Arion banki hagnaðist um 1,1 milljarð í fyrra

Benedikt Gíslason, banka­stjóri, segir að aðgerðir sem gripið hafi verið til í fyrra, hafi styrkt und­ir­liggj­andi rekstur nú þegar. Áfram er unnið að því mark­miði að ná 10 pró­sent arð­semi eig­in­fjár, en hún var aðeins 0,6 pró­sent í fyrra.

Arion banki hagn­að­ist um 1,1 millj­arð í fyrra, en afkoman á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins í fyrra var nei­kvæð um 2,7 millj­arða króna, en á sama tíma­bili árið á undan var afkoman jákvæð um 1,6 millj­arða.

Hagnaður á árinu 2018 var 7,7 millj­arðar króna, og því versn­aði afkoma bank­ans umtals­vert í fyrra miðað við árið á undan.

Benedikt Gíslason, banka­stjóri, segir í til­kynn­ingu til kaup­hallar að afkoma und­ir­liggj­andi rekstrar hafi farið batn­andi að und­an­förnu.

„Við sjáum þess merki á fjórða árs­fjórð­ungi að þær skipu­lags- og áherslu­breyt­ingar sem ráð­ist var í undir lok þriðja árs­fjórð­ungs skila árangri því Arion banki hagn­ast um 5,2 millj­arða króna af áfram­hald­andi starf­semi á fjórð­ungnum, sem er besti fjórð­ungur árs­ins 2019. Vaxta­munur hefur hækkað og dregið hefur úr rekstr­ar­kostn­aði á sama tíma og bank­inn hefur fengið end­ur­greidd óarð­bær útlán og greitt upp dýra fjár­mögnun. Góður vöxtur er einnig í afkomu trygg­inga­starf­semi og höfum við miklar vænt­ingar til áfram­hald­andi sam­starfs við Vörð, við­skipta­vinum okkar til hags­bóta. Það er því margt í rekstri bank­ans sem lofar góðu varð­andi fram­haldið,“ segir Benedikt í til­kynn­ingu.

Arðsemi eigin fjár var 0,6 pró­sent á árinu 2019, sam­an­borið við 3,7 pró­sent á árinu 2018. Sé horft til upp­gjörs kerf­is­lægs mik­il­vægu bank­anna þriggja - Íslands­banka, Lands­bank­ans og Arion banka - þá var arð­semi eigin fjár hjá Arion banka lang­sam­lega minnst og afkoman lök­ust. Íslands­banki hagn­að­ist um 8,5 millj­arða og Lands­bank­inn um 18,2 millj­arða.

Benedikt, sem tók við stjórn­ar­taumunum í fyrra, segir í til­kynn­ingu að eig­in­fjár­staða bank­ans sé sterk, og að end­ur­skipu­lagn­ing á rekstr­inum - sem gripið var til þegar hann tók við - er farin að skila umtals­verðum árangri. „Eig­in­fjár­staða bank­ans er áfram mjög sterk og eitt af áherslu­at­riðum okkar nú er að ná fram hag­stæðri fjár­magns­skipan með útgáfu skulda­bréfa sem flokk­ast sem eig­in­fjár­þáttur 2 og við­bótar eigið fé þáttar 1, bæta notkun eigin fjár í rekstr­inum og leggja aukna áherslu á starf­semi sem bindur minna eigið fé. Eigið fé er í raun skuld bank­ans við eig­endur og er dýrasta fjár­mögnun bank­ans. Því skiptir miklu að hafa ekki meira eigin fé en þörf krefur,“ segir Benedikt.

Hann segir jafn­framt, að lækkun eig­in­fjár bank­ans sé mik­il­vægur liður í því að bank­inn nái mark­miðum um 10 pró­sent arð­semi eig­in­fjár.

„End­ur­kaupa­á­ætlun var hrint í fram­kvæmd síðla árs 2019 og arður greiddur út á árinu. Jafn­framt stendur til að leggja fyrir aðal­fund bank­ans í mars n.k. til­lögu um frek­ari útgreiðslu arðs. Lækkun eig­in­fjár er mik­il­vægur liður í að bank­inn nái mark­miðum sínum um 10% arð­semi eig­in­fjár enda eru vaxt­ar­tæki­færi sem bjóða ásætt­an­lega arð­semi tak­mörkuð í lækk­andi vaxtaum­hverfi. Annar mik­il­vægur þáttur í að ná við­und­andi arð­semi snýr að lán­veit­ingum til stærri fyr­ir­tækja. Sökum hárra eig­in­fjár­krafna og skatta er bank­inn í raun ekki sam­keppn­is­fær við líf­eyr­is­sjóði og erlenda banka þegar kemur að lánum til stærri fyr­ir­tækja. Arion banki mun því gagn­vart þessum fyr­ir­tækjum leggja höf­uð­á­herslu á að veita fag­lega ráð­gjöf og aðstoða þau við að finna hag­stæð­ustu fjár­mögnun hverju sinni, en auð­vitað leggja þeim til lánsfé þegar svo ber undir. Hvað varðar lán­veit­ingar til ein­stak­linga og lít­illa og meðal stórra fyr­ir­tækja er stefna bank­ans óbreytt og þrátt fyrir áherslu á arð­semi lána­safns­ins umfram vöxt þá var á fjórða árs­fjórð­ungi góður gangur í nýjum útlánum sem námu alls 24 millj­örðum króna á fjórð­ungnum, þar af voru lán til ein­stak­linga um 10 millj­arðar króna,“ segir Benedikt.

Í til­kynn­ingu bank­ans, segir að stjórn hafi sam­þykkt metn­að­ar­fulla umhverfis- og lofts­lags­stefnu, þar sem mark­mið bank­ans taka mið af Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. „Stjórn Arion banka sam­þykkti nú í des­em­ber metn­að­ar­fulla umhverfis- og loft­lags­stefnu og mark­mið fyrir næstu ár. Í stefn­unni felst að við sem störfum hjá bank­anum viljum leggja okkar af mörkum til að Ísland geti staðið við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu og öðrum inn­lendum og erlendum loft­lags­sátt­málum. Markmið okkar á árinu 2020 er að meta lána­safn bank­ans út frá grænum við­miðum og setja okkur mark­mið í þeim efnum. Munum við einnig í auknum mæli beina sjónum okkar að fjár­mögnun verk­efna sem snúa að sjálf­bærri þróun og grænni inn­viða­upp­bygg­ingu. Að auki munum við í mati okkar á birgjum gera kröfu um að þeir taki mið af áhrifum sinnar starf­semi á umhverfis- og loft­lags­mál.“

Mark­aðsvirði Arion banka er nú 154 millj­arðar króna, en stjórn bank­ans leggur til 10 millj­arða arð­greiðslu til hlut­hafa félags­ins, vegna árs­ins í fyrra. Arion banki er skráður á markað á Íslandi og í Svíþjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár