Mögulega margir bótaskyldir vegna United Silicon

Unnin hefur verið skýrsla fyrir þá fimm líf­eyr­is­sjóði sem fjár­festu í United Silicon, sem tekið var til gjald­þrota­skipta í fyrra. Í skýrsl­unni segir að skoða þurfi hvort þeir opin­beru aðilar og ráð­gjafar sem komu að verk­efn­inu séu bóta­skyldir.

Stefán Árni Auð­ólfs­son lög­maður hefur unnið skýrslu fyrir þá fimm líf­eyr­is­sjóði sem fjár­festu í félag­inu United Silicon, sem tekið var til gjald­þrota­skipta í fyrra. Í skýrsl­unni segir að eðli­legt sé að líf­eyr­is­sjóð­irnir kanni rétt sinn gagn­vart þeim opin­beru aðilum og verk­fræði­stofum sem komu að ein­hvern hátt að verk­efn­inu. Stefán segir jafn­framt að afla verði frek­ari gagna svo hægt verði að leggja skýr­ara mat á mögu­lega bóta­skyldu. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Möguleg bótaskylda verkfræðistofa

Stefán segir það ljóst að höf­uð­á­byrgðin virð­ist liggja í höndum fram­kvæmda­stjóra United Silicon. Hann segir að þá hafi margt einnig brostið hjá opin­berum aðilum og ráð­gjöfum í verk­efn­inu. „Þá kemur bara til skoð­unar hvort þessir aðilar gætu hafa bakað sér bóta­skyldu með atferli sínu eða jafn­vel athafna­leysi,“ segir Stefán í sam­tali við Frétta­blaðið.

Í skýrsl­unni leggur Stefán Árni til að frek­ari gagna verði aflað til að hægt verði að leggja skýr­ara mat á mögu­lega bóta­skyldu þeirra verk­fræði­stofa sem fengnar voru til að leggja mat á áætl­anir, og end­ur­skoð­enda félags­ins. Þar sem ákvarð­anir um fjár­fest­ingar hafi að hluta til verið teknar á grund­velli vinnu og gagna þess­ara aðila.

Stefán segir jafn­framt að það verði ekki hjá því kom­ist, að virtum athuga­semdum Rík­is­end­ur­skoð­unar, að skoða frekar þá þætti sem snúa að opin­berum aðilum. Þar á meðal vinnu við mat á umhverf­is­á­hrifum, útgáfu starfs­leyfa og gerð fjár­fest­ing­ar­samn­inga um rík­is­að­stoð og íviln­anir. Eðlilegt sé að líf­eyr­is­sjóð­irnir kanni rétt sinn gagn­vart þessum opin­beru aðilum enda hafi umrædd atriði verið meðal lyk­il­for­sendna fjár­fest­ing­anna.

Geir Gestsson, skipta­stjóri þrota­bús United Silicon, segir í sam­tali við Frétta­blaðið, að tvö skaða­bóta­mál séu í gangi gegn Magnúsi Garða­syni. Auk þess sé verið höfða mál á hendur end­ur­skoð­enda fyr­ir­tæk­is­ins vegna hlut­fjár­hækk­ana. Geir segir jafn­framt önnur mál vera í gangi hjá þrota­bú­inu en hann telur að tölu­vert sé eftir af þessu ferli öllu. 

Hluthafar og kröfuhafar þurft að afskrifa stórar upphæðir

[links]United Silicon, félagið utan um rekstur kís­il­málm­verk­smiðju, var sett í gjald­­þrot í jan­úar í fyrra. Hlut­hafar og kröf­u­hafar félags­­­­ins hafa þurft að afskrifa stórar upp­­­­hæðir vegna United Silicon. Arion banki hefur til að mynda þegar afskrifað 4,8 millj­­­­­arða króna vegna verk­efn­is­ins. Bank­inn tók yfir hlutafé í United Silicon í febr­úar í fyrra og bók­­færði virði eign­anna á 5,4 millj­­arða króna. Auk þess eru úti­stand­andi lánslof­orð og ábyrgðir upp á um 900 millj­­ónir króna. Arion banki ábyrgð­ist rekstur United Silicon frá því að félagið var sett í greiðslu­­stöðvun og fram að gjald­­þroti og borg­aði um 200 millj­­­­­ónir króna á mán­uði vegna rekstur þess á því tíma­bili.

Aðrir hlut­hafar töp­uðu einnig stórum fjár­hæðum. Frjálsi líf­eyr­is­­­­­sjóð­­­­­ur­inn, sem fjár­­­­­­­­­festi 1.178 millj­­­­­ónum króna í United Silicon, hefur fært niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­­­­ur­inn á í félag­inu um 100 pró­­­­­sent. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­­­­launa­­­­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­­­­manna en þar nemur nið­­­­­ur­­­­­færslan einnig 100 pró­­­­­sent­­­­­um. Líf­eyr­is­­­­­sjóð starfs­­­­­manna Bún­­­­­að­­­­­ar­­­­­banka Íslands fjár­­­­­­­festir einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­­­un­­­­­ar­­­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­­­stöðvum hans í Borg­­­­­ar­­­­túni. Þá setti líf­eyr­is­­­­sjóð­­­­ur­inn Festa 875 millj­­­­ónir króna í United Silicon. Hann hefur einnig fram­­­­kvæmt var­úð­­­­ar­n­ið­­­­ur­­­­færslu vegna verk­efn­is­ins.

Magnús grunaður um að hafa dregið að sér um 600 milljónir

Í mars lögðu stjórnir þeirra fimm líf­eyr­is­sjóða sem fjár­fest höfðu í United Silicon fram kæru til hér­­aðs­sak­­sókn­­ara þar sem óskað var eftir það að emb­ættið tæki til rann­­sóknar nokkur alvar­­leg til­­vik sem grunur leikur á að feli í sér refsi­verð brot af hálfu Magn­úsar Ólafs Garð­­ar­s­­son­­ar, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóra og stjórn­­­ar­­manns United Silicon hf., og eftir atvikum ann­­arra stjórn­­enda, stjórn­­­ar­­manna og starfs­­manna félags­­ins. Áður hafði stjórn United Silicon og Arion banki, stærsti kröf­u­hafi félags­­ins, sent kærur vegna gruns um refsi­verða hátt­­semi Magn­úsar til yfir­­­valda. Þetta var því þriðja kæran sem berst vegna gruns um brot hans.

Sam­kvæmt skýrslu sem KPMG vann fyrir þrota­bú­ið, og Kjarn­inn greindi ítar­lega frá í jan­úar síð­ast­liðnum í röð frétta­skýr­inga, kom fram að alls sé Magnús grun­aður um að hafa dregið að sér 605 millj­ónir króna. Sam­kvæmt skýrsl­unni er rök­studdur grunur um að Magnús hafi, í starfi sínu sem for­stjóri United Silicon, falsað reikn­inga og und­ir­skrift­ir, átt við lána­samn­inga og búið til gervi­lén í við­leitni sinni til að draga að sér fé úr fyr­ir­tæk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Unitedsilicon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár