Alma: „Svörin fást á næstu vikum“

„Við erum auð­vitað öll komin með leið á þess­ari veiru,“ segir Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Hún minnti á að bólu­setn­ingar veita góða vörn gegn veik­indum af völdum kór­ónu­veirusmits og þá sér í lagi alvar­legum veik­indum.

Alma Möller landlæknir ræddi um óvissu og þekkingarleitina sem nú stendur yfir á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Alma Möller land­læknir ræddi um óvissu og þekk­ing­ar­leit­ina sem nú stendur yfir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Mynd: Almannavarnir

Alma D. Möller land­læknir minnti á að bólu­setn­ing gagn­vart COVID-19 dregur sem betur fer mikið úr þeim veik­indum sem sjúk­dóm­ur­inn getur valdið og ekki síst alvar­legum veik­indum, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Hún sagð­ist von­ast til þess að myndin af stöðu mála hér­lendis myndi skýr­ast „innan fárra vikna“ og þá þyrfti að skoða við­brögð og varnir til lengri tíma.

„Svörin fást á næstu vikum,“ sagði Alma, en þeirra verður ekki ein­ungis leitað hér­lendis heldur einnig hjá öðrum þjóðum þar sem bólu­setn­ingar eru vel á veg komnar, einkum Bretum og Ísraelum.

Einungis tveir eru inn­lagðir á sjúkra­hús með COVID-19 sem stendur, af þeim 695 ein­stak­lingum sem eru í ein­angrun með stað­fest smit. Mikill meiri­hluti þeirra sem hafa verið að grein­ast und­an­farna daga er ungt fólk, undir fer­tugu.

Alma sagði að núna á næstu dögum og vikum yrði fylgst með þró­un­inni. Enn væri óvissa um það hvernig hversu margir sem eru óbólu­settir, af ein­hverjum ástæðum, myndu veikj­ast alvar­lega og einnig það hvernig veiran myndi leggj­ast í þá sem eru bólu­settir, en væru aldr­aðir eða með bælt ónæm­is­kerfi.

Óvissan sneri að því hvernig delta-afbrigði veirunnar myndi hegða sér hjá þjóð sem væri nán­ast full­bólu­sett. „Við erum auð­vitað öll komin með leið á þess­ari veiru,“ sagði Alma og ítrek­aði að verk­efnið framundan sner­ist um að leita að þekk­ingu til þess að ákveða hvaða skref ætti að taka næst og síðan til fram­tíðar.

Að minnsta kosti 96 smit í gær

Kamilla Sigríður Jós­efs­dóttir sér­fræð­ingur hjá sótt­varna­lækni greindi frá því á fund­inum að 96 inn­an­lands­smit hið minnsta hefðu greinst með COVID-19 inn­an­lands í gær og að enn væri verið að vinna úr sýnum sem hefðu verið tekin, en þau voru mörg.

[adspot]

Á vefnum covid.is var í morgun sagt frá því að 82 hefðu greinst inn­an­lands, en Kamilla sagði lík­legt að sú tala yrði upp­færð þegar liði á dag­inn.

Kallað eftir bakvörðum í sýnatökur og fleira

Land­læknir sagði heil­brigð­is­kerfið okkar vera við­kvæmt, vegna smæðar, langvar­andi mönn­un­ar­vanda, hús­næð­is­mála og núna vegna langvar­andi álags sökum far­ald­urs­ins.

Hún minnti á bak­varða­sveit heil­brigð­is­þjón­ust­unnar, sem hefur nú verið virkjuð í þriðja sinn í far­aldr­inum. Heil­brigð­is­starfs­menn sem vinna ekki í heil­brigð­is­kerf­inu eru hvattir til að skrá sig og einnig verður opnað á skrán­ingar þeirra sem ekki eru heil­brigð­is­starfs­menn, því það vantar í „ýmis önnur störf“, til dæmis starfs­fólk til að sinna sýna­tökum, í eld­hús­störf og fleira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár