Hvar endar tap Arion banka á United Silicon?

Arion banki á kís­il­máls­verk­smiðju Í Helguvík sem hefur ekki verið í starf­semi í þrjú ár. Bankinn hefur fjár­fest í úrbótum en óljóst er hvort að þær dugi til að koma verk­smiðj­unni aftur í gang. Í vik­unni var bók­fært virði hennar fært niður um 1,5 millj­arð.

Nýr kafli var rit­aður í sögu kís­il­málm­verk­smiðj­unnar United Silicon í síð­ustu viku, þegar Arion banki, sem reynt hefur að selja hana um nokkuð langt skeið, færði niður virði verk­smiðj­unnar um 1,5 millj­arða króna. Það ger­ist þrátt fyrir að bank­inn hafi verið að fjár­festa í úrbótum á henni til að reyna að koma verk­smiðj­unni aftur í starf­hæft, og sölu­hæft, ástand.

Rúm þrjú ár eru síðan að kís­il­málm­verk­smiðj­unni, sem er stað­sett í Helguvík á Suð­ur­nesjum, var lokað. Félagið utan um rekstur hennar var svo sett í þrot í jan­úar 2018.

Fjöl­margir töp­uðu háum fjár­hæðum á ævin­týr­inu. Frjálsi líf­eyr­is­­­­­sjóð­­­­­ur­inn, sem fjár­­­­­­­­­festi 1.178 millj­­­­­ónum króna í United Silicon, hefur fært niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­­­­ur­inn á í félag­inu um 100 pró­­­­­sent. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­­­­launa­­­­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­­­­manna (EFÍA). Þar nemur nið­­­­­ur­­­­­færslan einnig 100 pró­­­­­sent­­­­­um.

Líf­eyr­is­­­­­sjóð starfs­­­­­manna Bún­­­­­að­­­­­ar­­­­­banka Íslands (LSBÍ) fjár­­­­­­­festi einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­­­un­­­­­ar­­­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­­­stöðvum hans í Borg­­­­­ar­­­­túni.

[adspot]Sá sem stóð fyrir verk­efn­inu, Magnús Garð­ars­son, hefur verið til rann­sóknar vegna gruns um að hafa framið stór­felld auðg­un­ar­brot og að hafa svikið út háar fjár­hæðir. Þrotabú United Silicon hefur einnig stefnt honum fyrir meint fjár­svik hans. Á meðal þess sem rök­studdur grunur er um er að Magnús hafi, í starfi sínu sem for­stjóri United Silicon, falsað reikn­inga og und­ir­skrift­ir, átt við lána­samn­inga og búið til gervi­lén í við­leitni sinni til að draga að sér fé úr fyr­ir­tæk­inu.

Eignir rekstr­ar­fé­lags United Silicon, sem sam­an­standa af óstarf­hæfri verk­smiðju og öllu sem henni teng­ist, voru færðar yfir í félag í eigu stærsta kröfu­hafa hennar, Arion banka, sem átti veð í und­ir­liggj­andi eignum. Hann afskrif­aði 4,8 millj­arða króna vegna verk­efn­is­ins en bók­færði verk­smiðj­una á 5,2 millj­arða króna í árs­lok 2017. Á þeim tíma var líka útistand­andi lánslof­orð og ábyrgðir upp á 900 millj­ónir króna.

Í reikn­ingum bank­ans hefur gætt bjart­sýni um að hægt verði að koma henni í rekstur að nýju og selja hana til nýrra eig­enda. Opin­ber­lega hefur Arion banki greint frá því að á þriðja tug aðila hafi lýst ein­hvers­konar áhuga á kaupum á henni.

Áfram veginn

Í lok árs 2018 hafði virði Stakk­bergs, eign­ar­halds­fé­lags­ins sem stofnað var utan um verk­smiðj­una í Helguvík, hækkað í 6,5 millj­arða króna. Í árs­reikn­ingi Arion banka fyrir það ár sagði að salan á Stakks­bergi hefði seinkað nokkuð, ekki síst vegna flók­ins reglu­verks, en að bank­inn ynni „ákveðið að fram­gangi söl­unnar og að hún verði eins fljótt og kostur er.“

Mikil and­staða er hins vegar gagn­vart því að verk­smiðjan verði end­ur­ræst á meðal íbúa í Reykja­nesbæ, við hlið Helgu­víkur. Þar hafa félaga­sam­tök kraf­ist þess að fram fari bind­andi íbúð­ar­kosn­ing um hvort að starf­semin fái að þríf­ast á svæð­inu. Þau vilja enn fremur að starfs­leyfi verk­smiðj­unnar verði aft­ur­kallað.

Um miðjan des­em­ber það ár greindi Kjarninn frá því að Arion banki hefði engan hug á því að láta undan þeim óskum. Í bréfi sem Stakks­berg sendi til Skipu­lags­stofn­unar í fyrra sagði: „Verk­smiðjan hefur þegar verið byggð á lóð­inni fyrir um 22 millj­arða króna. Um er að ræða rétt­indi sem njóti verndar eign­ar­rétt­ar­á­kvæðis 72. gr. stjórn­ar­skrár­innar og atvinnu­rétt­indi sem njóti verndar 75. gr. stjórn­ar­skrár. Um slík rétt­indi verði ekki kosið í almennum kosn­ingum að mati Stakks­berg ehf.“

[adspot]Ef til kosn­inga kæmi þá taldi Stakks­berg að Reykja­nes­bær hefði bakað sér bóta­skyldu. Ef kosn­ing myndi leiða til þess að ekki væri hægt að starf­rækja þá verk­smiðju sem þegar hefur verið byggð á lóð­inni mun það að mati Stakks­berg ehf. leiða af sér skaða­bóta­skyldu gagn­vart eig­anda lóð­ar­innar[...]Sökin væri nokkuð aug­ljós enda um að ræða ásetn­ing til þess að koma í veg fyrir til­tekna starf­semi/upp­bygg­ingu sem þegar hafði verið fall­ist á og hefði þegar leitt til veru­legrar fjár­fest­ingar.“

Virðið hélt áfram að hækka

Í lok mars, þegar þriggja mán­aða upp­gjör Arion banka fyrir árið 2019 var birt, var virði Stakks­berg komið upp í tæp­lega 6,9 millj­arða króna. Unnið var að end­ur­bótum á verk­smiðj­unni sem metnar voru á 4,5 millj­arða króna. Þær end­ur­bætur voru í sam­ræmi við skil­yrði sem Umhverf­is­stofnun hafði sett þegar hún sam­þykkti úrbóta­á­ætlun fyrir verk­smiðj­una. Á meðal þess sem stefnt var að því að gera vegna þessa var að byggja 52 metra háan skor­stein sem draga ætti úr mengun frá verk­smiðj­unni, þar á meðal lykta­mengun. Til sam­an­burðar er Hall­gríms­kirkja 74,5 metrar á hæð.

Í hálfs­árs­upp­gjöri Arion banka var ekki lengur hægt að sjá hvað bank­inn metur Stakks­berg á. Ástæðan er sú að Stakks­berg er í eigu ann­ars eign­ar­halds­fé­lags bank­ans, Eigna­bjargs, og inn í það félag var búið að bæta annarri eign, Sól­bjargi ehf. Það félag heldur á eft­ir­stand­andi eignum TravelCo, sem Arion banki sat uppi með vegna ann­ars við­skipta­vinar sem hann hafði lánað mikið fé en farið hafði í þrot, Primera Air-sam­stæð­unnar. Sam­an­lagt virði þess­ara tveggja félaga var sagt 8,8 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins.

Virðið fært niður

Á mánu­dag var svo greint frá því, með afkomu­við­vörun til Kaup­hallar Íslands, að nei­kvæð áhrif af aflagðri starf­semi og eignum til sölu á afkomu Arion banka á þriðja árs­fjórð­ungi 2019 næmi þremur millj­örðum króna. Þar mun­aði mestu um alls 1,5 millj­arða króna nið­ur­færslu á virði Stakks­bergs.

Í til­kynn­ing­unni segir orð­rétt: „Vegna erf­iðra mark­aðs­að­stæðna, m.a. lágs síli­kon­verðs á heims­mark­aði, nið­ur­færir Arion banki eignir Stakks­bergs um 1,5 millj­arð króna. Stakks­berg er eign­ar­halds­fé­lag um síli­kon­verk­smiðju í Helgu­vík sem er í sölu­ferli. Unnið hefur verið að und­ir­bún­ingi sölu verk­smiðj­unnar m.a. með umhverf­is­mati og nýjum samn­ingum við orku­fyr­ir­tæki.“

Benedikt Gíslason, sem tók við stöðu banka­stjóra Arion banka í sumar, sagði í kjöl­farið í sam­tali við RÚV að hann hefði enn trú á því að hægt yrði að selja kís­il­málm­verk­smiðj­una. „Við verðum að láta á það reyna. Við eigum þessa eign í bókum og tókum hana yfir vegna rekstr­ar­örð­ug­leika og það er okkar hlut­verk að reyna að koma henni í verð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Unitedsilicon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár