„Raunverulega ekki boðlegur kostur“ að flytja kísilverið

Full­trúar Arion banka segja það að flytja kís­il­verið úr Helguvík yrði „svo óskap­legt“ að það sé „raun­veru­lega ekki efna­hags­lega boð­legur kostur“. Þeir segja „engar gul­rætur frá rík­inu“ fylgja söl­unni.

Kísilverið í Helguvík hefur ekki verið starfrækt frá haustinu 2017.
Kís­il­verið í Helguvík hefur ekki verið starf­rækt frá haustinu 2017. Mynd: Af vef Reykjanesbæjar

„Það má ekki gleyma því að þarna hefur verið varið til mjög miklum fjár­munum til að byggja upp rekstur sem þarf jú að vísu nokkra fjár­fest­ingu til að sé hægt að full­klára þessa verk­smiðju. En raun­veru­lega það tjón sem þarna yrði á hags­munum við það að flytja verk­smiðj­una í burtu, það er bara svo óskap­legt að það er raun­veru­lega ekki efna­hags­lega boð­legur kostur.“

[links]Þetta sagði Þórður Ólafur Þórð­ar­son, lög­fræð­ingur Arion banka og stjórn­ar­maður í Stakks­bergi, dótt­ur­fé­lagi bank­ans sem á kís­il­verið í Helguvík, sem var gestur á fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis í morgun. Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, óskaði eftir fund­inum og var umræðu­efnið kís­il­verið í Helguvík sem hvorki bæj­ar­yf­ir­völd í Reykja­nesbæ né íbúar vilja að verði end­ur­ræst. Arion banki hefur hins vegar önnur áform, umhverf­is­mati er lokið og nýverið að skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu við rekstr­ar­að­ila kís­il­vers PCC á Bakka um mögu­leg kaup.

Ólafur Hrafn Hösk­ulds­son, fjár­mála­stjóri Arion banka og stjórn­ar­for­maður Stakks­berg var einnig gestur fund­ar­ins og rifj­aði upp að bank­inn hefði eign­ast verk­smiðj­una árið 2018 eftir gjald­þrot United Silicon. Rekst­ur­inn hafði þá verið stöðv­aður af Umhverf­is­stofnun haustið áður vegna ítrek­aðra rekstr­ar­erf­ið­leika og meng­unar sem íbúar kvört­uðu oft­sinnis yfir.

[adspot]

Ólafur sagði að um 15-20 millj­arða króna fjár­fest­ingu væri að ræða í innviðum til kís­ilfram­leiðslu. „Það er ljóst að þrátt fyrir það að búið sé að færa þessar eignir að mestu niður í bókum bank­ans þá felst ábyrgð í því að halda á þess­ari 15-20 millj­arða fjár­fest­ingu og það er þessi ábyrgð sem hefur verið okkar leið­ar­ljós í verk­efn­inu. Þegar maður talar um þessa ábyrgð þá felst vissu­lega ábyrgð í því að skoða gang­setn­ingu á verk­smiðj­unni en það fellst að sama skapi mikil ábyrgð og sóun í því að rífa niður þessa 15-20 millj­arða og ekki kanna til hlítar hvort að hægt sé að gang­setja þarna verk­smiðju sem hægt er að reka í eins góðri sátt við sam­fé­lagið og hægt er og í takti við kröfur eft­ir­lits­að­ila.“

Hann segir stjórn­endur bank­ans hafa viljað skoða alla mögu­leika í stöð­unni, líka þann að rífa verk­smiðj­una. „Við erum banka­menn, við erum ekki sér­fræð­ingar í sili­kon­fram­leiðslu eða fram­kvæmdum á sili­kon­verk­smiðju, það er ljóst. Það hefur alltaf legið fyrir frá upp­hafi í þessu ferli hjá bank­anum að það verði ekki farið í þetta nema með aðila sem hefur þekk­ingu og reynslu við­eig­andi á þessu sviði.“ Því væri vilja­yf­ir­lýs­ing við PCC „rök­rétt staða í þessu ferli“.

Myndu alltaf tapa peningum

Ólafur sagði að rætt hefði verið við tugi fjár­festa und­an­farin ár þar sem ýmsum hug­myndum um rekstur í Helguvík hefðu verið ræddar, bæði varð­andi flutn­ing verk­smiðj­unnar, end­ur­ræs­ingu hennar og önnur not fyrir inn­við­ina. „Í fyrsta lagi hafa engin skuld­bind­andi til­boð komið á borðið frá aðilum sem sjá önnur not fyrir þessa inn­viði.“

Hann sagði að önnur not á verk­smiðj­unni en til sili­kon­fram­leiðslu kæmu „aldrei til með að nýta þessa 15-20 millj­arða inn­viði í ein­hverjum mæli. Þannig að mestu not af þessum innviðum eru, aug­ljós­lega kannski, kís­ilfram­leiðsla“.

Engar gulrætur fylgja

Andrés Ingi spurði m.a. hvort að ein­hverjar íviln­anir frá hinu opin­bera fylgdu eign­inni ef til sölu hennar kæmi. Þórður sagði að raf­orku­samn­ingur hefði ekki fylgt en að Stakks­berg hefði gert nýjan samn­ing við Lands­virkjun sum­arið 2018 sem að efn­inu til væri ekki ósvip­aður þeim samn­ingi og United Silicon hefði haft. United Silicon og rík­is­ins var svo íviln­un­ar­samn­ingur, hefð­bund­inn fjár­fest­inga­samn­ingur, eins og Þórður orð­aði það, „en við kusum að yfir­færa ekki þann samn­ing þannig að það fylgja þessu nýja fyr­ir­tæki Stakks­bergi engar gul­rætur frá rík­inu“.

Ólafur sagði það „vissu­lega“ mögu­leika að taka verk­smiðj­una niður og flytja hana annað. „En það er kostn­að­ar­samt“. Hann sagði stjórn­endur bank­ans hafa átt sam­töl við rekstr­ar­að­ila „út um allan heim“ um þennan mögu­leika. „En nið­ur­staðan er raun­veru­lega að eina upp­leggið var „í raun eig­enda­skipti á vanda­mál­inu fyrir ekki neitt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stakksberg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár