155 þúsund tonn af kolum þarf til framleiðslunnar árlega

Mati á umhverf­is­á­hrifum end­ur­bóta á kís­il­ver­inu í Helguvík er lokið. Miðað við fulla fram­leiðslu mun losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá verk­smiðj­unni jafn­gilda 11 pró­sentum af heild­ar­losun Íslands árið 2019.

Kísilverksmiðjan í Helguvík eins og hún lítur út í dag.
Kís­il­verk­smiðjan í Helguvík eins og hún lítur út í dag. Mynd: Hörður Kristleifsson

Fyr­ir­hug­aðar end­ur­bætur Stakks­bergs ehf. á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík eru að mati Skipu­lags­stofn­unar lík­legar til að fækka til­vikum sem ljós­boga­ofn er stöðv­aður og stytta tíma sem hann keyrir á skertu afli. Þá eru áform um að losa útblástur um skor­steina en ekki um rjáfur síu­húss, sem bætt var við vegna aðfinnslu Umhverf­is­stofn­unar, lík­leg til að leiða til mun betri dreif­ingar útblást­ursefna, stöðugri rekst­urs verk­smiðj­unnar og stuðla að bættum loft­gæðum frá því sem áður var.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nið­ur­stöðu álits Skipu­lags­stofn­unar á end­an­legri mats­skýrslu Stakks­bergs. Stofn­unin telur líkur á að íbúar í nágrenn­inu komi til með að verða varir við lykt frá starf­sem­inni en tíðni til­vika og styrkur lyktar verði minni en á fyrri rekstr­ar­tíma. „Að því gefnu að inn­leið­ing end­ur­bóta verði far­sæl“ telur stofn­unin að áhrif við rekstur 1. áfanga kís­il­vers­ins á loft­gæði, þ.e. eins ljós­boga­ofns, verði „nokkuð nei­kvæð“ en áhrif fullrar fram­leiðslu fjög­urra ofna líkt og stefnt er að „tals­vert nei­kvæð“.

[adspot]

Mats­skýrslan var lögð fram í byrjun síð­asta sum­ars og álit Skipu­lags­stofn­unar var birt á gaml­árs­dag. Þar með er mati á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmd­anna lokið og Stakks­berg, sem er í eigu Arion banka, getur und­ir­búið næstu skref á þeirri veg­ferð að gera end­ur­bætur á verk­smiðj­unni, end­ur­ræsa hana og stækka. Yfirlýst mark­mið bank­ans er svo að selja kís­il­verið.

[links]Hönnun verk­smiðj­unnar hefur verið breytt frá því að Stakks­berg lagði fram til­lögu að mats­á­ætlun árið 2019 og frum­mats­skýrslu árið 2020 og rúm­ast nú allar nýjar bygg­ingar innan heim­ilda gild­andi deiliskipu­lags að mati félags­ins.

Kís­il­verk­smiðjan í Helguvík er þyrnir í augum margra íbúa Reykja­nes­bæjar sem og bæj­ar­stjórnar sem ítrekað hefur lýst yfir and­stöðu sinni við end­ur­ræs­ingu hennar. Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, sagði í sam­tali við Kjarnann árið 2020 að nýtt deiliskipu­lag væri for­senda þess að end­ur­upp­bygg­ingin í Helguvík gæti átt sér stað og bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar hefði vald til að hafna eða sam­þykkja til­lögu að deiliskipu­lagi. Í des­em­ber síð­ast­liðnum sögð­ust bæj­ar­full­trúar sem Kjarninn ræddi við enn á þeirri skoðun að ekki ætti að hefja rekstur vers­ins á ný.

353 athugasemdir

Frum­mats­skýrsla Stakks­bergs var lögð fram árið 2020 og fór þá í hefð­bundið aug­lýs­inga­ferli hjá Skipu­lags­stofnun. Auk umsagna stofn­anna bár­ust fjöl­margar athuga­semdir frá ein­stak­lingum og félaga­sam­tökum um áformin sem þar voru kynnt eða 353 tals­ins. Lang­flestar voru þær frá íbúum Reykja­nes­bæjar og á einn veg: Þeir vilja verk­smiðj­una burt.

Skýr­ing­arnar eru aug­ljósar. Reynsla þeirra af kís­il­veri skammt frá íbúa­byggð var slæm.

Kís­il­verk­smiðja Sam­ein­aðs Sílikons hf. í Helguvík var gang­sett árið 2016 en þá hafði fyrsti áfangi verið reistur með einum ljós­boga­ofni. Á meðan hún var í rekstri urðu íbúar í nágrenn­inu varir við ólykt, reyk og fundu fyrir óþæg­indum sem Skipu­lags­stofnun telur að rekja megi til þess að ítrekað þurfti að stöðva ofn­inn sem varð til þess að hann var oft keyrður á lágu afli.

Umhverf­is­stofnun gerði ítrekað athuga­semdir við rekst­ur­inn sem ekki var brugð­ist við með full­nægj­andi hætti. 1. sept­em­ber 2017, tæpu ári eftir að verið var ræst, stöðv­aði Umhverf­is­stofnun því rekst­ur­inn. Í fram­haldi af því vann Sameinað Sílikon hf. að áætlun um umbætur. Þær urðu ekki að veru­leika og fyr­ir­tækið var tekið til gjald­þrota­skipta árið 2018. Í kjöl­farið eign­að­ist Arion banki eignir þrota­bús­ins.

Ári síðar lagði dótt­ur­fé­lag bank­ans, Stakks­berg, fram mats­á­ætlun að end­ur­bótum, stækkun og end­ur­ræs­ingu verk­smiðj­unnar. Stefnt er að verk­smiðju með fjórum ljós­boga­ofnum, eins og þeim ofni sem þegar er upp­settur, og allt að 100.000 tonna fram­leiðslu­getu á kísli á ári. Byggja á verk­smiðj­una upp í fjórum áföngum.

Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir end­ur­bótum á þeirri verk­smiðju sem hefur þegar risið. Þær byggja meðal ann­ars á úrbóta­á­ætlun Sam­ein­aðs Sílikons hf. auk skil­yrða sem Umhverf­is­stofnun setti við sam­þykkt hennar. Sem dæmi er nú fyr­ir­hugað að reisa 52 metra háan skor­stein í stað þess að útblástur fari út um rjáfur síu­húss. Þá er fyr­ir­hugað að skipta um fóðr­ingu í ofni og setja upp nýtt ryk­hreinsi­virki. Jafn­framt er í úrbóta­á­ætlun lögð áhersla á þjálfun starfs­fólks.

Í öðrum áfanga yrði núver­andi ofn­hús stækkað en nýtt byggt fyrir þann þriðja og fjórða. Annar áfangi myndi samnýta skor­stein með þeim fyrsta en gert er ráð fyrir að byggja sams­konar skor­stein fyrir síð­ari áfanga. Hverjum ofni sem myndi bæt­ast við fylgja ýmis mann­virki, eins og síu­hús og kæli­virki. Nokkur ár geta liðið á milli áfanga en Stakks­berg áformar að reisa annan áfanga þegar stöð­ug­leiki er kom­inn á rekstur þess fyrsta. Segir félagið að staða á mörk­uðum og mögu­leikar á fjár­mögnun muni ráða því hvenær verði ráð­ist í þriðja og fjórða áfanga.

Helmingi meira af kolum þarf

Efni sem losna við kís­ilfram­leiðslu eru helst brenni­steins­dí­oxíð (SO2), köfn­un­ar­efn­is­oxíð (NOx), kolmónoxíð (CO), svifryk (PM10/2,5) og PAH-efni. Einnig eru los­aðir þung­málmar og rok­gjörn líf­ræn efna­sam­bönd (VOC). Í háum styrk geta mörg þess­ara efna haft áhrif á slím­húð og önd­un­ar­færi.

Fram­leiðslan veldur einnig losun koldí­oxíðs vegna bruna á elds­neyti af jarð­efna­upp­runa sem nemur allt að 100.000 tonnum á ári miðað við einn ljós­boga­ofn og allt að 400.000 tonnum á ári miðað við fjóra ofna. Í mats­skýrslu Stakks­bergs til Skipu­lags­stofn­unar síð­asta vor var rangt farið með magn kola sem þarf til starf­sem­innar. Í henni sagði að árs­notkun yrði um 80.000 tonn á ári fyrir full­byggða verk­smiðju en ráð­gerð notkun væri hins vegar um 155.000 tonn á ári. Jafn­framt munu ber­ast um tvö kíló af kvika­silfri frá full­byggðri verk­smiðju en ekki 1,5 kíló. Stakks­berg kom sjálft þessum leið­rétt­ingum á fram­færi við stofn­un­ina.

Segir mat Stakksberg „sannfærandi“

Skipu­lags­stofnun þykir mat Stakks­bergs á dreif­ingu og styrk helstu meng­un­ar­efna „sann­fær­andi“ og telur að við stöðugan rekstur „megi gera ráð fyrir“ að styrkur efn­anna verði undir við­mið­un­ar­mörkum.

Losun rok­gjarnra líf­rænna efna (VOC-efna) og áhrif þeirra á loft­gæði eru þó óvissu­þáttur, bendir stofn­unin á. Talið er að VOC-efni hafi orsakað þá lykt­ar­mengun og óþæg­indi sem íbúar fundu fyrir á fyrri rekstr­ar­tíma en „ekki liggur fyrir í hve miklum styrk ein­stök VOC-efni valda lykt­ar­mengun“.

[adspot]

Fyr­ir­hug­aðar end­ur­bætur á verk­smiðj­unni eru „lík­legar til að draga úr losun VOC-efna og bæta dreif­ingu þeirra,“ segir í álit­inu. „Fyr­ir­liggj­andi gögn benda ein­dregið til þess að styrkur VOC-efna lækki umtals­vert við rekstur 1. áfanga sam­an­borið við fyrri rekstr­ar­tíma.“ Að því gefnu að inn­leið­ing end­ur­bóta verði far­sæl telur Skipu­lags­stofnun að áhrif við rekstur eins ljós­boga­ofns á loft­gæði verði nokkuð nei­kvæð og að áhrif fullrar fram­leiðslu geti verið tals­vert nei­kvæð.

Áhyggjur íbúanna

Í fjölda athuga­semda almenn­ings við frum­mats­skýrslu Stakks­bergs komu fram áhyggjur af áhrifum á lykt og heilsu með vísan til fyrri rekstr­ar­tíma. Að mati Skipu­lags­stofn­unar eru líkur á að fólk komi til með að hafa áhyggjur af áhrifum starf­sem­innar á heilsu­far sitt í ljósi fyrri reynslu. „Slíkar áhyggjur geta vaknað óháð því hvort um raun­veru­leg áhrif á heilsu sé um að ræða,“ segir í álit­inu. „Í ljósi nálægðar við þétt­býlið, og ekki síður for­sög­unnar, er mik­il­vægt að upp­lýs­ingar um loft­gæði verði aðgengi­legar og vel haldið utan um kvart­anir vegna lykt­ar­meng­unar.“

Stakks­berg hyggst halda úti vef­síðu með nið­ur­stöðum vökt­unar og upp­lýs­ingum um frá­vik. Einnig verður þar hægt að leggja fram nafn­lausar ábend­ingar um lykt­ar­mengun sem fylgt verður eftir með mæl­ingum á VOC-efnum.

Mannvirki verði meira áberandi en myndir gefa til kynna

Auk fram­an­greindra áhrifa telur Skipu­lags­stofnun að helstu áhrif kís­il­verk­smiðj­unnar muni fel­ast í áhrifum á lands­lag og ásýnd sem og lofts­lags­á­hrifum. Með breyttri hönnun 1. áfanga með háum skor­steini verður hún meira áber­andi. Við upp­bygg­ingu frek­ari áfanga á hún eftir að verða enn sýni­legri frá þétt­býli og þjóð­veg­inum frá Leifs­stöð. Að mati Skipu­lags­stofn­unar koma ljós­myndir í mats­skýrslu ekki fylli­lega til skila umfangi mann­virkja og að þau verði meira áber­andi en mynd­irnar gefa til kynna. Skipu­lags­stofnun telur því að full­byggð verk­smiðja komi til með að hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á lands­lag og ásýnd.

Losun jafngildir 11 prósent af heildarlosnun Íslands

Starf­semi verk­smiðj­unnar fellur undir við­skipta­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins með los­un­ar­heim­ildir og losun verk­smiðj­unnar á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum er því ekki losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda. Starf­semin mun engu að síður losa mikið af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum eða um 520 kt CO2-ígildi á ári miðað við fulla fram­leiðslu sem jafn­gildir um 11 pró­sent af heild­ar­losun Íslands árið 2019.

Vegna óvissu um áhrif los­unar VOC-efna á loft­gæði og sam­fé­lag telur Skipu­lags­stofnun að ein­göngu eigi að veita heim­ild fyrir 1. áfanga verk­smiðj­unnar. Heimild fyrir upp­bygg­ingu og rekstri síð­ari áfangi verði veitt þegar reynsla er komin á rekstur eins ljós­boga­ofns.

Byggingar rúmast innan deiliskipulags

Margt fór úrskeiðis í rekstri kís­il­vers­ins á árunum 2016-17. Vand­ræðin byrj­uðu þó áður en kveikt var á ljós­boga­ofn­inum. Er bygg­ing­arnar í Helguvík risu kom í ljós að þær sam­ræmd­ust ekki því deiliskipu­lagi sem aug­lýst hafði verið og kynnt almenn­ingi m.a. í íbúa­kosn­ingu. Húsin voru hærri og meiri um sig en leyfi­legt var og þá voru hlutar þeirra utan bygg­ing­ar­reits­ins að mati Skipu­lags­stofn­unar.

Stakks­berg óskaði eftir því við Reykja­nesbæ að deiliskipu­lag­inu yrði breytt til sam­ræmis við bygg­ingar sem þegar hefðu verið byggðar og að sú vinna færi fram á sama tíma og unnið væri að mati á umhverf­is­á­hrifum. Drög að skipu­lags- og mats­lýs­ingu voru send á Reykja­nesbæ í sept­em­ber 2018 og í jan­úar 2019 sam­þykkti bær­inn að Stakks­berg gæti hafið vinnu við und­ir­bún­ing skipu­lags­breyt­ingar.

Á fundi í júní 2019 taldi umhverfis- og skipu­lags­ráð Reykja­nes­bæjar ekki tíma­bært að aug­lýsa til­lögu að deiliskipu­lags­breyt­ingu fyrr en mati á umhverf­is­á­hrifum væri lokið. „Áform­aðar end­ur­bætur á kís­il­verk­smiðj­unni rúm­ast hins vegar alveg innan gild­andi deiliskipu­lags og kalla þær því einar og sér ekki á breyt­ingu á skipu­lag­inu,“ segir í mats­skýrslu Stakks­bergs, en þetta er breyt­ing frá því á fyrri stigum umhverf­is­mats­ins. „Eingöngu þarf því að breyta deiliskipu­lagi til að sam­ræma það núver­andi mann­virkjum sem reist voru á grund­velli bygg­ing­ar­leyfa útgefnum af Reykja­nesbæ, í sam­ræmi við fram­an­greindar athuga­semdir Skipu­lags­stofn­unar.“

Í skýrsl­unni kemur einnig fram að þótt ný mann­virki verði í sam­ræmi við gild­andi deiliskipu­lag þurfi að breyta því fyrir útgáfu leyfa til end­ur­bóta á sumum núver­andi mann­virkjum. „Sú breyt­ing verður kynnt og færi gefin á gerð athuga­semda í sam­ræmi við ákvæði skipu­lags­laga,“ segir Stakks­berg í skýrsl­unni.

Nú þegar mati á umhverf­is­á­hrifum hinna fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmda er lokið mun félagið sækja um bygg­ing­ar­leyfi fyrir ný mann­virki og end­ur­skoðun á starfs­leyfi verður aug­lýst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stakksberg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár