Arion banki reynir aftur við kísilverksmiðjuna

Arion banki hyggst reyna að gera sér mat úr þeim eignum sem verða í þrota­búi United Silicon.

Ari­on banki, sem er stærsti hlut­hafi og kröfu­hafi United Silicon í Helguvík, mun óska eft­ir því við skipta­stjóra þrota­bús United Silicon að ganga að veðum sín­um í eign­um fyr­ir­tæk­is­ins, koma þeim eign­um í sölu­ferli og freista þess að koma kís­il­verk­smiðj­unni aft­ur í gang.

Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Eins og kunn­ugt er fór United Silicon í gjald­þrot í gær. Geir Gestsson hrl. hefur verið skip­aður skipta­stjóri.

United Sil­icon er fyrsta kís­il­málm­verk­smiðjan sem hefur verið gang­sett á Íslandi. Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, þáver­andi iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, setti ljós­boga­ofn verk­smiðj­unnar af stað 13. nóv­em­ber 2016. Fljót­lega fór að bera á mik­illi óánægju hjá íbúum í Reykja­nesbæ með mengun frá verk­smiðj­unni.

Margir fundu fyrir tölu­verðum lík­am­legum ein­kennum vegna þessa, og voru meðal ann­ars haldnir fundir þar sem fólk deildi sögum sínum og kvart­aði undan meng­un­inni.

Í apríl í fyrra til­kynnti Umhverf­is­stofnun for­svars­mönnum United Sil­icon að ekki yrði hjá því kom­ist að loka verk­smiðj­unni vegna meng­unar sem frá henni streymdi. Í kjöl­farið voru veittir frestir en starf­semin var end­an­lega stöðvuð 1. sept­em­ber 2017 og fram­leiðsla hefur legið niðri síð­an.

Áður höfðu helstu lán­veit­endur

United

Sil­icon

,

Arion

banki og nokkrir íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir, tekið yfir

United

Sil­icon

. Félagið óskaði eftir greiðslu­stöðvun í ágúst 2017 og bar fyrir sig erf­ið­leika í rekstri sem rekja mætti til síend­ur­tek­inna bil­ana í bún­aði sem valdið höfðu félag­inu miklu tjóni.

Þá féll gerð­ar­dómur í deilu United Sil­icon við ÍAV hf., sem hafði tekið þátt í að reisa verk­smiðj­una, í fyrra­sum­ar. Sam­kvæmt honum átti United Sil­icon að greiða ÍAV um einn millj­arð króna, sem félagið átti ekki til.

Hlut­hafar og kröf­u­hafar félags­­ins hafa þurft að afskrifa stórar upp­­hæðir vegna United Sil­icon það sem af er þessu ári. Arion banki hefur til að mynda þegar afskrifað 4,8 millj­­­arða króna vegna verk­efn­is­ins.

Bank­inn hefur að mestu tekið yfir hlutafé en úti­stand­andi skuld­bind­ingar nema ennþá 5,4 millj­­­örð­um, sam­­­kvæmt síð­­­asta birta upp­­­­­gjöri bank­ans. Arion banki hefur auk þess ábyrgst rekst­­­ur­inn á greiðslu­­­stöðv­­­un­­­ar­­­tím­­­anum en hann hefur borgað um 200 millj­­­ónir króna á mán­uði vegna hans, frá því greiðslu­­­stöðv­­­un­­­ar­­­tím­inn hófst í ágúst.

Frjálsi líf­eyr­is­­­sjóð­­­ur­inn, sem fjár­­­­­festi 1.178 millj­­­ónum króna í United Sil­icon, hefur færð niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­­ur­inn á í fyr­ir­tæk­inu um 90 pró­­­sent. Um var­úð­­­ar­n­ið­­­ur­­­færslu er að ræða, og nemur hún rúmum millj­­­arði króna. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­­launa­­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­­manna (EFÍA). Þar nemur nið­­­ur­­­færslan einnig 90 pró­­­sent­­­um. Líf­eyr­is­­­sjóð starfs­­­manna Bún­­­að­­­ar­­­banka Íslands (LSBÍ) fjár­­­festir einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­un­­­ar­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­stöðvum hans í Borg­­­ar­­­túni.

Þá setti líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn Festa 875 millj­­ónir króna í United Sil­icon. Hann hefur einnig fram­­kvæmt var­úð­­ar­n­ið­­ur­­færslu vegna verk­efn­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár