Ríkið greiddi 4,2 milljarða í jarðgöng, lóðaframkvæmd og starfsþjálfun vegna Bakka

Kostn­aður rík­is­ins vegna jarð­ganga sem tengdu kís­il­verið á Bakka við Húsa­vík­ur­höfn reynd­ist næstum helm­ingi meiri en upp­haf­leg áætlun gerði ráð fyrir. Rík­is­sjóður greiddi 236 millj­ónir króna í starfs­þjálfun fyrir starfs­fólk kís­il­vers­ins.

Áætlaður heild­ar­kostn­aður rík­is­ins við jarð­göng undir Húsa­vík­ur­höfða ásamt veg­teng­ingum 3.525 millj­ónir króna með verð­bótum, sem er rúm­lega 1,7 millj­arði krónum meira en upp­haf­legar áætl­anir gerðu ráð fyrir.

Jarð­göngin voru gerð til að auð­velda flutn­inga á hrá­efni frá Húsa­vík­ur­höfn til fyr­ir­tækja á iðn­að­ar­svæð­inu á Bakka, sér­stak­lega kís­il­ver PCC sem þar er starf­rækt. Um fjár­mögnun upp­bygg­ing­ar­innar voru sett sér­stök lög árið 2013.

Til við­bótar greiddi íslenska ríkið 460 millj­ónir króna vegna lóða­fram­kvæmda við kís­il­verið og 236 millj­ónir króna á síð­ustu tveimur árum í þjálf­un­ar­kostnað fyrir starfs­fólk þess. Samtals nemur kostn­aður við ganga­gerð­ina, lóða­fram­kvæmdir og þjálf­un­ar­kostn­að­inn því 4.221 millj­ónum króna. Auk þess veitti ríkið víkj­andi lán vegna hafn­ar­fram­kvæmda í Húsa­vík­ur­höfn vegna upp­bygg­ingar kís­il­vers­ins, afslátt af hafn­ar­gjöldum og ýmiss konar skattaí­viln­anir sem gætu komið til fram­kvæmda síðar meir.

Þetta kemur fram í svari Þordísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ferða­mála- iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Birgis Þór­ar­ins­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, um málið sem birt var á vef Alþingis í gær.

Endanlegur kostnaður mun hærri

Upp­haf­legar áætl­anir gerðu ráð fyrir því að kostn­að­ur­inn við ganga­gerð­ina yrði 1,8 millj­arðar króna miðað við verð­lag 2012. Eftir að hönnun lá fyrir var kostn­aður end­ur­met­inn og þá áætl­aður um þrír millj­arðar króna. Endanleg nið­ur­staða er þó sú að kostn­að­ur­inn er 3.525 millj­ónir króna, eða rúm­lega 1,7 millj­arði króna yfir upp­haf­legri áætlun og 525 millj­ónum króna yfir end­ur­met­inni áætlun á verð­lagi hvers árs. Í krónum talið er hann því nálægt tvö­faldur sá kostn­aður sem upp­haf­leg áætlun gerði ráð fyrir að hann yrði.

Fyrir nokkrum mán­uðum skap­að­ist sú staða en Vega­gerðin taldi sig ekki eiga að reka göngin og sinna því t.d. snjó­mokstri í kringum þau. Í svarið ráð­herra við spurn­ingu Birgis um hvort hún telji eðli­legt að rík­is­sjóður reki þessi mann­virki og nið­ur­greiði með því rekstr­ar­kostnað kís­il­vers­ins segir að ríkið eigi umrædd jarð­göng og veg­teng­ingar sem þeim tengj­ast. Það ber því einnig ábyrgð á veg­haldi, t.d. vegna snjó­mokst­urs.

Greitt fyrir starfsþjálfun með skattfé

Kostn­að­ur­inn við gerð jarð­gang­anna er ekki eini kostn­að­ur­inn sem íslenska ríkið tók á sig vegna upp­bygg­ingu kís­il­vers á Bakka. Ríkið greiddi einnig 460 millj­ónir króna í lóða­fram­kvæmdir undir kís­il­verið. Sú upp­hæð var undir áætlun, sem var upp­haf­lega 558 millj­ónir króna.

Auk þess greiddi ríkið 236 millj­ónir króna í þjálf­un­ar­kostnað starfs­manna kís­il­vers­ins, 131 milljón króna á árinu 2017 og 105 millj­ónir króna í fyrra. Þá getur fyr­ir­tækið nýtt sér ýmsar skatta­legar íviln­anir sem samið var um í fjár­fest­inga­samn­ingi þegar og ef þær falla til. Það hefur enn ekki gerst.

Það þurfti einnig að stækka hafn­ar­mann­virki vegna upp­bygg­ingar kís­il­vers­ins. Til að standa undir kostn­aði vegna þeirra fram­kvæmda fékk hafn­ar­sjóður Húsa­vík­ur­hafnar 819 millj­óna króna víkj­andi lán frá rík­is­sjóði. Ráðgert er að lánið verði end­ur­greitt en víkj­andi lán eru þess eðlis að þau end­ur­greið­ast ekki fyrr en önnur lán hafa verið greidd.

Í svari ráð­herra segir þó einnig að ekki liggi fyrir „hvort arð­semi hafn­ar­innar muni duga til að end­ur­greiða öll lán sem tekin voru vegna stækk­unar hennar. Samkvæmt 9. gr. fjár­fest­ing­ar­samn­ings­ins á milli íslenska rík­is­ins og fyr­ir­tæk­is­ins [PCC] greiðir félagið 40% lægri hafn­ar­gjöld í 14 ár frá und­ir­ritun fjár­fest­ing­ar­samn­ings­ins en það sem segir í gjald­skrá Hafn­ar­sjóðs Norð­ur­þings.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kísill

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár