Mæla „mjög líklega“ með bólusetningum 12-15 ára á næstunni

Heil­brigð­is­yf­ir­völd munu „mjög lík­lega“ mæl­ast til þess að 12-15 ára börn verði bólu­sett á næst­unni, í ljósi upp­gangs far­ald­urs COVID-19 á Íslandi. Rúmlega 2.400 börn á þessum aldri hafa þegar fengið bólu­setn­ingu.

Kamilla Sigríður Jósefsdóttir sérfræðingur hjá sóttvarnalækni.
Kamilla Sigríður Jós­efs­dóttir sér­fræð­ingur hjá sótt­varna­lækni. Mynd: Almannavarnir

Bólu­setn­ingar barna á aldr­inum 12-15 ára eru til skoð­unar hjá sótt­varna­lækni og það kemur mjög lík­lega að því að mælst verði til þessi ald­urs­hópur verði bólu­settur gegn COVID-19, en bæði bólu­efni Pfizer og Moderna hafa fengið mark­aðs­leyfi í Evrópu í þessum ald­urs­hópi.

Í dag geta for­eldrar beðið um bólu­setn­ingu fyrir börn á þessu ald­urs­bili og hafa alls 2.461 börn í þessum hópi þegar fengið að minnsta kosti eina sprautu.

Ef ákveðið verður að hvetja þennan hóp sér­stak­lega til þess að þiggja bólu­setn­ingu, eða þá öllu heldur for­eldra barna á þessum aldri, þyrfti að hugsa upp á nýtt hvernig þær fjölda­bólu­setn­ingar færu fram.[links]

Praktísk atriði

Kamilla Sigríður Jós­efs­dóttir sér­fræð­ingur hjá sótt­varna­lækni sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að það horfði öðru­vísi við þegar verk­efnið væri að bólu­setja 12-15 ára ung­linga sem væru ekki komnir sjálf­vilj­ugir í bólu­setn­ing­una.

Það yrði ekki gert við sam­bæri­legar aðstæður og voru í fjölda­bólu­setn­ing­unni í Laug­ar­dals­höll. „Þá þarf að gera nýtt skipu­lag sem er ekki til, og þetta þarf allt að und­ir­búa vel,“ sagði Kamilla.

„Ógnvekjandi“ aukaverkanir

Hún var spurð út í áhættu­mat barna­bólu­setn­inga á upp­lýs­inga­fundi dags­ins, þar sem hún leysti Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni af hólmi. Spurn­ingin var um það hvort hættan af bólu­setn­ingu barna 12-15 ára væri meiri en áhætta þeirra af því að smit­ast af COVID-19.

[adspot]

„Það eru auka­verk­anir varð­andi hjarta­vöðva­bólgu og sér­stak­lega goll­urs­hús­bólgu, sem er sekk­ur­inn í kringum hjartað, sem geta verið mjög ógn­vekj­andi en ganga sem betur fer yfir af sjálfu sér, jafn­vel án með­höndl­unar. En geta verið mjög ógn­vekj­andi, því ein­kennin eru mæði og brjóst­verkur sem maður vill ekki sjá hjá barn­inu sínu,“ sagði Kamilla.

Hún bætti því við að þessi auka­verkun bólu­efn­anna væri algeng­ari hjá ein­stak­lingum undir þrí­tugu og að því miður virt­ist algengið aukast eftir því sem fólk væri yngra.

„Við viljum fara var­lega í sak­irnar en það kemur mjög lík­lega að því miðað við ástandið í bylgj­unni núna að við munum mæla með bólu­setn­ingu ung­menna líka,“ sagði Kamilla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár