því 19. mars þar sem far­ald­ur­inn er í veld­is­vexti og frá þeim tíma hefur fjöldi til­fella allt að því tvö­fald­ast.

Þetta sýnir spálíkan sem vís­inda­menn við Háskóla Íslands hafa þróað í sam­starfi við Land­lækn­is­emb­ættið, Land­spít­ala og sótt­varna­yf­ir­völd vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. 

[adspot]

Helstu nið­ur­stöður spálík­ans­ins með gögnum til og með 22. mars eru eft­ir­far­andi:

Búist er við því að fyrir lok apríl 2020 hafi lík­lega um 2.500 manns á Íslandi verið greindir með COVID-19, en talan gæti náð tæp­lega 6.000 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Búist er við að fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan sjúk­dóm nái hámarki á fyrstu vikum apríl, og verði senni­lega nær 2.000 manns, en gæti náð tæp­lega 4.500 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Búist er við að á meðan að far­ald­ur­inn gengur yfir muni um 170 manns þarfn­ast aðhlynn­ingar í inn­lögn á sjúkra­húsi, en gæti náð um 400 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Mesta álag á heil­brigð­is­þjón­ustu vegna sjúkra­húsinn­lagna verður um miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að um 90 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi, en svart­sýn­asta spá er 200 ein­stak­lingar.

Búist er við því að um 20 ein­stak­lingar veik­ist alvar­lega, þ.e. þarfn­ist gjör­gæslu, á tíma­bil­inu en svart­sýn­asta spá er á bil­inu 45 til 50 ein­stak­lingar.

Mesta álag á gjör­gæslu­deildir gæti verið í annarri viku apríl, en þá er búist við því að sjö manns liggi þar inni á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá gætu það verið 18 manns.

[adspot]

Hafa ber fámennið í huga

Grein­ing­ar­vinnan mun halda áfram og spálíkanið verður upp­fært reglu­lega með nýjum upp­lýs­ingum, segir á vefnum. „Hafa ber í huga að vegna fámennis geta töl­urnar um fjölda greindra til­fella breyst mikið frá degi til dags sem hefur áhrif á nið­ur­stöður spálík­ans­ins. Líkanið verður þó stöðugra eftir því sem á líður.“

Rann­sóknir á þróun COVID-19 far­ald­urs­ins hér á landi og í öðrum löndum gera vís­inda­mönnum kleift að setja fram spá um frek­ari þróun hans á Íslandi. Sótt­varn­ar­læknir kall­aði því saman vís­inda­menn frá Háskóla Íslands, Embætti Land­læknis og Land­spít­ala til að gera spálíkan um lík­lega þróun sem gæti nýst við ákvarð­ana­töku um við­brögð og skipu­lag heil­brigð­is­þjón­ustu.

Fyrstu nið­ur­stöður spálík­ans­ins voru kynntar á fundi með almanna­vörnum 18. mars. Þá var gert ráð fyrir því að allt að 1.200 manns gætu greinst með COVID-19 veiruna þegar far­ald­ur­inn næði hámarki hér á landi og að fyrir lok maí gæti talan náð rúm­lega 2.000 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár