Metfjöldi smita á einum degi frá upphafi faraldurs

Samtals greindust 123 smit inn­an­lands í gær sam­kvæmt upp­færðum tölum. Það er met á einum degi en fyrra metið varð í mars í fyrra þegar 106 greindust.

123. Svo mörg voru smitin af kór­ónu­veirunni inn­an­lands í gær. Samkvæmt fyrstu tölum í morgun voru þau 82 en á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis kom svo fram að vegna álags hefði ekki verið búið að greina öll þau 4.000 sýni sem tekin voru í gær. Og nú er talan ljós: 123.

Þetta er met­fjöldi á einum degi frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Þann 24. mars í fyrra greindust 106 smit og urðu þau ekki fleiri á einum degi í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins.

Í þriðju bylgj­unni síð­asta haust urðu þau flest 100 tals­ins þann 5. októ­ber.

Staðan er þó önnur nú hvað alvar­leg veik­indi varðar. 24. mars lágu sautján sjúk­lingar á sjúkra­húsi með COVID-19 og tveir á gjör­gæslu. Sá fjöldi jókst mikið dag­ana á eftir og 2. apríl lágu 44 á sjúkra­húsi og 12 á gjör­gæslu.

Í dag liggja þrír á legu­deildum Land­spít­al­ans með COVID-19. Yfir 700 manns eru í eft­ir­liti á COVID-göngu­deild­inni, þar af á átt­unda tug barna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár