Beiðni Stakksbergs um matslýsingu vegna nýs umhverfismats hafnað

Umhverfis- og skipu­lags­ráð Reykja­nes­bæjar hefur hafnað beiðni Stakks­bergs ehf. um mats­lýs­ingu og heim­ild til að vinna að deiliskipu­lagi í Helguvík. Bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar þarf hins vegar að stað­festa ákvörð­un­ina.

Kísilverksmiðjan í Helguvík
Kís­il­verk­smiðjan í Helguvík

Beiðni Stakks­bergs ehf. um að skipu­lags- og mats­lýs­ing félags­ins yrði tekin til með­ferðar var hafnað á fundi umhverfis- og skipu­lags­ráði Reykja­nes­bæjar í dag. Í beiðn­inni var einnig óskað eftir heim­ild til að vinna að deiliskipu­lags­breyt­ingum í sam­ræmi við ofan­greinda skipu­lags- og mats­lýs­ingu.

[links]Þetta kemur fram í fund­ar­gerð umhverfs- og skipu­lags­ráðs Reykja­nes­bæjar frá því í morgun. Umhverfis- og skipu­lags­ráðs er hins vegar aðeins ráð­gef­andi og því þarf bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar að stað­festa nið­ur­stöðu þeirra á næsta bæj­ar­stjórn­ar­fundi, næst­kom­andi þriðju­dag.

Stakks­berg ehf. er nýr eig­andi kís­il­vers­ins í Helguvík. Í sumar aug­lýsti Stakks­berg drög að til­lögu að mats­á­ætlun vegna nýs umhverf­is­mats kís­il­verk­smiðj­unnar. Tillagan var aug­lýst í fjöl­miðlum þann 25. júní síð­ast­lið­inn og óskað var eftir athuga­semdum frá almenn­ingi. Stakks­berg ehf. er félag í eigu Arion banka sem tekið hefur yfir kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík af þrota­búi United Silicon ehf. Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir að mark­mið Stakks­berg sé að gera allar þær úrbætur sem nauð­syn­legar séu til að upp­fylla kröfur Umhverf­is­stof­unar en stofn­unin komst að þeirri nið­ur­stöðu í jan­úar síð­ast­liðnum að verk­smiðjan upp­fyllti ekki skil­yrði fyrir starfs­leyfi.

Samkvæmt vef­síðu Stakks­bergs er ljóst að verk­smiðjan var áður að mörgu leyti van­búin til fram­leiðslu á kísli. Í til­lögu að mats­gerð gerir Stakks­berg grein fyrir fyr­ir­hug­uðum úrbótum og sett var fram rök­studd áætlun um hvaða umhverf­is­þætti verði fjallað um í mati á umhverf­is­á­hrifum end­ur­nýj­aðrar kís­il­verk­smiðju.

112 athugasemdir bárust

Samkvæmt heima­síðu Stakks­bergs bár­ust 112 athuga­semdir við til­lög­una. Efni athuga­semd­anna sem bár­ust voru einkum: Almenn mót­mæli við starf­semi kís­il­verk­smiðju í nágrenni bæj­ar­ins, íbúar upp­lifi sig blekkta vegna loft­meng­unar sem barst frá starf­sem­inni, sjón­meng­unar mann­virkja og skipu­lags verk­smiðj­unnar auk efa­semda um fram­kvæmd­ina vegna blekk­inga stofn­anda verk­smiðj­unnar. Ásamt því bár­ust athuga­semdir frá umsagn­ar­að­ilum, Veð­ur­stofu Íslands, Reykja­nesbæ og Vinnu­eft­ir­lit­inu. Snérust athuga­semdir umsagn­ar­að­ila einkum að for­sendum lík­ans um dreif­ingu efna í and­rúms­lofti, neyð­ar­skor­stein og mat á ásýnd mann­virkja.

Umhverf­is­stofnun sendi einnig inn umsögn þar sem helst var komið inn á: Hlutverk neyð­ar­skor­steins, áætl­aðar tíma­setn­ingar úrbóta­þátta, fjalla eigi um aðra kosti svo sem mis­mun­andi tækni­lausnir, þann val­kost að end­ur­ræsa ekki verk­smiðj­una, mat eigi að fara fram á áhrifum á sjó­fugla, umhverf­is­stjórn­un­ar­kerfi auk minni athuga­semda á borð við fyr­ir­komu­lag kæl­ingar, mark­mið og við­mið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kísill

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár