Enginn „á rauðu“ á COVID-göngudeildinni

Þrír sjúk­lingar liggja á legu­deildum Land­spít­al­ans með COVID-19 sjúk­dóm­inn. Rúmlega 700 manns eru í eft­ir­liti á COVID-göngu­deild­inni en eng­inn þeirra er „á rauðu“.

Yfir 700 manns eru í eftirliti á COVID-göngudeild Landspítalans.
Yfir 700 manns eru í eft­ir­liti á COVID-göngu­deild Land­spít­al­ans. Mynd: Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Á hádegi í dag voru þrír sjúk­lingar inniliggj­andi á legu­deildum Land­spít­al­ans með COVID-19. 705 eru í eft­ir­liti á COVID-göngu­deild­inni, þar af 74 börn. Enginn er „á rauðu“, segir í til­kynn­ingu frá far­sótt­ar­nefnd spít­al­ans en sá litur er not­aður yfir þá sem eru með alvar­leg ein­kenni og gætu þurft á inn­lögn að halda innan skamms. Hins vegar eru 22 ein­stak­lingar flokk­aðir „gulir“.

[adspot]

Fjórtán starfs­menn spít­al­ans eru í ein­angrun. Þrjátíu starfs­menn eru í sótt­kví A og 149 í vinnu­sótt­kví.

Far­sótt­ar­nefndin áréttar, í sam­bandi við sitt lita­kóð­un­ar­kerfi á veik­indum sjúk­linga að það að ein­stak­lingur sé á grænu þýðir ekki sjálf­krafa að hann sé ein­kenna­laus. Hann getur verið með ýmis ein­kenni en vegna ald­urs, fyrra heilsu­fars, áhættu­þátta o.s.frv. getur hann flokk­ast grænn með litla, meðal, eða mikla áhættu á að þróa frek­ari veik­indi.

Á sama hátt eru þeir sem flokk­ast „gulir“ einnig með mis­mikil ein­kenni og eft­ir­lit þeirra stýr­ist af áhættu­mati og líkum á frek­ari veik­indum. Þeir sem eru „rauðir“ eru með mikil ein­kenni og eru í mestri áhættu að verða alvar­lega veikir og þarfn­ast inn­lagnar. Þessi aðferð við að flokka sjúk­linga og veita þeim eft­ir­lit við hæfi hefur reynst afar vel á göngu­deild­inni frá byrjun og er t.d. veg­vísir um hvenær skal kalla við­kom­andi inn til skoð­unar og með­ferðar í göngu­deild og hversu títt þarf að hringja í hann og meta ástandið. „Það gefur því ekki rétta mynd af ástand­inu að horfa ein­ungis á fjölda ein­stak­linga með ákveðna lita­kóðun heldur eru fleiri breytur sem hjálpa fag­fólk­inu að skipu­leggja eft­ir­litið og for­gangs­raða með öryggi sjúk­linga að leið­ar­ljósi,“ segir í árétt­ingu far­sótt­ar­nefnd­ar­innar.

Hátt í hundrað smit á einum degi

Að minnsta kosti 96 smit af kór­ónu­veirunni greindust inn­an­lands í gær. Fyrir hádegi í dag var enn verið að greina sýni en yfir 4.000 slík voru tekin í gær. Flestir þeirra sem greindust í gær eða yfir 70 pró­sent, voru utan sótt­kvíar og meiri­hluti þeirra var bólu­settur eins og verið hefur síð­ustu daga.

Að minnsta kosti 141 óbólu­settur ein­stak­lingur hefur greinst með veiruna inn­an­lands síð­ustu átta daga.

Alma Möller land­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi í morgun að bólu­setn­ing dragi „sem betur fer“ mikið úr veik­indum hjá fólki, ekki síst alvar­legum. Hún sagði aðgerðir inn­an­lands nú gerðar vegna óvissunnar um virkni bólu­efna sem nú væri uppi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár